Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 69
BARNALÍF
Þessa mynd teiknaði Kári Ævarsson, Svalbarði 7 Hafnarfirði
Frábœrar
viðtökur!
Fjöldi krakka sendi myndir, brandara og
sögur sem snertur kisur eins og sjá má í
Barnalífi núna. Því miöur tekst okkur ekki
að birta frá öllum aö þessu sinni en þaö
kemur meira í næsta blaði. Viö höldum
áfram aö hvetja krakka til að senda okkur
sögur, brandara og teikningar. Og af
hverju ekki aö snúa sér núna að hundum
og hestum ? Sendið barnalífi efni:
Þjóðlíf
Vesturgötu 10
Pósthólf 1752
121 Reykjavík
Viggó
Einu sinni átti ég kött sem hét Viggó.
Hann var svartur með margar hvítar
doppur.
Viggó var líka með hvítt Ijós í rófunni.
Viggó var fjörugur köttur, alltaf á harða
spani.
Ég man eftir einu atviki þegar svartur,
stór hundur var á rölti á götunni. Þá kem-
ur Viggó og þeir fara í eltingarleik. Það
var nú meiri leikurinn. Þeir æddu um alla
garða og hlupu um allt. Hundurinn var
svo hræddur. Loksins hætti Viggó elting-
arleiknum enda orðinn þreyttur og eflaust
hundurinn líka. Eitt sumarið þurftum við
að gefa hann. Hann fór í sveit. (Sönn
saga).
Kristín Jóhannesdóttir, 12 ára
Mýrarseli 6
109 Reykjavík.
Mjallhvít
Ég heiti Mjallhvít og er mjallahvít.
Hoo. Ég er svo falleg. Ég hugsa að allir strákarnir (karlkynskettir) séu skotnir í mér. Ég
geng alltaf með stóra rauðaslaufu. Éghef eignast 9 kettlinga. í fyrra skiptið 5 kettlinga en í
það seinna 4 kettlinga. Þeir fóru allir frá mér (snökt, snökt) nema einn sem heiti Bangsi.
Jæja, núna er ég að fara að sofa. (Mal, mal).
Ásbjörnsdóttir
Hafnargötu 30 233 Höfnum.
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, 13 ára
Mýrarseli 6 109 Reykjavík.
69