Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 23
INNLENT
Mótmæli hvalfriðunarmanna hjá stærsta fiskkaupanda í Bandaríkjunum, Long John Silver.
íslenskur hvalfriðunarmaður hlekkjaður við byssukjaftinn á hvalbáti.
í hættu
Strútsaðferðin
„Við höfum notað strútsaðferðina í þessu
máli í þeirri von að mótmælin annað hvort
sofni út af eða að stjórnvöld leggi niður stefn-
una án frekari óþæginda", sagði forstöðu-
maður stórfyrirtækis í útflutningi í samtali
við Þjóðlíf. Heimildamenn í viðskiptalífinu
segja að stórfyrirtækin og stofnanirnar hafi
með sér ákveðið samráð en það sé ákveðin
pólitík hjá þeim að láta ekki neina opinbera
gagnrýni á hvalveiðistefnuna í ljósi, því opin-
berar yfirlýsingar í þá veru, gætu virkað sem
hvati á mótmælendur erlendis. Hins vegar sé
þeim mun meira unnið á bak við tjöldin.
Pá hefur verið sagt að einn stærsti fisk-
kaupandi vestra hafi kippt að sér höndum í
viðskiptum við íslendinga vegna áróðursher-
ferðar Grænfriðunga. Fagmenn f útflutn-
ingsgeiranum segja einnig að hluta af verð-
fallinu megi hiklaust rekja til hvalveiðistefn-
unnar, þó ekki sé hægt að segja til um hversu
mikið hinn neikvæði áróður vegi í verð-
myndun á fiskafurðum.
Einfaldlega brandari
Samkvæmt heimildum Pjóðlífs er fjöldi
manna sem vinnur eingöngu við það að
skaða viðskiptahagsmuni íslendinga vegna
hvalveiðanna — bæði í Bandaríkjunum og í
Evrópu. Ríkisstjórnin hefur brugðist þannig
við að ráða auglýsingastofu til gagnróðurs,
en heimildamenn Þjóðlífs í Bandaríkjunum
segja slíka starfsemi vera aðhlátursefni, og
þjóni ekki öðrum tilgangi en peningaaustri
úr ríkissjóði Islands. „Að ætla sér að svara
með einni lítt þekktri auglýsingastofu áróðri
frá 500 náttúruverndarsamtökum með tíu
milljón manna meðlimafjölda — er einfald-
lega brandari", sagði háttsettur starfsmaður
Greenpeace í Bandaríkjunum.
23