Þjóðlíf - 01.06.1988, Side 37
MENNING
Valkyrjan Sigríður aö drekka mjöð úr horni á Ásatrúarþingi í Berlín.
inni er að snúa hugum þeirra og hjörtum til
trúar á keltnesk og forngermönsk goð. Goð-
in eiga að vísa veginn til nýs og betra lífs, þar
sem streita, þrældómur og angist eru úr sög-
unni og lífsnautnin ríkir ein.
Margar af þeim hugmyndum, sem hér
hafa verið nefndar, koma fyrir í stefnuskrám
annarra þýskra heiðingjahópa. I fyrsta hefti
tímaritsins „Der Hain“ (Goðalundur), sem
nýlega hóf göngu sína í Þýskalandi, reifar
einn af skriffinnum ritsins skyldleika og sér-
kenni einstakra heiðinna hópa. Þar kemur
fram að heiðingjar líta á boðskap sinn sem
mikilvægt innlegg í baráttu náttúruverndar-
manna, auk þess sem þeir eru fylgjandi rétt-
indabaráttu kvenna. Sá slagur snýst jú öðr-
um þræði um valdastofnanir kirkjunnar og
það karlaveldi, sem þar ræður lögum og lof-
um. Það kemur fram í sömu grein, að höf-
undur lítur á Armani sem einn merkasta ása-
trúarsöfnuðinn í Þýskalandi. Hann þakkar
Armönum fyrir að hafa gefið út hina um-
deildu þýðingu Simrocks á Eddukvæðum að
nýju og hrósar þeim fyrir að hafa vakið ýmsa
forngermanska trúarsiði til nýs lífs. í ljósi
þess að Eddukvæði eru snar þáttur í trúarlífi
Armana og annarra þýskra heiðingja,
dreymdi þá löngum um að heimsækja landið,
þar sem kvæðin voru færð í letur.
Nú er þessi draumur að rætast, því um það
leyti sem þessi grein gengur á þrykk verða
Armanir að undibúa sólstöðuhátíð á íslandi.
Sigrún „stórmeistari" sagðist að vonum
r
KRISTINA
NÝTT HÓTEL
við alþjóðaflugvöllinn
Holtsgötu 47-49 Njarðvík
l Símar 92-14444 - 92-15550 j
OÐ SAMVINNA GERIR
GÆFUMUNINN
Ef þú þarft að vinna mikið við Ijósritun bygg-
ist árangurinn ágóðri samvinnuvió Ijósritunarvélina
þina. Ernokkuð sem þreytirþig meir en tióar bilanir
og löng bið eftir viðgerðarmanni? Með Nashua
Ijósritunarvél erþessum áhyggjum af þér létt. Lág
bilanatíðni Nashua og fljót og örugg viógeröar-
þjónusta Optima gerir gæfumuninn.
SuðurlandsbrautlO - Simi84900
37