Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 70

Fréttatíminn - 17.04.2014, Page 70
Það eru bjartir tímar fram undan í mörgu tilliti. Sumarið er á næsta leiti, vetur og myrkur víkja og það birtir líka í sálunni. Æska landsins heldur á vit nýrra verkefna að lokinni skólagöngu þetta vorið og lífið brosir við henni. En vítin eru mörg og við foreldrar þurfum að halda vöku okkar. Við erum fyrirmyndir æskunnar, við eigum að leiða hana réttan veg út í lífið. Því hlutverki verðum við að sinna af alvöru. Forvarnarstarf er mikilvægt nú líkt og fyrr en blikur eru á lofti. Raddir heyrast um tilslökun þegar kemur að fíkniefnum. Undir slík sjónarmið getur Vímulaus æska – Foreldrahús ekki tekið. Ef við slökum hið minnsta á í baráttu gegn fíkniefnum, er hætta á að við missum tökin. Öflugt forvarnarstarf hefur skilað umtalsverðum árangri, hvort heldur litið er til reykinga, áfengisneyslu eða annarrar vímuefnanotkunar ungmenna. Forvarnir eru viðvarandi viðfangsefni og á ábyrgð okkar allra. Kosningar til sveitarstjórna fara fram í lok maí. Mig langar að höfða til ábyrgðar stjórnmálamanna sem bjóða fram krafta sína í þágu almennings og hvetja þá til að gefa forvörnum enn meiri gaum en gert hefur verið. Myndarleg aukning á fjár- framlögum til forvarna í þágu æskunnar er trúlega ein besta fjárfesting sem þjóðin getur lagt í. Úrræði þurfa líka að vera til staðar fyrir þann hóp sem lendir í vanda, m.a. vegna vímuefnanotkunar. Foreldrahús sinnir, auk annars, námskeiðahaldi og ráð- gjafaþjónustu fyrir fjölskyldur sem eiga börn og unglinga í einhverskonar vanda. Álag á starfsfólk Foreldrahúss í að veita ráðgjöf, viðtöl og stuðning við foreldra og börn vegna margþættra vandamála, vex stöðugt. Þá er mikil spurn eftir sjálfs- styrkingarnámskeiðum. Heilbrigð og sterk sjálfsmynd er lykillinn að velgengni í lífinu öllu og ábyrgð okkar foreldra er mikil í þeim efnum. Vímulaus æska – Foreldrahús gæti ekki haldið úti öflugu starfi sínu ef ekki kæmi til velvild og öflugur stuðningur einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Mig langar fyrir hönd Vímulausrar æsku, að þakka fyrir þann stuðning og velvild sem samtökin njóta. Þá færi ég starfsfólki einlægar þakkir fyrir framlag þess. Gætum æsku landsins. Verum óhrædd við að taka afstöðu gegn vímuefnum. Gleðilegt sumar. Framkvæmdin er eftirfarandi: · Forvörn fer fram í gegnum fræðslu og almenna umræður. · Sjálfsskoðun fer fram í gegnum verkefnavinnu, sköpun og leiki. · Tilfinningaleg úrvinnsla fer fram í gegnum hlustun og tjáningu. Nálgunin á námskeiðinu felst í að veita öruggt umhverfi, byggja upp traust innan hópsins og að allir fá tækifæri til þess að njóta sín á sinn hátt. Leiðbeinendur sameina hæfni á sviði sköpunar og mannlegra sam- skipta og þannig aðstoða börnin og unglingana til að nýta sér sitt eigið innsæi, getu, reynslu og tjáningu til að ná félagslegri og tilfinningalegri kjölfestu. Lagt er upp úr að trúnaður ríki meðal allra, bæði meðal þátttak- enda og leiðbeinenda. En það þýðir að það sem opnað er á og unnið er með fer ekki út fyrir hópinn. Það getur komið upp sú