Þjóðlíf - 01.06.1988, Blaðsíða 70
BARNALÍF
Brandur
Einu sinni var köttur sem hét Brandur.
Hann var bröndóttur og var ofsalega góö-
ur köttur.
Einu sinni kom Brandur heim með mús
og fugl sem hann setti beint fyrir framan
Eyrúnu sem átti Brand. Og einu sinni
haföi Brandur lent í slagsmálum við aöra
ketti og fékk stórt sár á bakið. Þá fór
Eyrún með hann til dýralæknis. Þá
hreinsaði læknirinn bara sárið og lét Ey-
rúnu hafa krem til að bera á það. Og í einn
eitt skiptið týndist hann í fimm daga.
Þegar hann var búinn að vera týndur í
tvo, setti Eyrún auglýsingu í búð og það
kom í Ijós að Brandur hafði verið hjá góðri
konu sem hafði gefið honum að borða og
svoleiðis. En núna er Brandur orðinn svo
gamall að hann nennir ekki öðru en að
sofa og borða.
Hildur Ólafsdóttir, 10 ára
Kópavogsbraut 70
200 Kópavogi.
'°ítnr ÓLfs \ ,
3Jon AoP^°3^r<xut fo
0 íra
■d^ y^L..t» si>
4^
Pétur Ólafsson, 8 ára Kópavogsbraut 70 Kópavogi teiknaði
þessa ástföngnu læðu.
Guðmundur Ingi Bjarnason, 8 ára Kóngsbakka 12109 Reykja-
vík teiknaði þessa mynd.
Krummi
Ég á kött sem heitir Hrafn. Hann er nú oftast kallaður Krummi.
Einu sinni þegar ég kom heim var Krummi horfinn. Pabbi, mamma, ég og Þórey systir mín
fórum út í garö að leita og þá sáum við kattarspor, fyrir neðan svalirnar okkar, sem lágu út úr
garðinum.
Krummi hafði stokkið niður í garðinn frá fjórðu hæð.
Þetta er ástæðan fyrir því að kötturinn okkar hefur bara 8 líf þegar aðrir kettir hafa 9 líf.
Krummi er nú samt byrjaður að veiða flugur á svalahandriðinu.
Brynhildur Ómarsdóttir, 9 ára
Laugarnesvvegi 94
105 Reykjavík.
70