Þjóðlíf - 01.06.1988, Side 6
BRÉFFRÁLESENDUM
Nýjungar
„Sífellt fleiri rannsóknir á efn-
um til varnar sjúkdómum
benda til þess aö nokkur
næringarefni dragi úr tiöni
krabbameins í þekjuvef lík-
amans. Meöal þeirra eru A, C
og E vítamín, /3-karótín (for-
veri A vítamíns) og selen".
Hennekens C.H., M.J. Stampfer & W. Willett:
Channing Laboratory, Department of
Medicine, Harvard Medical School and
Brigham and Women's Hospital, and the
Department of Epidemiology, Harvard
School of Public Health, Boston, MA
Cancer Detection and Prevention 1984 7,147.
ísland í Evrópu-
bandalagi
Það er dálítið merkilegt hve mikið Þjóðlíf
hefur fjallað um Evrópubandalagið og engu
líkara en þið viljið troða okkur strax inn í það
bandalag. Vissulega finnst mér það koma til
álita en það má ekki gleyma því að Evrópu-
bandalagið er mikið bákn og hægara í að fara
en úr að komast. Samt hef ég gaman að því
hvernig þið lítið á efnahagsmál út frá
evrópsku samhengi og allt í la§i að reifa hug-
myndir um erlenda banka á Islandi eins og
þið hafið oft gert. Hins vegar vildum við
Austfirðingar og fleiri landsbyggðarmenn,
sem lifa í nálægð við undirstöðuna, að fjallað
yrði um frjálsa gjaldeyrismarkaði og ég vil
benda ykkur á að fjalla um gjaldeyrismálin í
þessu sambandi.
Héðinn
Tímamót í upp-
eldismálum
Grein Eyjólfs Kjalars um viðhorf til barna
var ágæt og til marks um þá viðhorfsbreyt-
ingu sem er að verða sem betur fer. Börnin
og uppeldismál hafa alltof lengi verið horn-
reka eða bara litið á málið út frá peningum.
Það eru núna ákveðin tímamót í uppeldis-
málum og nauðsynlegt að fjalla ítarlega um
þau.
Margrét
Allir í sömu súpu
Um leið og ég þakka fyrir úttektina á Granda
langar mig til að benda á að vel flest fyrirtæki
í sjávarútvegi eiga við hliðstæðan vanda að
etja. Ástæðurnar eru þær, að sjávarútvegur
hefur aldrei verið þannig viðurkenndur í
efnahagslífi okkar sem sú stærð sem hann er.
Öll afkoma okkar byggist á sjávarútvegi en
samt er hann látinn danka meira og minna á
hausnum. Allir í sjávarútvegi sitja í sömu
súpunni.
Konráð
Einhvers staðar í
meirihluta
Það var ágætt í síðasta Þjóðlífi að fjalla um
margvísleg jafnréttismál. Ég verð samt að
segja, að mér fannst alger óþarfi hjá ykkur að
hneykslast á því að sex konur og bara einn
karl sitja í Jafnréttisráði. Einhvers staðar
megum við vera í meirihluta og það fer vel á
því að það skuli vera í Jafnréttisráði, sem
fjallar um mál okkar kvenna sem búið hafa
við aldalanga kúgun karla.
Kona
Hollar Omega-3 fitusýrur
fyrir hjarta og æðakerfi. Ekk-
ert annaö lýsisþykkni á Is-
landi er auðugra af omega-3
fitusýrum, þ.e. 50% innihald
af EPA og DHA. Hylkin inni-
halda ekki A- og D-vítamín.
Jf/i TÓRÓ HF
Siöumúla 32. I08 Reykjavik a 686964
Líklega sá besti!