Þjóðlíf - 01.06.1988, Qupperneq 52

Þjóðlíf - 01.06.1988, Qupperneq 52
hluta kemur til með að valda stóraukinni tíðni frumubreytinga í húð manna, sem lýsir sér síðan í húðkrabbameini. Húðkrabba- mein, sem er bráðdrepandi, á eftir að stór- aukast á næstu áratugum, sérstaklega á Norðurlöndum þar sem menn eru ekki vanir sólböðum. Útfjólubláir geislar eru t.d. not- aðir í dag í matvælaiðnaði til sótthreinsunar. Akurnesingar leystu vandamálið með svart- bakaskít og sóttkveikjur í drykkjarvatni með því að geisla vatnið úr Berjadalsá með út- fjólubláum geislum og drekka nú sér að skaðlausu blöndu af vatni og fugladriti. Út- fjólubláir geislar geta þannig verið nytsamir, en það liggur í augum uppi að það ógnar öllu lífi á jörðinni að verða fyrir ótakmarkaðri geislun af þessu tagi. Maður þorir ekki að hugsa það til enda hvað gæti gerst ef útfjólu- blá geislun dræpi þörungagróður heimshaf- anna. Annar hlutur er vaxandi mengun koltví- sýrings (C02). Koltvísýringur hefur þá eig- inleika að endurvarpa infrarauðri geislun. Geislajafnvægi jarðar byggir á því að jafn- vægi sé milli inngeislunar frá sólinni og út- geislun jarðar. Ef þetta jafnvægi raskast hitn- ar eða kólnar á jörðinni. Iðnaðarmengun, sem felur í sér að kolefni, s.s. olíu og bensíni er brennt, eykur magn koltvísýrings í and- rúmsloftinu. Koltvísýringurinn síðan hindr- ar kælingu jarðar, þ.e. útgeislun infrarauðra geisla. Pað er því hætta á að jörðin hitni. Þó það geti verið þægilegt að hugsa til þess þegar norðanstormur beljar fyrir utan glugg- ann að ef til vill eigi eftir að hlýna verulega, þá getur slíkt haft mjög afdrifaríkar afleið- ingar. Veðurfarskerfi geta flutst til, blómleg landbúnaðarsvæði orðið eyðimerkur og yfir- borð heimshafanna gæti hækkað vegna bráðnunar jökla og hitaþenslu sjávar. Þetta gæti þýtt að stór þéttbýlissvæði færu undir Borgarís er mjög algeng- ur umhverfis Suðurskauts- landið. Að jafnaði eru borg- arísjakar 200-300 m þykkir, og geta orðið mjög stórir. Sá stærsti sem mælst hefur var 32.000 ferkílómetrar, eða næstum fjórum sinnum stærri að flatarmáli en sjálf- ur Vatnajökuil! Á síðasta ári losnaði stór borgarísjaki úr Weddel ísbreiðunni og sigldi af stað mót Suðuratl- antshafi. Á ísjakanum sátu tvær rannsóknarstöðvar sem þurfti að yfirgefa í snar- hasti. UMHVERFI sjó. Ein afleiðing væri hrun fasteignaverðs í miðborg Reykjavíkur, önnur væri að lönd eins og Bangladesh með yfir 100 milljón íbúa færu á kaf meira og minna. — Er heimsendir sem sagt yfirvofandi? — Þetta hljómar trúlega eins og einhver heimsendaspá, en menn verða einfaldlega að horfast í augu við umfang mengunarvand- ans. Það er einn hlutur að í dag geta menn eytt heiminum 15 sinnum með kjarnorku- vopnastríði, en hitt er að verða æ augljósara að menn eru á góðri leið með að útrýma lífi á jörðinni með mengun og tillitsleysi við nátt- úruna. Náttúruvernd verður mál málanna í framtíðinni — það ættu stjórnmálaflokkarn- ir að hafa hugfast ef þeir ætla sér einhverja framtíð. — Ekki er nú bjart yfir þessu hjá þér. Verða menn þunglyndir á Suðurskautsland- inu? — Ekki held ég nú sé hægt að setja það upp sem neina almenna reglu. Hitt er annað mál að áreiðanlega kemur enginn samur maður frá langri dvöl þarna. Maður fær að mörgu leyti nýtt sjónarhorn á tilveruna. Það sem virtist svo mikilvægt áður verður óend- anlega smátt og lítilsvirði meðan aðrir þættir tilverunnar öðlast nýtt mikilvægi. Þessi hreina og ósnortna náttúra opnar augu manns fyrir því hvernig maðurinn hefur leik- ið umhverfi sitt. Evrópa er á góðri leið með að kafna í eigin skít og það sem verra er, það virðist vera fárra áhyggjuefni. Náttúrufar þarna er líka ofsafengið og maður verður sér meðvitaður um smæð sína þegar slíkir stor- mar geisa dögum saman að ekkert er unnt að gera annað en halda sér. Þó maður sé Islend- ingur og telji sig þekkja ósnerta náttúru og geta spjarað sig hvernig sem viðrar, þá fyllist maður heilagleika gagnvart náttúruöflunum þar suður frá. Að liggja í tjaldi þegar fárviðri geisar og verða vitni að því að 40 kg. þungir steinar fjúki, já þá verður manni fullljóst hver ræður ferðinni. Dýralíf svæðisins er líka mikil opinberun. Rándýr eru þarna engin og dýr svæðisins hafa enn ekki lært að óttast manninn. Mör- gæsir eru þarna í milljónatali og voru hinar forvitnustu um hagi þessara aðkomufugla en sjálfsagt hafa þær einfaldlega litið á okkur sem óvanalega stórar gæsir. Ein þeirra tók sig meira að segja til og vappaði til mín og lagði steinvölu við fætur mér en þannig fara þeirra bónorð fram. Ég neyddist nú til að hafna boðinu og sjálfsagt situr hún nú á klettasyllu, starir til hafs og tregar sína stóru ást, gæsina miklu að norðan. — Ætlar þú að láta hana bíða lengi? — Ja ég fer aftur á Suðurskautslandið næsta vetur með stórum sænskum leiðangri og hver veit nema enn frekara framhald verði á rannsóknunum. Svo mikið er víst að ég vona það, sagði Ólafur Ingólfsson að lok- um. Lundi 1988/Ingólfur V. Gíslason Suðurskautið sa Sjö ríki gera landakröfur á Suðurskauts- landinu. 1959 tókst ríkisstjórn Bandaríkj- anna að fá til ráðstefnu þær þjóðir er tveimur árum áður, á alþjóða jarðeðlis- fræðiárinu voru virkar á Suðurskauts- landinu. Þar voru lögð drög að hinum merka Suðurskautssáttmála er síðan var staðfestur 1961. Samkvæmt honum féllust allar þær þjóðir er landakröfur gera á að „frysta" þær. Hér er rétt að hafa í huga að hvorugt risaveldanna gera kröfur á Suð- urskautslandið né viðurkenna kröfur annarra þjóða. Auk landakröfufrystingar er sáttmálinn mikilvægur frá tveim öðr- um sjónarhornum. Annarsvegar gerir hann svæðið alþjóðlegt og tryggir réttinn til frjálsrar rannsóknarstarfsemi á svæð- inu. Hins vegar er svæðið laust við hertól og er stærsta kjarnorkuvopnalausa svæði jarðar. Sérstaða Suðurskautssáttmálans felst í að það er í raun eini alþjóðasáttmálinn sem setur vísindarannsóknir í fyrsta sæti en spyrnir fótum gegn efnahagslegum og hernaðarlegum (stórpólitískum) hags- 52
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.