Þjóðlíf - 01.08.1987, Qupperneq 26

Þjóðlíf - 01.08.1987, Qupperneq 26
INNLENT réttinda. Samkvæmt því var talið eðlilegt að karlmaðurinn liti á konu sína sem eign sem hann ætti bæði að vemda og skóla til, ef þess þurfti með. Þannig hafði hann jafnframt rétt til þess að “tukta" hana til, ef hún sýndi ósæmi- lega hegðun. Nýlegar kannanir frá U.S. A. sýna að enn í dag er þetta í fullu gildi, jafnt meðal karla sem kvenna. Langflestir sem spurðir voru töldu það vera í lagi að karlmaðurinn sýndi konu vald sitt, jafnvel þótt það kallaði á ofbeldi. “Þetta er einkamál hjóna og hlutir sem gerast inni á heimilunum sem öðmm kemur ekki við.“ Svo mörg vom þau orð. HVAÐ SEGJA KARLMENNIRNIR? Kvennabarátta nútímans hefur skapað nokkur nýyrði sem farið hafa misvel fyrir brjóstið á fólki. Eitt af þessum orðum er reynsluheimur kvenna. Það orð kemur að gagni hér, þegar fjalla á um mismunandi upplifun karla og kvenna á ofbeldi. Það hefur komið í ljós þegar talað er við hjón eða sambúðarfólk, sem þekkja bæði til ofbeldis, að kynin upplifa og túlka ofbeldi mjög misjafnlega. það er mjög algengt þegar kona verður fýrir ofbeldi að hún upplifi aftur og aftur þessar aðstæður og allar aðrar gerðir hennar markast af þessari reynslu. Hún á, með öðrum orðum, mjög erfitt með að líta á þetta sem sjálfsagðan hlut. Karlmenn aftur á móti virðast líta á ofbeldi sem einn þátt sem gleymist þar til næst að þeir beita ofbeldi. Þeir finna ekki til hræðslu eða öryggisleysis eins og algengt er um konur. Kirsten Skjörten, norskur afbrotafræðingur tók viðtöl við 40 karlmenn sem höfðu beitt konur ofbeldi í lengri eða skemmri tíma. Þar kemur m.a. í ljós að langflestir karlmenn virð- ast geta stjómað því hvenær þeir nota ofbeldi. “Það er ekkert vit í því að berja krakkana í skólanum," sagði einn kennari, “en það kemur engum við hvað ég geri heima hjá mér. - Ég gæti misst vinnuna ef ég leyfði mér að missa stjórn á skap mínu við bekkinn.“ En þessi sami kennari hafði ekki velt því sérstaklega fyrir sér hvað gerðist ef hann missti konuna. En senni- lega hefur það mun minni þýðingu en að missa vinnu, ef marka má þá mikilvægisröð sem karlar virðast venjulega nota. Þegar og ef karlmenn verða hræddir þegar þeir nota of- beldi, þá er það vegna þess að þeir eru hræddir við ofbeldið sjálft en ekki afleiðingar þess. Við þessar aðstæður gætu þeir leitað sér hjálpar, þeirra eigin stjóm er að fara úr böndum og það gæti orðið þeim erfitt. Það kemur einnig í ljós að mörgum karl- mönnum finnst kynferðislega æsandi þegar konur slá þá eða þegar þeir berja konur. Hins- vegar hafa þessar upplýsingar ekki komið fram hjá konum sem hafa búið við ofbeldisaðstæð- ur. Margir af þeim karlmönnum sem talað var við komu með persónulegar skýringar á því, af hverju þeir beittu konur sínar ofbeldi. “Hún æsir mig svo rosalega.“ “Ég verð að sýna henm hver það er sem hefur völdin hér.“ “Ég sé um heimilið fjárhagslega, hennar er að sjá um að það líti vel út og krakkamir séu ekki kolvit- lausir." og “Mér finnst ég fá eitthvað út úr þessu, það er fullt af tilfinningum sem koma fram.“ STJÓRN Á OFBELDI? Þegar karlmenn fóru að ræða sína ofbeldishneigð og opna sig fyrir þessu alvarlega vandamáli, kom í ljós að margir þeirra höfðu reynt að fínna leiðir til þess að koma í veg fyrir að ofbeldið brytist út heima fýrir. Þetta em nokkrar af þeim helstu semþeir töluðu um: 1. Fara úr þeim aðstæðum sem virka þannig að ofbeldi getur brotist fram (fara í göngutúr, leggja sig eða annað áh'ka). 2. Hætta eða slíta sambandi um stundarsak- ir, þar sem ofbeldi hefur ákveðið munstur og skeður aftur og aftur. Taka ofbeldið síðau alvarlega og reyna að finna aðrar leiðir til þesS að koma gremju sinni frá sér. 3. Leita sér hjálpar í því sambandi sem viðkomandi er í, t.d. fara í fjölskyldumeðferð eða einstaklingsmeðferð hjá þeim sem kunna til þeirra verka. Reyna þannig að skilja hvað það er sem skeður og af hverju ofbeldið brýst fram. | Þetta em þær niðurstöður sem Skjörtetl 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.