staða að leið- beinendur telji vera þörf á að vinna frekar með mál og er það þá alltaf gert með samþykki og samvinnu þess sem í hlut á. Allt sem kemur upp á námskeiðinu er unnið vand- lega með og ef þess þarf, bæði fyrir utan námskeiðið og/eða eftir lok þess. Traust er byggt upp með því að nálgast hvern og einn út frá þeirra forsendum og fær hver og einn að vinna þau verkefni sem lögð eru fyrir á sinn hátt. Þau viðfangsefni sem þátttakend- urnir fá tækifæri til vinna með og skoða eru samskipti, tilfinningar og tengsl sín við sitt nánasta umhverfi, fjölskyldu, vini og skóla. Boðið er upp á margar leiðir til þess að opna sig og tjá sig út frá ofangreindum viðfangsefnum eins og t.d. með myndlist, tónlist, leikrænni tjáningu, hreyfingu og orðlist. Með því er verið að efla sjálfstæði, sköpun, tengsl, sjálfs- þekkingu og samvinnu. Hlustun og munnleg tjáning eru mikilvægir þættir sem haldið er vel utan um hjá hverjum og einum innan hópavinn- unnar. Þannig fá allir að upplifa þá virðingu, vinsemd og viðurkenn- ingu sem þeir þurfa og eiga skilið. Námskeiðið er fyrir börn og ung- linga á aldrinum 10 ára til 17 ára eða frá 5. bekk í grunnskóla til 1. bekkj- ar í framhaldsskóla. Hóparnir eru aldursskiptir og er kynjaskipt frá 13 ára aldri. Fjöldi í hóp er frá 12- 16 og eru tveir ráðgjafar með hvern hóp. Lengd námskeiðanna er 15-20 klukkustundir sem dreifast yfirleitt yfir 10-15 vikna tímabil. Á miðju námskeiðstímabilinu er foreldrum boðið upp á foreldrakvöld þar sem farið er ítarlega í gegnum þá hugmyndafræði og nálgun sem unnið er eftir. Þeir ráðgjafar sem hafa komið að námskeiðinu hafa mikla fagþekkingu í formi reynslu og menntunar í tenglsum við börn og unglinga, eins og t.d. í sálfræði, listmeðferð, sálfræði, uppeldisfræði og félagsfræði. Undanfarin ár hefur Elísabet Lorange, kennari og list- meðferðarfræðingur, haldið utan um námskeiðið, þróun þess, leið- beinendur og samstarf við stofnanir og samtök. Tvisvar á ári hverju hittast ráð- gjafarnir til þess að fara yfir stöðuna með það að leiðarljósi að efla bæði samvinnu og þróun námskeiðsins, sem miðast út frá þörfum þeirra sem nýta sér námskeiðið. Gæðin hafa verið metin út frá aðsókn og ummælum þátttakenda og aðstand- endum þeirra, sem og þeim fagað- ilum sem hafa vísað á námskeiðið í gegnum árin. Frá upphafi hafa nokkur þúsund börn og unglingar sótt námskeiðin og eykst aðsókn ár hvert. Samstarf hefur verið við ýmis samtök, stofnanir og skóla um allt land eins og t.d. Ljósið, VáVest og Námsflokka Reykjavíkur. Metnaður okkar felst í því að sinna þörfum í samfélaginu og þá hefur ytra form námskeiðsins, eins og lengd, aldur og fleira, vikið. Er þá innihald námskeiðsins sniðið að því formi sem fyrir er, t.d. í skólum, stofnunum eða samtökum. Það er okkar mat að sjálfsstyrking sem þessi sé mikilvægt úrræði til þess að sinna þeirri sjálfsrækt sem öllum er holl og mörgum nauðsynleg. Elísabet Lorange „Vel skipulagt, faglegt, metnaðarfullt starf sem skilaði heilmiklum árangri með minn ungling. Við erum hæstánægðar mæðgurnar.“ „Námskeiðið bjargaði og styrkti mína dóttur.