Þjóðlíf - 01.02.1988, Side 21
Michael Douglas, harðvítugur spákaupmaður í Wall Street Olivers Stone.
Kvikmyndir.
Þrjátíu myndir slást um toppsœtin
MENNING
Bandarísku kvikmyndarisarnir
sendu frá sér um 30 kvikmyndir í
lok síðasta árs, sem allar áttu að
taka jólamarkaðinn vestra með
trompi. Stjórnarmenn Walt
Disney áttuðu sig fljótt á að þetta
metframboð nýrra afurða Holly-
wood ylli harðvítugri samkeppni
um hylli kvikmyndhúsagesta og
flýttu frumsýningu myndarinnar
Three Men and a Baby fram í
nóvember. Skjót viðbrögð og
skjótfenginn gróði; myndin náði
toppvinsældum og halaði inn 14
miljónir dollara á tveim vikum.
Framleiðslu- og auglýsingakostnaður
Þriggja karla og ungbarns nam 23 miljónum
og því má segja að Walt Disneymenn hafi
tryggt sér nægilegt forskot í harðvítugri sam-
keppni milli óvenjumargra afþreyingar-
mynda af dýrustu gerð.
Svo djarft teflir marsipangengi Wolly-
woodiðnaðarins núna að algengt viðkvæði er
þetta: „Ef mynd nær ekki að vera meðal
fimm vinsælustu myndanna í vetur þýðir það
hrun fyrir viðkomandi mynd."
Stærstu vonirnar voru bundnar við mynd
Olivers Stone, Wall Street, (Twentieth
Century-Fox), og Empire of the Sun, nýj-
ustu mynd Stevens Spielbergs, (Warner
Brothers).
í Wall Street er Oliver Stone enn upp-
tekinn við reynsluheim sinn og sinna
(sbr.Salvador og Platoon). Faðir hans var
verðbréfamiðlari í fimmtíu ár og honum til-
einkar Stone myndina. Til að nálgast raun-
verulegt líf kauphéðna og braskara fékk
hann virtan mann úr fjármálaheimi New
York borgar, Kenneth Lipper, til að endur-
vinna handritið og gefa ráðleggingar við
vinnslu myndarinnar, sem er að miklu leyti
tekin í kauphöllinni og á skrifstofum fjárfest-
ingarbanka. Upphaflega átti myndin að
heita Græðgi og fjalla um spákaupmenn og
miðlara á Wall Street af miskunnarleysi.
Lipper neitaði þá allri samvinnu og tókst að
mýkja ímynd fjármálaheimsins við gerð
21