Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 19

Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 19
INNLENT - - potgeitj®", aswe*® •" Uull ritu*,rf\ try'_Zu Err*f (itoniK' W5SHK r®b rELLDU GENG/Ð &32^gssSl£i Ktngisfellingu ^ Þorgeir toenr ».i ^tassfaorg Fokdýr og fágætur skelf iskur hingað ÉS/SSsm c!%o útbreiðslu en nokkurt þeirra blaða sem um er að ræða hefur í dag, en það er ekki sjálf- gefið að þetta myndi borga sig rekstrarlega. Þú hristir ekki blað fram úr erminni einsog ekkert sé, þú sérð það t.d. á HP og NT ævintýrunum. Það yrði að undirbúa svona útgáfu mjög vel, enda eru ótal hugmyndir uppi um það hvernig þetta blað ætti að verða.“ „Þetta er bara spurning um tíma“, segir Ingólfur Margeirsson ritstjóri Alþýðublað- sins. „Við erum með á markaðnum fimm árdegisblöð og eitt síðdegisblað og miðað við fólksfjölda er það einfaldlega alltof mikið. Jafnvægið milli hægri og vinstri pressu er líka mjög brenglað. DV og Mogginn eru í áttatíu þúsund eintökum meðan hin blöðin eru í 25 til 30 þúsund eintökum samanlagt. Ég sé raunar fyrir mér að vinstri pressan sameinist um tvö blöð: eitt árdegisblað og eitt síðdegis. Það myndi líka auka jafnvægi í skoðana- myndun, menn fengju Moggann og hitt blað- ið á morgnana og sama sagan yrði með lestur síðdegisblaða.“ „Það er engin spurning að þetta yrði betra rekstrarlega, það er aðallega tilfinninga- vandamál að leggja niður meir en hálfrar aldar gömul blöð. Hvað varðar hinn póli- tíska vilja þá hafa forystumenn stjórnmála- flokkanna sjálfir sýnt að svona blaðs er þörf. Eða í hvaða blöð skrifa þeir þegar þeir vilja ná til þjóðarinnar?" Kunnáttumenn í rekstri kváðu heildar- skuldir áðurnefndra dagblaða tæpast vera undir 100 milljónum króna, en hins vegar væru eignir þeirra meira virði og með nýju blaði úr þessum rótum yrði verðmæti þeirrar eignar að sjálfsgöðu mun meira. Þeir sem fylgjandi eru hugmyndinni nefna til nokkrar ástæður; slíkt blað hefði margfalt meiri útbreiðslu en nokkurt núverandi blað- anna utan Morgunblaðsins, slíkt blað yrði mun fýsilegra en núverandi blöð sem auglýs- ingamiðill og væri einnig þannig hagkvæmari bæði fyrir neytendur og auglýsendur. Það væri einnig fýsilegra fyrir þá sem skrifa í blöð að ná til stærri lesendahóps. Þeir sem andvígir eru hugmyndinni óttast hins vegar að blaðið yrði of lokað og að flokkarnir myndu halda áfram að reyna að stjórna „sínum mönnum“ og hafa áhrif á rit- stjórnarstefnu nýja blaðsins. Á hinn bóginn er ljóst að áhrif stjórnmálamanna gætu orðið mun meiri ef þeir skrifuðu í áttina til stærri lesendahópa en þeir nú gera. Þá virðist rekstrargrundvöllur þessara þriggja dagblaða stöðugt rýrna og gengi þeirra dala. Ástæður þess kynnu að vera sí- fellt minni samsömum og eldmóður einstak- linga með flokkunum, samkeppni nýrra raf- urmiðla og almennur leiði á flokkspólitísk- um sjónarhornum. Aðstæðurnar núna bjóða því sérstaklega upp á vangaveltur og hug- myndir um sameiningu blaðanna. hh./—óg ^Míele^ Heimilistœki Míele annað er mála- miðlun. JÓHANN ÓLAFSSON 43 Sundaborg -104 Reykjavfk • Síml 688588 19

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.