Þjóðlíf - 01.08.1987, Blaðsíða 59
LISTIR
Framvarp tíl laga
um bættan fjárhag ríkisins
(Texti þessi er þýding ú grein eftir Jaroslaw
Hazek, þann er ritaði um góða dútann Svejk. í
t>ýðingunni er textinn lagaðurað íslenskum að-
st<eðum og örlítið breytt en bréf Hazeks var
stdað ú Herr von Bilinsky, fjármúlarúðherra
Ungversk- austurríska keisaradœmisins. Pareð
nkisvald er alltafsamt við sig, hverju nafni sem
Það nefnist og íhvaða landi sem er, þykir undir-
ntuðum textinn eiga fullt erindi til Islendinga
ánð 1987).
háttvirti herra fjármábráðherra ís-
Lnska lýðveldisins, Jón Baldvin Hannibals-
s°n, fjármálaráðuneytinu, Amarhváli, 101
Keykjavík. Rekinn áfram af djúpri ást á landi
°g þjóð, leyfir undirritaður sér, auðmjúklegast,
að leggja fyrir hæstvirtan ljármálaráðherrann
drög að frumvarpi um skatt á andlát og útfarir.
Góð afkoma útfararstofnana, líkkistusmiða,
sem og timburinnflytjenda, sem og leikni yðar
sjálfra og forvera í uppfyndingu nýrra tekju-
stofna, hefur orðið mér innblástur til að setja
n>öur á blað þessar hugmyndir til að bæta fjár-
hag nkisins með því að koma á fót Ríkiseinok-
un á dauða. Fólk deyr sífellt og ríkisvaldinu
yrði þannig tryggður stöðugur árlegur tekju-
stofn, sem á tímum hörmunga, náttúruham-
fera 0g styijalda, mundi hækka allverulega í
Samræmi við aðstæður og breytt verðlag.
^tumvarpið hljóðar svo:
Um andláts- og útfararskatt
T gr. Sérhver þegn íslenska lýðveldisins, án
állits til kynferðis, verður eftir staðreyndum
toálsins, við andlát sitt eign fjármálaráðu-
neytisins og skal greiða andlátsskatt að upp-
h®ð 20- 240 þús. krónur, eftir kringumstæð-
Urn andláts hans og útfarar.
gr. Skatturinn skal innheimtur af hinum
'átna meðan hann enn lifir, í samræmi við
akvæði 6. gr. þessara laga. Nú hefur hinn látni
ekki getað, af ástæðum sem hann réði engu
greitt andláts- og útfararskatt sinn, mega
Pá nánustu aðstandendur hans sækja um
®kkun á útreiknuðum skatti til fjármálaráðu-
neytisins. Slík umsókn skal vera skrifleg og
Stoiðist stimpilgjald, krónur 2.000.
tír. Sérhver þegn íslenska lýðveldisins, án
jálits til kynferðis eða aldurs, skal greiða and-
atsskatt. Ákvæði þessarar greinar ná einnig til
Peirra sem undanþegnir eru útfararskatti, skv.
§r- laga þessara.
‘ 8r. Sérhver þegn íslenska lýðveldisins, án
f lts til kynferðis eða aldurs, skal greiða út-
drarskatt, enda hafi viðkomandi hlotið sóma-
jáftilega greftrun. Nú er maður grafinn lifandi,
Pa mega nánustu aðstandendur sækja um eftir-
í samræmi við ákvæði 2. gr. laga þessara.
‘ 8r. Sérhver þegn íslenska lýðveldisins skal
®n,r)a útfarar- skatt, meðan hann enn lifir, í
‘lrtlræmi við ákvæði 9. gr., stafliða a) til g).
Þeir sem eru ólögráða, vanheilir á geði eða
sviptir sjálfræði, skulu undanþegnir þessum
skatti enda skulu nánustu aðstandendur þeirra
greiða í þeirra stað. Eigi þeir enga aðstand-
endur skal skatturinn greiddur af þeirri kirkju-
sókn sem þeir fæddust til.
6. gr.Innheimta skattanna skal fara fram í sam-
ræmi við kringumstæður sem hafa áhrif á upp-
hæð hans: a) af heilbrigðu fólki, b) sjúku fólki,
c) fólki með líkamsgalla, ad a) Skattyfirvöld
innheimta af heilbrigðu fólki. ad b) Viðkom-
andi læknir, siðbundinn, innheimtir af sjúku
fólki, hvar og hvenær sem er. ad c) Lögreglu-
yfirvöld innheimta skatt af fóki sem hefur
líkamsgalla.