“ „Þetta námskeið er eitthvað sem öll börn eiga að fara á.“ „Foreldrahús er stórkostlegur staður. Dóttir mín hefur sótt 3 námskeið þar og árangurinn ótrúlegur. Hún hlakkar til í hverri viku að mæta og hitta stelpurnar. Þessi námskeið hafa kennt henni svo ótrúlega margt og fengið hana til að opna sig og vera meðvituð um sjálfa sig. Starfs- fólkið er líka svo yndislegt og býður upp á opna arma. Hún getur ekki beðið eftir næsta námskeiði.“ Kynningarblað Vímulausrar æsku – Foreldrahúss 1. tbl. – 28. árgangur – apríl 2014 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hrafndís Tekla Pétursdóttir Prentun: Landsprent Upplag: 82.000 Vímulaus æska Foreldrahús Borgartúni 6 105 Reykjavík s. 511 6160 vimulaus@vimulaus.is www.vimulaus.is Foreldrar eru fyrir- myndir. Tökum afstöðu gegn vímuefnum Kristján Guðmundsson formaður stjórnar Vímulausrar æsku 2 Vímulaus æska 17. apríl 2014 Sjálfsstyrkingarnám- skeið Foreldrahúss Sjálfsstyrkingarnámskeið Foreldrahúss var sett á laggirnar árið 2001 af Ólöfu Ástu Farestveit, þá- verandi ráðgjafa hjá samtökunum. Námskeiðið hefur verið í stöðugri þróun síðan en ætíð hefur verið stuðst við megin tilgang námskeiðsins, sem er að styrkja sjálfsmynd barna og unglinga og bæta líðan þeirra, út frá þeirra eigin forsendum. Hugmyndafræðin byggist á: Forvörn – Sjálfsskoðun – Tilfinn- ingaleg úrvinnsla Starfsfólk Foreldrahúss Hrafndís Tekla Pétursdóttir Framkvæmda- stjóri Foreldrahúss. Hrafndís Tekla er klínískur sálfræðingur að mennt. Hún hefur um áraraðir unnið að meðferðarmálum ungmenna og sinnt ráðgjöf fyrir fjölskyldur. Hrafndís Tekla hefur starfað við fjölskylduráðgjöf Foreldrahúss frá árinu 2008 og sinnir þar sálfræðiþjónustu og ráðgjöf, auk annarra úrræða. Guðbjörg Erlings- dóttir ICADC vímuefnaráð- gjafi sinnir áfengis- og vímuefnaráðgjöf í Foreldrahúsi fyrir unglinga og fjölskyldur þeirra. Hún hefur starfað í Foreldrahús frá árinu 2009 og býr að langri reynslu í með- ferðarmálum unglinga með hegðunar- og vímuefnavanda. Guðrún Ágústs- dóttir ADC vímuefnaráð- gjafi og foreldraráð- gjafi hefur unnið um áraraðir í með- ferðarmálum unglinga og fullorðna með áfengis- og fíkniefnavanda. Umsagnir um sjálfsstyrkingarnámskeið Aðalfundur Vímulausrar æsku – Foreldrahúss verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl nk. kl: 17, að Borgartúni 6. Venjuleg aðalfundarstörf. Samkvæmt lögum samtakanna hafa félagsmenn Vímulausrar æsku rétt til setu á aðalfundi með atkvæðarétt og kjörgengi hafi þeir verið á félagsskrá minnst 3 mánuði fyrir aðalfund og greitt félagsgjöld minnst 7 dögum fyrir aðalfund. Stjórn Vímulausrar æsku – Foreldrahúss. Aðalfundur Vímulausrar æsku – Foreldrahúss 30. apríl Síða 2 - ávarp formanns stjórnar: --> skipting í fyrri dálki, neðsta lína: Mig langar að höfða til ábyrgðar stjór- nmálamanna.... --> ætti að vera: Mig langar að höfða til ábyrgðar stjórn- málamanna.... Síða 2 - Aðalfundur Vímulausrar æsku - Foreldrahúss: --> skipting texta milli lína eitthvað skrýtin er það ekki? Síða 3 - V.E.R.A.: --> Skiptingin skrýtin á textanum??

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.