Þjóðlíf - 01.06.1988, Side 27

Þjóðlíf - 01.06.1988, Side 27
ERLENT Vestur-Þýskaland Hægri öfgamönnum eykst fylgi Vaxandi fylgi hægri sinnaðra öfgahópa í V- Þýskalandi þykir benda til meinsemda í þjóð- félaginu sem snúast þurfi gegn. í marsmánuði síðastliðnum voru haldnar fylkiskosningar í syðsta fylki Vestur-Þýska- lands, Baden-Wúrtemberg. í þessu fylki hafa hægrimenn, Kristilegir demókratar, ávallt átt miklu fylgi að fagna og voru þessar kosningar engin undantekning frá því. Héldu Kristilegir hreinum meirihluta í fylk- inu þrátt fyrir að þeir töpuðu þó nokkru fyigi- Mesta athygli í þessum fylkiskosningum vakti hins vegar fylgisaukning ýmissa smá- flokka yst á hægri væng stjórnmálanna. Hlutu þessir flokkar samtals tæplega fimm prósent atkvæða og má með nokkrum sanni telja þá „sigurvegara kosninganna". En lítum fyrst á úrslit kosninganna 20. mars síðastliðinn: Kristilegir demókratar (CDU) hlutu 49,1 prósent atkvæða (töpuðu 2,8 prósentum), frjálsir demókratar (FDP) hlutu 5,9 prósent (töpuðu 1,3 prósentum), jafnaðarmenn (SPD) 32 prósent (töpuðu 0,4 prósentum) og græningjar 7,9 prósent (töp- uðu 0,1). Smáflokkarnir fengu því 5,1 prós- ent atkvæða nú en einungis hálft prósent við kosningarnar 1984. Þeir smáflokkar sem nú unnu til sín mest fylgi eru öfgasinnaðir hægriflokkar, Stærstur þeirra er Þjóðernissinnaflokkurinn, NPD (Nationale Partei Deutschlands) með 2,1 prósent. Nafn þess flokks þykir minna óþægilega á nasistaflokkinn gamla, NSDAP. Annar mjög hægrisinnaður flokkur sem hlaut fylgi í Baden-Wúrtemberg nú heitir Repu- biikaner eða Lýðveldisflokkurinn. Hlaut hann um eitt prósent atkvæða. Þriðji hægri- sinnaði smáflokkurinn, sem hlaut nokkurn stuðning í Baden-Wúrtemberg var flokkur borgaralega sinnaðra náttúruverndar- manna, ÖDP (Ökologische Partei Deut- schlands). Hlaut hann tæpt eitt og hálft prós- ent atkvæða. Ymsar ástæður hafa verið nefndar fyrir fylgisaukningu hinna hægrisinnuðu smá- flokka. Talið er víst, að þeir hafi notið stuðn- ings bænda, sem löngum hafa fylgt kristileg- um demókrötum að málum, en eru nú óánægðir með sinn hlut í þjóðfélaginu. Sömuleiðis er atvinnuleysi nefnt sem skýring á fylgisaukningu smáflokkanna. Og síðast en ekki síst: Útlendingahatur. Á stefnuskrá Þjóðernissinnaflokksins í Baden-Wúrtemberg voru eftirfarandi mál: Algjör stöðvun á straumi erlends verkafólks til landsins, aldrei kosningaréttur handa út- lendingum, engir flóttamenn frá Asíu, minni hjálp við þróunarlöndin og gagnrýni á land- búnaðarpólitík Evrópubandalagsins. Talsmenn Þjóðernissinna fullyrða sí og æ, að þeir eigi ekkert skylt við nasista. Ekki vilja þó allir trúa því. Andstaða við útlend- ingahatur er gífurleg í Vestur-Þýskalandi, sérstaklega meðal ungs fólks. Fjölfaldaðir hafa verið límmiðar eins og „Alle sind Aus- lander — fast úberall" (Allir eru útlendingar — næstum því allsstaðar) og seldir í stórum upplögum. Lothar Spáth, forsætisráðherra Baden- Wurtemberg. Hélt meirihlutanum en tapaði fylgi til öfgamanna. I sjónvarpsumræðum eftir kosningarnar í Baden-Wúrtemberg vildi Helmut Kohl, kanslari landsins lítið gera úr árangri öfga- mannanna. Hann benti á, eins og þýskir hægrimenn hafa áður gert, að öfgamenn eigi sér enn meiri stuðning annarsstaðar, til dæmis í Frakklandi. Samt getur hann ekki hrakið þá staðreynd, að öfgamönnum virðist stöðugt vaxa ásmegin á ný í Vestur-Þýska- landi. í fylkiskosningum í Bayern 1986 hlutu öfgamenn 3 prósent, í Bremen á síðasta ári hlutu þeir 3,4 prósent. Þetta þykir mörgum alvarlegt umhugsunarefni, og nægir sú stað- reynd ein til að vekja ugg með mönnum, að 1928 — einungis fimm árum fyrir valdatöku sína — hafði Þýski nasistaflokkurinn enn aðeins 2,2 prósent atkvæða. Auðvitað óttast það enginn, að hægri öfgamenn eigi eftir að seilast til verulegra áhrifa í Vestur-Þýskalandi á næstu árum. Hins vegar þykir ýmsum sem árangur þeirra nú sé alvarleg vísbending um hugsanlegar meinsemdir í þjóðfélaginu, sem vinna verði á — og það fyrr en síðar. Einar Heimisson / Freiburg PIZZA BIGGA BAR pantaðu. Sendum heim á c.a. 30. mínútum Við höfum yfir 100 tegundir af pizzum og getum gert fleiri ef þú vilt. Veldu þína eigin pizzu — þú átt það skilið. BIGGA BAR Tryggvagötu 18 (viö Akraborgarplaniö). Sími 28060. 27

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.