Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 20
INNLENT
Leikaraskipti hjá
Þjóðleikhúsinu
Tveir leikarar hafa sagt upp
störfum hjá Þjóðleikhúsinu ,
þeir Aðalsteinn Bergdal og
Örn Árnason Meðal þeirra
sem sótt hafa um auglýstar
stöður er Pétur Einarsson fyrr-
verandi leikhússtjóri með
meiru....
Stúdentspróf á
Hornbjargi
Vitavörðurinn á Hornbjargi
Ólafur Þ. Jónsson er maður
fróðleiksþyrstur og kappgjarn.
Hann hefur verið að dunda sér
við það síðustu misseri að
lesa námsefni menntaskóla
við Fjölbrautaskólann á Sel-
fossi. í janúarmánuði sl. komu
varðskipsmenn til Hornbjargs
með innsiglaðan pappír —
það voru fjögur próf, þar af tvö
stúdentspróf við menntaskól-
ann, sem vitavörðurinn tók
undir eftirliti varðskipsmanna.
Þess munu vera dæmi að
menn hafi tekið próf í fangelsi,
en að líkindum mun þetta vera
í fyrsta skipti sem slíkt examen
er tekið í íslenskum vita. Þann-
ig varð Ólafur Þ. Jónsson
skipasmiður og vitavörður
„róttækur stúdent í sál-
fræði“..
Ámundi til
Laufdals
Sá mikli töframaður Ámundi
Ámundason sem hefur staðið
fyrir söfnunarátaki fyrir SÁÁ
síðustu misseri eftir að hafa
komið Alþýðuflokknum inn í
ríkisstjórn, mun vera á leiðinni
á nýjar slóðir. Hann mun taka
að sér ýmiss konar sérverk-
efni fyrir veitingajöfurinn Ólaf
Laufdal og þá einkum og sér í
lacji „eina fimm störnu hótelið
á Islandi sem ekki býður upp á
gistingu" — Hótel ísland....
Ingólf af
stallinum....
Enn eitt félagið, áhugmenn
um endurskoðun sagnfræð-
innar, hefur barist fyrir því að
styttan af Ingólfi Arnarsyni
verði fjarlægð af Arnarhóli á
þeiri forsendu að hann hafi
alls ekki verið fyrsti lands-
námsmaðurinn. í stað þeirrar
styttu vilja endurskoðunar-
sinnarnir að verði reist stytta
af Náttfara og hans gersku frú.
Hyggjast þeir efna til landsöfn-
unar af þessu tilefni og kveð-
ast munu berjast hart gegn
Ingólfi hinum norska. Innan fé-
lagsins eru uppi hugmyndir
um að leyfa Ingólfi að vera við
ráðhúsið, og eigi styttan að
heita „fyrsti ráðríki Reykvík-
ingurinn". Gert verði ráð fyrir
fleiri ráðríkum Reykvíkingum í
hlaðvarpa hússins...
Slagur hjá SÁÁ
Á aðalfundi SÁÁ á dögunum
sló í brýnu milli fylkinga. Kosið
var á milli tveggja manna í for-
mennsku; Þórarins Tyrfings-
sonar og Ingimars H. Ingi-
marssonar. Maður sem þátt
tók í slagnum kvað Styrktarfé-
lag Vogs, marga úr „grasrót“
samtakanna og „Austurstræt-
isliðið“ hafa staðið á bakvið
Þórarinn en með Ingimar hafi
staðið fráfarandi stjórn og
stuðningslið hennar, þ.á.m.
margir Heimdellingar. Meðal
þeirra sem annars féllu við
stjórnarkjörið voru Jónas
Kristjánsson ritstjóri, Árni Sig-
fússon borgarfulltrúi og Ómar
Ragnarsson sjónvarpsmaður
en meðal þeirra sem náðu
kjöri voru Ragnar Aðalsteins-
son lögmaður, Árni Samúels-
son (bíóhúsaeigandi), Bjarni
Ólafsson (í íshöllinni), Björn
Einarsson (hjá Vernd), Óli Kr.
Sigurðsson (í BP), Grettir
Pálsson (meðferðarfulltrúi) og
Jón Magnússon lögfræðingur.
Kærir íslendinga
Það nýjasta sem heyrst hefur
um afleiðingar hvalveiðiráð-
stefnunnar sem haldin var í
Reykjavík sl. vetur er frá Kan-
ada. Paul Watson góðkunn-
ingi íslendinga ætlar sér að
kæra íslensk stjórnvöld fyrir
Mannréttindadómstólnum í
Haag fyrir að hafa vísað sér úr
landi á grundvelli yfirlýsinga
sinna....
W
Nýjung á Islandi
CLASSICA gróðurhús — glerskáli formfagurt
— sterkbyggt — dönsk hönnun
Allar upplýsingar veitir:
Heildversl. SMIÐSHÚS, E. Sigurjónsdóttir,
225 Bessastaðahreppur, sími 51800.
Versl. Akurvík, Baldur og Óskar sf.,
Akureyri. Fellabæ, Egilsstöðum.
20