Þjóðlíf - 01.08.1987, Blaðsíða 6
BRÉF FRÁ LESENDUM
Vændiskonur
VÖRÐUR
Látinn. Sr. Sigurður PáLsson, vígslubiskup
á Selfossi, 86 ára að aldri. Var sóknar-
prestur í Hraungerðisprestakalli 1933-
1971, Reykhólaprestakalli 1972-77, pró-
fastur í Amesprófastsdæmi 1965- og kjör-
inn vígslubiskup Skálholtsbiskupsdæmis
1966. Sr. Sigurður var útnefndur heiðurs-
doktor við Háskóla íslands og heiðurs-
borgari Selfossbæjar.
Látin. Selma Jónsdóttir, forstöðumaður
Listasafn íslands, 69 ára að aldri. Selma
var ráðin að Listasafni íslands árið 1950,
skipuð umsjónarmaður safnsins árið 1953
og forstöðumaður þess árið 1961.
Látinn. KrLstján Kristjánsson, fyrrverandi
yfirborgarfógeti, 89 ára að aldri. Settur
borgarfógeti í Reykjavík 1943 og skipað-
ur 1944. Skipaður yfírborgarfógeti í
Reykjavík 1963 en fékk lausn 1968.
Látinn. Gunnlaugur Pétursson, fyrrver-
andi borgarritari, 74 ára að aldri. Gunn-
laugur var ráðinn borgarritari í Reykjavík
árið 1956 og gegndi því embætti til 1982.
Áður var hann forstjóri Coldwater Sea-
food Corporation í Bandaríkjunum.
Látinn. Alfreð Flóki, listamaður, 49 ára
að aldri.
Látinn. Tryggi Ófeigsson, fyrrverandi út-
gerðarmaður, 90 ára að aldri.
Greinin ykkar í síðasta hefti Þjóðlífs (júní
1987) snart mig mjög djúpt. Ég hafði ekki gert
mér grein fyrir því að vændi væri svona út-
breitt hér á landi og svo er um fleiri. Greinin
var mikið umtöluð á mínum vinnustað og mér
heyrðist flestir vera sammála því að það væri
Ijótur blettur á þjóðinni ef kjör kvenna eru
orðin þvílík að þær þurfi að selja eigin líkami
til þess að komast af.
Guðrún, Patreksfirði.
Greinin um vændi og vændiskonur þótti mér
stórgóð og í alla staði stórmerkileg. Ég held að
mjög fáir hér á landi hafi gert sér grein fyrir því
að vændi er svona mikið stundað héma - við
höfum tilhneigingu til þess að halda að ekkert
Ijótt þrífist hér á landi, en það er auðvitað
mikill misskilningur. Það er ljótt til þess að
hugsa að sumir karlmenn hér skuli geta fengið
það af sér að notfæra sér svona fjárhagsneyð
kvenna.
Ingimundur, Reykjavík.
Þakka ykkur fyrir vændisgreinina. Hún var
allt öðru vísi en ég bjóst við, mjög vel unnin og
ykkur til sóma að öllu leyti, engin sorablaða-
mennska eins og er allt of algeng hér.
Jóna, Reykjavík.
Breytingar til góðs
Ég vil óska ykkur til hamingju með breyting-
arnar allar á blaðinu ykkar. Ég hef keypt Þjóð-
líf frá upphafi og hef yfirleitt þótt blaðið gott.
Pessi breyting yfir í fréttatímarit er áreiðan-
lega til góðs og ég hlakka til að fá áfram vand-
aðar greinar í framtíðinni.
Sigurður, Kaupmannahöfn.
Ég vildi óska að þið hættuð að birta teiknaðar
myndir á forsíðu þessa annars ágæta tímarits.
Mér hafa alltaf fundist þær skelfing ljótar og
svo er um fleiri hef ég heyrt. Ég tel engan vafa
á því að þið spillið fyrir sölunni með því að
hafa teikningar en ekki Ijósmyndir eins og hin
blöðin gera. Fallegar ljósmyndir, helst af fall-
egum stúlkum, selja áreiðanlega best, og slíkar
myndir koma manni strax í gott skap!
Kristján, Reykjavík.
Utungiinarvélar?
Ég er gjörsamlega ósammála því sem kom
fram hjá Jóni Hilmari Alfreðssyni kvensjúk-
dómalækni í maí-hefti Þjóðlífs. Þar segir hann
að sér finnist koma til greina að reynt verði að
hafa áhrif á konur sem hyggja á fóstureyðingu
í þá átt að þær gangi heldur með bamið og gU'
það bamlausu fólki. Ég veit ekki hvort Jón
Hilmar áttar sig á því að hér er um að ræða
lifandi verur, því konur eru lifandi, sem sja.
heyra og finna til. Svona er ekki hægt að fara
með fólk, eins og skynlausar útungunarvélar-
Og gaman væri að fá að heyra eitthvað »
kvennahreyfingunni um þetta mál. Ég vil óska
ykkur til hamingju með blaðið; þetta er besta
blaðið á markaðnum, það eina sem hægt er að
lesa og lesa aftur sér til gamans og ffóðleiks.
Elín, Kópavogi.
10 présent hjóna
óriljandi harnlaus
: Jón Hilmar Alfraðsson
| kvensjúkdómaltoknir
6