Þjóðlíf - 01.06.1988, Síða 26

Þjóðlíf - 01.06.1988, Síða 26
ERLENT fyrsta lagi þykir hann einstrengingslegur í afstöðu sinni til siðgæðismála og siðmenn- ingar. Hann hefur t.d. oft lýst því yfir að popp- og rokktónlist sé ekki mannbætandi. Hann gerir einnig afdráttarlausan greinar- mun á æðri og óæðri menningu. í öðru lagi þykir mörgum hann vera fullur valdhroka. í því sambandi hefur oftast verið sagt frá því að þegar hann var varaformaður útvarpsráðs BBC krafðist hann eitt sinn þess að tiltekinn sjónvarpsþáttur um Norður-írland yrði ekki sýndur. Þegar yfir lauk viðurkenndi hann að hann hefði ekki séð viðkomandi þátt. Það er einmitt þessi lítilsvirðing sem Sir Rees-Mogg sýndi sjálfræði fréttamanna og frjálsri fjölmiðlun, sem vakið hefur ótta margra um að Siðgæðisráðið fari að ritskoða efni. Aðspurður svaraði Sir Rees-Mogg því til að ekki kæmi til þess að ráðið skoðaði einstaka þætti áður en þeir yrðu sendir út eða að það bannaði útsendingu þeirra, nema ljósvakafyrirtækin sýndu lítinn áhuga á sam- starfi. Þessi orð hans eru túlkuð á þann veg að ef hann komist ekki að viðunandi sam- komulagi við stöðvarnar um hlutverk, valdssvið og starfsreglur ráðsins, muni hann tilkynna forsætisráðherra það að hann telji að ráðið geti ekki gegnt hlutverki sínu án heimildar til ritskoðunar af einhverju tagi. Margir telja líklegt að við þær aðstæður verði ráðinu veitt ritskoðunarvald. Talsmönnum allra ljósvakamiðla í Bret- landi þykir þetta hið versta mál og stjórnar- andstaðan hefur fordæmt stofnun ráðsins. Stjórnarandstöðunni þykir sú hætta yfirvof- andi að þegar stofnun á borð við Siðgæðis- ráðið hafi ritskoðunarkrumlu á hálsi miðl- anna geti henni verið beitt í fleiri tilfellum en þegar um gróft ofbeldi eða klám verði að ræða. Hún segir að erfitt geti reynst að greina á milli siðlegs og ósiðlegs og að póli- tískt efni geti verið bannað á forsendum sið- leysis. í hugum Breta er þessi möguleiki mun raunverulegri en fyrir marga aðra vegna ástandsins á Norður-írlandi. Bresk stjórnvöld hafa á undanförnum ár- um aukið bein afskipti sín af útsendu út- varps- og sjónvarpsefni. Má í því sambandi nefna að innanríkisráðherra hefur á síðustu þremur árum komið í veg fyrir sýningar á þremur þáttum um Norður-írland og einum um breska njósnagervitunglið Sircon. Stjórnarandstaðan óttast því að með stofnun ráðsins séu yfirvöld að tryggja sér enn frekari áhrif á það hvaða efni ljósvakamiðlarnir sendi út. Það verður athyglisvert að fylgjast með því hvernig þetta Siðgæðisráð þróast og hvort samkomulag tekst milli þessarar stjórnskip- uðu stofnunar og frjálsra fjölmiðla. Einnig verður gaman að sjá hvort ráðið verður gapastokkur ritfrelsis eða raunverulegt tæki í baráttunni gegn mannskemmandi áhrifum sjónvarps og útvarps. Ásgeir Friðgeirsson/Lundúnum Lenin ræðir málin 1919 Lenín í endurskoðun í allri þeirri upprifjun og vangaveltum sem nú eiga sér stað í Sovétríkjunum, mati og endurmati á mönnum og málefn- um , er nú komið að sjálfum hugmynda- föðurnum, Lenín. Eins og kunnugt er hafa flestir leiðtog- ar Sovétríkjanna þeir Brésnjeff, Krústjoff og Stalín orðið harkalega fyrir barðinu á sögurýni í Sovétríkjunum, og deilur stað- ið um hlut þessara manna í þjóðfélags- glæpum og — þróuninni síðustu 70 árin. Yfirleitt hafa menn þó orðið sammála í opinberri umræðu að af þessum 70 árum hafi þau fyrstu fimm, stjórnarár Leníns verið hafin yfir gagnrýni. En nýjustu fregnir herma að Lenín sé líka orðinn umdeildur eystra. Valdhafarnir halda þó áfram að vitna til almátka Leníns til réttlætingar gjörð- um sínum og miðstjórn flokksins vitnaði til hans í síðasta mánuði; grunvallarreglur Lenins hefðu verið brotnar en flokkurinn vildi útiloka slíkt í framtíðinni. Dæmi: Lenín fordæmdi myndun skoðanahópa innan flokksins en var jafnframt harka- lega andvígur hvers konar ofsóknum gegn félögum sem voru á annarri skoðun en flokkslínunni, sagði í áliti miðstjórnar- innar. Þetta mun eiga að tákna t.d. það, að Boris Jelzin, sem missti völd sín sl. vetur megi ekki safna hóp skoðana- bræðra í kringum sig, en hann verði held- ur ekki settur í fangelsi. Svipuðum tilgangi átti að þjóna upp- rifjun miðstjórnarinnar í Lenín um „ öll völd til ráðanna“ (sovétanna ), — að í ráðunum hefði Lenín séð pólitíska blómgun sósíalismans og þess vegna ættu þau að draga til sín pólitískt vald í efna- hagsmálum, menningarmálum, félags- málum o.s. frv. Þetta átti að vera með tilvísun til þess að þegar ráðin tækju ákvarðanir um þjóðernismál í Armeníu, þá gæti flokkurinn ekki einfaldlega hnekkt slíkri ákvörðun. Hins vegar hefur þetta „ráða vald“, sovétavald ekki verið marktækt allt frá októberbyltingunni 1918 nema þegar flokknum, ríkisvaldinu þóknaðist. Þannig hefur mönnum tekist að túlka Lenín út og suður, með og á móti en ævinlega með því að halda í heiðri nafni hans. Og nú er farið að tala um lýðræðis- byltingu, Peestrojku í nafni hans. En nú er einnig komið að því að hreyfa gagnrýni á Lenín. Jurij Afanasjev prófessor sem kosinn var á flokksþingið, en flokksvélin reyndi að hafna, segir: „Lenín er engan veginn neitt tabú. Ég tel að sagnfræðing- ar okkar ættu að skoða Lenín í viðara samhengi en hingað til; líf hans og verk, tilaðmynda hinn efagjarna, mótsagna- kennda Lenín. Lem'n sem var oft á villigöt- um, loks Lenín sem leitaði að svörum og fann ekki, ekki síst á síðustu æviárum“., Og það er vitnað til þess að Lenín hafi á dánarbeði sínum kveinkað sér undan Sta- lín og sakað sjálfan sig um mistök: „Ég er hræddur um að ég hafi gerst sekur við verkalýð Rússlands..“ I maíhefti tímaritsins „Nowy mir“ segir þjóðhagfræðingurinn Seljunin að útrým- ing kúlakanna, sé ekki Stalín að kennna, heldur megi rekja til stríðskommúnisma Leníns 1918. Mörg fleiri dæmi eru til- greind sem sýna fram á að sovéskir fræði- menn eru teknir að hrófla við helgimynd- inni. Spiegel/—óg 26

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.