Þjóðlíf - 01.06.1988, Síða 19
INNLENT
- -
potgeitj®",
aswe*®
•" Uull ritu*,rf\ try'_Zu Err*f
(itoniK'
W5SHK r®b
rELLDU GENG/Ð
&32^gssSl£i
Ktngisfellingu
^ Þorgeir toenr
».i ^tassfaorg
Fokdýr og fágætur
skelf iskur hingað
ÉS/SSsm
c!%o
útbreiðslu en nokkurt þeirra blaða sem um
er að ræða hefur í dag, en það er ekki sjálf-
gefið að þetta myndi borga sig rekstrarlega.
Þú hristir ekki blað fram úr erminni einsog
ekkert sé, þú sérð það t.d. á HP og NT
ævintýrunum. Það yrði að undirbúa svona
útgáfu mjög vel, enda eru ótal hugmyndir
uppi um það hvernig þetta blað ætti að
verða.“
„Þetta er bara spurning um tíma“, segir
Ingólfur Margeirsson ritstjóri Alþýðublað-
sins. „Við erum með á markaðnum fimm
árdegisblöð og eitt síðdegisblað og miðað við
fólksfjölda er það einfaldlega alltof mikið.
Jafnvægið milli hægri og vinstri pressu er líka
mjög brenglað. DV og Mogginn eru í áttatíu
þúsund eintökum meðan hin blöðin eru í 25
til 30 þúsund eintökum samanlagt. Ég sé
raunar fyrir mér að vinstri pressan sameinist
um tvö blöð: eitt árdegisblað og eitt síðdegis.
Það myndi líka auka jafnvægi í skoðana-
myndun, menn fengju Moggann og hitt blað-
ið á morgnana og sama sagan yrði með lestur
síðdegisblaða.“
„Það er engin spurning að þetta yrði betra
rekstrarlega, það er aðallega tilfinninga-
vandamál að leggja niður meir en hálfrar
aldar gömul blöð. Hvað varðar hinn póli-
tíska vilja þá hafa forystumenn stjórnmála-
flokkanna sjálfir sýnt að svona blaðs er þörf.
Eða í hvaða blöð skrifa þeir þegar þeir vilja
ná til þjóðarinnar?"
Kunnáttumenn í rekstri kváðu heildar-
skuldir áðurnefndra dagblaða tæpast vera
undir 100 milljónum króna, en hins vegar
væru eignir þeirra meira virði og með nýju
blaði úr þessum rótum yrði verðmæti þeirrar
eignar að sjálfsgöðu mun meira.
Þeir sem fylgjandi eru hugmyndinni nefna
til nokkrar ástæður; slíkt blað hefði margfalt
meiri útbreiðslu en nokkurt núverandi blað-
anna utan Morgunblaðsins, slíkt blað yrði
mun fýsilegra en núverandi blöð sem auglýs-
ingamiðill og væri einnig þannig hagkvæmari
bæði fyrir neytendur og auglýsendur. Það
væri einnig fýsilegra fyrir þá sem skrifa í blöð
að ná til stærri lesendahóps.
Þeir sem andvígir eru hugmyndinni óttast
hins vegar að blaðið yrði of lokað og að
flokkarnir myndu halda áfram að reyna að
stjórna „sínum mönnum“ og hafa áhrif á rit-
stjórnarstefnu nýja blaðsins. Á hinn bóginn
er ljóst að áhrif stjórnmálamanna gætu orðið
mun meiri ef þeir skrifuðu í áttina til stærri
lesendahópa en þeir nú gera.
Þá virðist rekstrargrundvöllur þessara
þriggja dagblaða stöðugt rýrna og gengi
þeirra dala. Ástæður þess kynnu að vera sí-
fellt minni samsömum og eldmóður einstak-
linga með flokkunum, samkeppni nýrra raf-
urmiðla og almennur leiði á flokkspólitísk-
um sjónarhornum. Aðstæðurnar núna bjóða
því sérstaklega upp á vangaveltur og hug-
myndir um sameiningu blaðanna.
hh./—óg
^Míele^
Heimilistœki
Míele
annað er mála-
miðlun.
JÓHANN ÓLAFSSON
43 Sundaborg -104 Reykjavfk • Síml 688588
19