Þjóðlíf - 01.06.1988, Qupperneq 18
INNLENT
Uppstokkun framundan
Aðeins
spurning
um tíma
Umrœður í gangi
um sameiningu
þriggja dagblaða
Að undanförnu hefur hugmyndin um sam-
einingu Tímans, Alþýðubiaðsins og Þjóðvilj-
ans fengið byr undir báða vængi. Rekstrar-
örðugleikar og væntanleg sameiginleg nýting
í vinnslu ýtir undir vangaveltur og umræður
aðstandenda biaðanna. — Það er einungis
spurning um tíma hvenær blöðin sameinast,
sagði taismaður eins blaðanna.
Eitt stórt blað úr þessum þremur, blað
með 30 til 40 þúsund eintaka dreifingu, þykir
vel líklegtur kostur; það myndi þá standa í
eðlilegri samkeppnisstöðu við Morgunblað-
ið, það myndi verða mun fýsilegri auglýs-
ingamiðill en litlu blöðin eru í dag og það er
líklegra til að geta staðið utan hinna þröngu
hagsmuna flokkanna sem standa að blöðun-
um.
Hugmyndin um sameiginlegt blað hefur
fengið byr undir báða vængi í kjölfar samein-
ingar ýmissa þátta með nýju húsnæði á Ár-
túnshöfða og í kjölfar þeirra rekstrarörðug-
leika sem blöðin hafa átt við að etja að und-
anförnu. í dag hafa Alþýðublaðið
Þjóðviljinn og Tíminn með sér samvinnu um
sameiginlega prentsmiðju, dreifingu að
nokkrum hluta en þegar blöðin verða komin
upp á Ártúnshöfða munu fleiri rekstrarþætt-
ir verða sameiginlegir, því þá kemur sameig-
inleg setning til sögunnar og meir og minna
sama húsnæði fyrir ritstjórnarskrifstofur.
„Jú það er rétt að við höfum verið að ræða
þetta í framhaldi af fleiri sameiginlegum
þáttum“,sagði Kristinn Finnbogason fram-
kvæmdastjóri Tímans í spjalli við Þjóðlíf um
þetta mál. „Hann Hallur Páll framkvæmda-
stjóri Þjóðviljans var t.d. rétt í þessu að
ganga út frá mér og þetta kom til tals“.
Ýmislegt er þó talið geta orðið dragbítur
á framkvæmdir í málinu. Þannig líta margir
flokksmenn á blöðin sem persónupólitíska
eign sína og vilja ekki að markaðurinn fái
meira um ráðið en þegar er. Og talið er að
margir í flokkunum muni gera kröfur um að
ráða eftir sem áður ritstjórnarstefnu hins
nýja blaðs. Kristinn Finnbogason sagði að
hann teldi að sameiginlegt blað gæti vissu-
lega orðið sterkara en það væru mörg ljón á
veginum; styrkur blaðanna í dag væri misjafn
hvað varðaði auglýsingar og áskrifendur og
menn vildu vitanlega halda sínum hlut.
„Þetta er vissulega mikið hugleitt en er ekki
beinlínis á prjónunum í augnablikinu““ sagði
Kristinn.
„Ég hef ekki gert upp hug minn í þessu
máli", sagði Hallur Páll Jónsson á Þjóðvilj-
anum, er við inntum hann eftir sameiningu.
„Mér skilst að þetta hafi verið rætt í meira en
áratug, en það hefur ekki verið farið ofan í
saumana á þessu nýlega. Það má vel athuga
hvort ekki eigi að nota þessi tímamót, flutn-
ingana, til að skoða þetta rækilega."
„Á þessu máli eru tvær hliðar: annarsveg-
ar sú rekstrarlega og hinsvegar hin pólitíska.
Um þá síðarnefndu, hvort flokkarnir vilja
þetta get ég ekkert sagt um. Þeir sem að baki
blöðunum standa myndu missa nokkuð af
sjálfstæði sínu, en þeir myndu líka fá ýmis-
legt í staðinn. Ég er ekki í nokkrum vafa um
að eitt vinstra blað myndi hafa mun meiri
Hallur Páll Jónsson. Má vel athuga hvort
ekki ætti að nota þessi tímamót.
Kristinn Finnbogason. Þetta er vissulega
mikið hugleitt.
Ingólfur Margeirsson. Forystumenn
flokkanna hafa sjálfir sýnt fram á að
svona blaðs er þörf. Aðeins spurning um
tíma.
18