7. gr.Andlátsskattur skal aðgreindur frá út-
fararskatti. Hafi viðkomandi skattþegn ekki
hlotið greftrun, lík hans ekki fundist, eða hann
verið talinn af, og hafi hann ekki greitt skatt
sinn meðan hann enn lifði, verður skatturinn
ekki innheimtur af nánasta aðstandanda né
heldur kirkjusókn viðkomandi, í þessari röð.
8. gr. Andlátsskattur skal greiddur án undan-
tekninga, einnig þar sem svo hagar til að við-
komandi hafi opinberlega verið talinn af og lík
hans eigi fundist.
9. gr. Við ákvörðun andláts- og útfararskatts
verði tekið mið af eftirfarandi: a) Heilbrigður
nýburi, innan við eins árs, greiði 20.000 krón-
ur, b) frá 1 til 5 ára: 40.000, c) frá 5 til 14 ára:
60.000 krónur, d) frá 14 til 20 ára: 80.000
krónur, e) frá 20 til 30 ára: 160.000 krónur, f)
frá 30 til 40 ára: 180.000 krónur g) 40 ára og
eldri: 240.000 krónur, h) heimilt er að leggja
10% álag á hver tíu ár sem skattþegn lifir
framyfir fimmtugt.
Þessar upphæðir skulu tvöfaldast þegar
skattamir greiðast saman.
10. gr. Greiðslu skv. a)-g) stafliða 9. gr. skulu
inntar af hendi með afborgunum, þó aldrei
þannig að heildargreiðala sé meiri en 240.000
krónur per útför og 240.000 krónur per and-
lát. Fyrsta afborgun skal greidd innan 8 daga
frá fæðingu bams. Vanræksla á að tilkynna
fæðingu bams varðar sekt að upphæð 10-200
þús. krónur eftir eðli málsins, eða allt að
þriggja vikna fangelsi.
11. gr. Hver sá sem vanrækir að tilkynna and-
lát sitt og/eða útför skal greiða í sekt tvöfalda
upphæð hæsta skatts, 96.000 krónur, eða ef
nauðsyn krefst, við ítrekað brot, gert að sæta
allt að 14 daga fangelsi, þar af 4 daga í strangri
einangrun.
12. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Það er ósk mín að hæstvirtur ráðherra fjár-
mála líti með vinsemd á þessar auðmjúklegu
tillögur til að bæta fjárhag ríkisins.
Ég er yðar auðmjúkur, hlýðinn þjónn.
• Eiríkur Brynjólfsson
GaUerísýningar
á döfinni
Listasafn ASÍ
í ágúst verður sýning frístundamál-
ara í Verkamannafélaginu Dags-
brún. Sú sýning er liður í þeirri við-
leitni safnsins að hlú að listsköpun
innan verkalýðshreyfingarinnar.
Kjarvaisstaðir
Árviss Kjarvalssýning stendur út
ágústmánuð í öllum sýningarsölum
nema Vestursal. Sýning Lunning
Price í Vestursal lýkur 9. ágúst; Mar-
grét Elíasdóttir sýnir í Vestursal 15.
til 30. ágúst.
Gallerí Borg
Síbreytilegt upphengi eftir hina ýmsu
listamenn yfir sumarmánuðina. 13.
til 23. ágúst verður þó haldin ein sýn-
ing - japanska listakonan Teako
Mori verður þá með sýningu í Póst-
hússtræti 9. Hún hefur áður komið til
Islands og sýndi þá í Listmunahús-
inu.
FÍM-salurinn, Garðastræti
Næstu sýningar verða í haust.
Gallerí Svart á hvítu
Engar einstakar sýningar eru áform-
aðar fyrr en í haust.
Gallerí Gangskör
Gangskörungar verða sjálfir með
sölusýningar á verkum sínum í sum-
ar, mismunandi upphengingar.
Nýlistasafnið
Þorvaldur Þorsteinsson og Hubert
Nói sýna verk sín til 9. ágúst. Am-
gunnur Ýr sýnir frá 14. til 23. ágúst.
Hallgrímur Helgason og Hjördís
Frímann sýna verk sín frá 28. ágúst
til 6. september.
59