Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 71

Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 71
BARNALÍF Ég heiti Depill. Ég er 1 árs og er hér meö vini mínum, honum Tóta, sem er aðeins 20 daga gamall. Viö erum hér að fá okkur aö lepja mjólk sem hún Eva Dís færði okkur. Við ætlum síðan að fara að sofa í litla kisurúminu okkar. Það er úr litlum pappakassa með svampi í botninum. Nú erum við orðnir syfjaðir og bjóðum góða nótt. Eva Dís Björgvinsdóttir, 8 ára Reynibergi 1 Hafnarfirði. Magnús og Sigurborg í sveitinni hjá afa mínum og ömmu eru tveir kettir. Þeir heita Magnús og Sigur- borg. Magnúsi finnst gott að láta klappa sér. En aftur á móti er Sigurborg ekki eins hrifin af því. Og þegar Magnús liggur í leti er Sigurborg oft í mjölgeymslunni að veiða mýs. Mér finnst Sigurborg fallegri heldur en Magnús. Þó er hann Magnús fallegur og ekki má gleyma því hve blíður hann er og góður. En nú hef ég ekkert meira að segja um þau skötuhjúin svo ég segi bara bless, bless. Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir, Krókatúni 16 Akranesi. Kisa Bella Einu sinni átti ég læðu sem hét Kisa Bella. Einu sinni fór ég til Reykjavíkur. Þá eignaðist kisa fimm kettlinga. Ég fékk ekki að sjá þá, því að það var búið að svæfa þá alla. Nokkrum tíma síðar eignaðist kisa aftur kettling. Það var þannig að kisa var mjög óróleg. Hún vildi að ég kæmi til sín. Afi fór með henni. Eftir smástund kom afi og sagði mér að koma fram. Þegar ég kom fram kom kisa á móti mér með kettling. Kettlingurinn var karlkyns og ég skírði hann Felix. Nú er Kisa Bella dáin, en Felix líður vel. Jóhanna Þóroddsdóttir, 10 ára Laxárbakki, Mývatnssveit 660 Reykjahlíð. I Kári Einarsson, 10ára Bárugötu35 teiknaði þessa mynd. Brandari Á bæ einum var köttur sem malaði svo hátt að í hvert skipti sem einhver klappaði honum hljóp bóndinn út að gá hvort ein- hver væri að fikta í traktornum. 71

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.