Þjóðlíf - 01.06.1988, Qupperneq 5

Þjóðlíf - 01.06.1988, Qupperneq 5
Leonard Cohen í Laugardalshöll.......39 Með Sykurmolunum á hljómleikum í Bretlandi............................40 Hvítasunnusöngur aldraðra ...........43 íslenskur tónlistarmaður í V - Þýska- landi. „Að vera tónlistinni trúr“, viðtal við Gunnstein Ólafsson tónlistarmann úr Kópavogi .........................44 Meira til söngs. Ný söng og kvæðabók Jónasar Árnasonar....................47 UMHVERFI Suðurskautslandið „Tilveran lítur öðruvísi út eftir dvöl á Suðurskautslandinu". Ólafur Ingólfsson heimskautafari ómyrkur í máli um umhverfisverndarmál og reynslu sína af Suðurskautslandinu....................49 Vantar hreinsibúnað á bflana. íslensk umferð með blýlausu bensíni...........54 Innbrot í loðkápuverslun. Meðal þeirra sem handteknir hafa verið fyrir aðgerðir gegn loðdýraiðnaðinum í Kanada voru þeir Coronado og Howitt, mennirnir sem sökktu hvalbátunum í Reykjavíkurhöfn ....................56 VIÐSKIPTI Fundur hinna sjö stóru í Kanada. Leið- togar stærstu iðnríkja heims á fundi .... 57 íslendingar breyta um ferðamáta .......62 Smáfréttir úr viðskiptaheiminum........65 UPPELDI Öldurót unglingsáranna. Bergþóra Gísladóttir fjallar um hin ýmsu stig unglingsáranna, „unglingavandamálið“ svokallaða..............................67 Barnalíf Fjórar síður af barnaefni, efni eftir krakkana í máli og myndum...............69 ÝMISLEGT Bflar. Ásgeir Sigurgestsson skrifar um BMW520I ..........................73 Til áskrifenda Þjóðlífs............60 Krossgáta .........................78 Leiðari Sameiginlegt framboð Enginn þarf aö fara í launkofana meö hvernig Reykjavíkurborg er stjórnaö. Greinilegur munur er á pólitískri stefnu Sjálfstæðisflokksins annars vegar og Alþýöuflokks, Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Kvennalista hins vegar. Valdhafandi flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á miklar fram- kvæmdir, byggingar, vegi og minni sameiginlega þjónustu og almennt meiri einkahyggju. Og sterka stjórnun. Hinir flokkarnir leggja aðrar áherslur; þeir vilja nota fjármagnið í meiri þjónustu og uppbyggingu fyrir börn, aldraða og almennt meiri samneyslu. Þeir vilja efla almenningssamgöngur og bókasöfn meðan Sjálfstæðisflokkurinn vill halda í við þær stofnanir. Og þannig mætti lengi telja upp atriði sem vísa til sitt hvorrar áttar; einkahyggja gegn félags- hyggju. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er stefnu sinni nokkuð trúr og hann getur boðið upp á sterkan borgarstjóra og sterka stjórnun. í skoðanakönnun sem birt er í Þjóðlífi að þessu sinni kemur glöggt fram að Sjálfstæðisflokkurinn heldur hinni hefðbundnu gífurlega sterku stöðu sinni í Reykjavík þó dregið hafi stórlega úr persónupólitískum vinsældum borgarstjórans á þeim tveimur árum sem liðin eru frá borgarstjórnarkosningunum. Þó Davíð Oddsson hafi tapað fjórðungi þess fylgis sem skoðanakannanir mældu fyrir síðustu kosn- ingar — þá er hann eftir sem áður lang sterkasti og vinsælasti kanditat sem Sjálfstæðisflokkurinn gæti boðið fram í næstu kosningum. En hnignandi vinsældir hans eru engu að síður skilaboð bæði til Sjálfstæðisflokks og hinna flokkanna í borgarstjórn. Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið, Framsóknarflokkurinn og Kvenna- listinn reka auðvitað ekki nákvæmlega sömu pólitíkina. Á þessum flokkum er blæbrigðamunur. En þegar kemur að hinum stóru línum eru þessir flokkar á einu máli í meginatriðum. Samstarf þeirra að undanförnu sýnir þetta glögg- lega. Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Þjóðlíf undirstrikar að þessir flokkar eiga mun frekar möguleika á að eiga í fullu tré við Sjálfstæðis- flokkinn ef þeir sameinuðust um framboð við næstu borgarstjórnarkosning- ar. Annars er hætta á því að atkvæði þeirra sem eru á öndverðum meiði við borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins vegi minna en atkvæði valdhafanna. Ef flokkarnir ætla sér eitthvert annað hlutverk en fórnarlambshlutverkið gagn- vart Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík eru þeir neyddir til að ganga til sam- starfs um sameiginlegt framboð og sameiginlegt borgarstjóraefni. Óskar Guðmundsson Útgefandi: Félagsútgáfan h.f. Vesturgötu 10, box 1752,121 Reykjavík, sími 621880. Stjórn Félagsútgáf- unnar: Svanur Kristjánsson, Björn Jónasson, Ásgeir Sigurgestsson, Jóhann Antonsson, Pétur Reimar- sson. Varamenn: Árni Sigurjónsson, Brynjar Guðmundsson. Framkvæmdastjóri: Ólafur Sigurðsson. Ritstjóri Þjóðlífs: Óskar Guðmundsson. Erlendir frcttaritarar: Arthúr Björgvin Bollason (Munchen), Ásgeir Friðgeirsson (London), Einar Karl Haraldsson (Stokkhólmi), Guðrún Helga Sigurðardóttir (Finnland), Ingólfur V. Gíslason (Lundi), Jón Ásgeir Sigurðsson (New Haven), Ragnar Baldursson (Tokyo). Innlendirfréttaritarar: JóhannesSigurjónsson (Húsavík), Páll Ásgeirsson (ísafjörður), Smári Geirsson (Neskaupstaður), Sveinn Helgason (Selfoss). Setn. og fl. María Sigurðardóttir. Ljósmyndir: Marissa Arason. Auglýsingastjóri: Hrannar B. Arnarsson. Auglýsingar: Héðinn Kjartansson. Skrífstof- ustjóri: Eiríkur Stephensen. Setning, umbrot, filmuvinna, prentun og bókband: Prentstofa G. Bene- diktssonar Kópavogi. Áskriftasími: 621880. Auglýsingasímar: 26450 og 28149. Dreifing: Ævar Guð- mundsson, sími 38838 og bflasími 985-23334. 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.