Þjóðlíf - 01.08.1987, Blaðsíða 21
E R L E N T
Hollt eitur?
Reykingamenn fá nýja hjálp
I ÞÝSKALANDI er nú verið að gera tilraunir
með nýja aðferð sem á að hjálpa reykingafólki
v'ö að losna endanlega undan þessum hvim-
leiða ósið. Aðferðin felst í því, að límdur er
nikótínmettaður plástur á húð reykinga-
mannsins, sem gefur frá sér eitrið með reglu-
*egu millibili allan sólarhringinn. Nikótín-
magið sem reykingamaðurinn fær á sólarhring
er um 40 mg, en það svarar til þess að reyktar
séu 40 sígarettur. Nú er verið að prófa þennan
Plástur við háskólann í Múnster og binda
visindamenn miklar vonir við hann. Ef allt
gengur að óskum munu reykingamenn geta
fengið plásturinn gegn lyfseðli í næsta apóteki í
i°k þessa árs í Þýskalandi.
Aðalkosturinn við plásturinn, að sögn
visindamanna við Mnsterháskólann, er sá, að
reykingamenn eiga erfitt með að reykja þegar
Plásturinn er kominn á sinn stað. Sígarettan
mun ekki veita neina fróun, heldur þvert á
móti mun líkaminn ofmettast og viðkomandi
mun því beinlínis líða illa.
Þegar reykingamaðurinn hefur drepið í
siðustu sígarettunni getur hann límt á sig plást-
Ur, en stærð hans mun fara dagminnkandi.
SPIEGEL
Sálfræðingurinn Buchkramer, sem stendur
fyrir tilraunum með plásturinn, segir að flest-
um ætti að duga að nota plásturinn í tvær til
þrjár vikur og eftir það eigi eftirleikurinn að
reynast auðveldari.
í tilraun sem gerð hefur verið með plástur-
inn voru 131 reykingamaður fengnir til þess að
prófa notkun hans. Eftir þrjár vikur var
plásturinn tekinn af og gátu þá 70 prósent
fólksins verið með öllu án niktótíns og fundu
lítil fráhvarfseinkenni. í samanburðarhópnum
var plástur ekki notaður, og í honum fengu
tveir þriðju svo mikil fráhvarfseinkenni að þeir
skítféllu á fyrstu dögum.
Það þykir hins vegar rétt að taka það fram,
að plásturinn er engin allsherjarlausn þeirra
sem hyggjast hætta að reykja. Af þeim sem
tóku þátt í ofangreindri tilraun voru tveir
þriðju famir að reykja aftur að hálfu ári liðnu.
Það er samt betri árangur en hjá hinum sem
ekki fengu plásturinn, eða fimm prósentustig-
um færri. Ekkert getur komið í stað viljastyrks-
ins, segja vísindamennimir við Múnster-
háskólann - án hans er orrustan töpuð fyrir-
fram. Það er hins vegar unnt að létta fólki
baráttuna, t.d. með nikótíntyggjói, nikótín-
plástri og margs konar sálstyrkingarmeðferð.
En viljinn er úrslitaatriðið.
• Reykingamaður og sálfræðingur virða fyrir sér nikótínplásturinn.
jmw
/
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu viö Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-27200
21