Þjóðlíf - 01.06.1988, Side 24

Þjóðlíf - 01.06.1988, Side 24
INNLENT Heimildamenn í Bandaríkjunum segja að herferðinni gegn hvalveiðum Islendinga hafi verið hætt árið 1983, þegar alþingi samþykkti stöðvun hvalveiða. Herferðin hafi ekki byrj- að aftur fyrr en á sl. ári þegar ljóst varð að íslensk stjórnvöld ætluðu að hundsa sam- þykktir Alþjóðahvalveiðiráðsins frá 1987 um bann við hvalveiðum og samþykkt alþingis þar um. Þess vegna sé síður en svo hægt að tala um árangursleysi baráttunnar gegn hval- veiðum íslendinga, segja þessir heimildar- menn. Pungin í áróðrinum muni aukast á næstunni þar til íslendingar hætti veiðunum. Þetta mál verði ekki leyst á ríkisstjórnar- plani. Flestir viðmælendur í útflutningsatvinnu- vegum kváðu hættuna vera þá að íslensk stjórnvöld væru að fórna meiri hagsmunum fyrir minni með stefnu sinni. Þeir kváðu þá jákvæðu umfjöllun sem íslendingar og allt sem íslenskt er, hefur fengið með frásögnum af íþróttaafrekum, bókmenntaafrekum, skáksigrum og Reagan — Gorbasjoff fund- inum, hafa haft mjög jákvæð áhrif á markað- inn. En með stefnu stjórnvalda í hvalveiði- málum og neikvæðri umfjöllun af þeim ástæðum erlendis væri þjóðin á góðri leið með að glata árangrinum af jákvæðu umfjöll- uninni. Óskar Guðmundsson Vinnum í kyrrþey „Sölumiðstöðin hefur varað íslensk stjórn- völd frá upphafi við afleiðingum þessarar stefnu. Það bæri að taka meiri hagsmuni fram yfir minni og þeirri stefnu hefur SH fylgt allan tírnann", sagði Friðrik Pálsson forstjóri SH er Þjóðlíf leitaði eftir stefnu SH. „Við vinnum ekkert opinberlega í þessu máli og það sem við munum gera, gerum við í kyrrþey“, sagði Friðrik og varðist frekari fregna af málinu. -óg Flugleiðir hafa áhyggjur — Við höfum orðið varir við mótmæli er- lendis en það hafa engin tilmæli verið send frá Flugleiðum um breytta stefnu stjórnvalda í hvalveiðimálum, en auðvitað hefur fyrir- tækið áhyggjur af því að svona nokkuð gæti skaðað hagsmuni fyrirtækisins. Þess vegna var bréfið skrifað í fyrra, sagði Bogi Ágústs- son blaðafulltrúi Flugleiða. Hann kvað fyrir- tækið líta svo á, að það hefði í eitt skipti fyrir öll tjáð stjórnvöldum áhyggjur sínar vegna mótmælaaðgerða erlendis. -óg dociut sólarplast IVOFALI og ÞREFALT FYRIR 6RÓÐURHÚS OG SÓLSKÁLA Góð einangrun. doCAjt hefur 50% betri einangrun en einfalt gler og er helmingi léttara. cJocnjt er úr acryl plastgleri sem hefur meiri veðrunarþol en önnur plastefni. cJocnjt er einfalt í uppsetningu með álprófílum. U Háborq hf 1^1 Skútuvogi 4 ■ !r S: 82140 & 680380 PLAST í PLÖTUM ER OKKAR SÉRGREIN

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.