Þjóðlíf - 01.06.1988, Page 75
BÍLAR
stuttu máli sú að frumgerðin leit dagsins ljós
1972, réttum áratug síðar kom síðan önnur
útgáfa, án grundvallarbreytinga þó, en í jan-
úar s.l. afhjúpaði BMW nýja Fimmu sem er
verulega breytt frá fyrirrennurum sínum.
Hún kemur í kjölfar og byggir á nýrri hönnun
700-línunnar sem kom á markað breytt og
bætt fyrir rúmu ári. Þannig mun ætlunin að
halda áfram og er von á endurhannaðri 300-
gerð áður en langt um líður.
Oft er það svo þegar nýjar gerðir koma
fram að einungis útliti og minniháttar atrið-
um í búnaði hefur verið breytt, þ.e.a.s. gerð
á bílnum eins konar andlitslyfting í samræmi
við framvindu tímans. Þannig var Fimmunni
breytt 1982, en nú er um að ræða endurskap-
aðan bíl, bæði hvað varðar útlit og tæknileg
atriði. Og maður sér það best núna, þegar
augum er rennt eftir ávölum línum nýja bfls-
ins, að fyrirrennarinn var satt að segja orðinn
dálítið gamaldags í útliti.
NÝJA FIMMAN ER BOÐIN í ÝMSUM ÚT-
GÁFUM, eins og þær fyrri. Sú ódýrasta heitir
520i (i-ið stendur fyrir “injection" og merkir
að bíllinn er búinn beinni, tölvustýrðri bens-
íninnspýtingu), þá kemur 525i, 530i og 535i.
Tveir síðustu tölustafirnir standa fyrir vélar-
stærð. í 52Öi er sprengirými vélarinnar um 2
lítrar (hestöfl eru 129), í 525^ það um 2.5
lítrar (hestöfl 170!), í 530i er sprengirýmið
um 3 lítrar (hestöfl 188!!) og í 535i um 3.5
lítrar (hestöflin 220!!!). Auk þess má fá
524td, sem er búinn díselvél með forþjöppu
(td stendur fyrir turbo-diesel). Sú vél er 115
hestöfl.
Það eru ekki einungis vélarstærðirnar sem
greina á milli þessara bfla. Búnaður sem er
innifalinn í verðinu er einnig meiri eða full-
komnari eftir því sem vélin er stærri. T.d. má
nefna að í 525i bflnum eru öflugri hemlar að
framan, sterkari gírkassi, fullkomnara mæla-
borð og tölvubúnaður sem gefur upplýsingar
í mælaborðinu þegar viðhalds er þörf eða
bilanir verða, sem og ABShemlakerfi. Þaö
þýðir að hjól læsast ekki þegar hemlað er af
krafti og bfllinn lætur að stjórn. Afar mikil-
vægur öryggisbúnaður sem á eftir að verða
almennur í bflum innan fárra ára. En það
þarf sem sagt að kaupa 525i-útgáfuna til þess
að slíkur búnaður sé sjálfkrafa í bflnum. Hins
vegar er hægt að sérpanta þetta í 520i-bflinn,
en það kostar rúm 100 þús.
Verðmunur er umtalsverður eftir því
hvaða útgáfa af Fimmunni er keypt. 520i-
bfllinn kostar um 1300 þús. kr. með 5 gíra
beinskiptingu (tæpum 100 þús. kr. meira
með 4ra þrepa sjálfskiptingu), en 525i-útgáf-
an kostar rúmri hálfri milljón meira! (verðin
eru frá því fyrir gengisfellinguna í maí) Þar er
ekki einungis um að ræða mun öflugri vél og
fullkomnari búnað, 525i fær á sig hlutfalls-
lega hærri aðflutningsgjöld vegna stærra
rúmtaks vélar.
NÝJA FIMMAN ER, sem fyrr segir, veru-
lega breytt frá fyrirrennara sínum. Það gildir
bæði um útlit og tæknilega hönnun. Bíllinn
er 10 cm lengri og 5 cm breiðari en sá gamli
og línurnar eru ávalari en áður. Fleygformið
einkennir heildarsvipinn eins og nú tíðkast æ
meir, þ.e. bfllinn er lágur að framanverðu til
að kljúfa loftið sem best og hækkar síðan
eftir því sem aftar dregur.
Þá er ýmislegt fleira gert til að draga úr
loftmótstöðu, enda er viðnámsstuðullinn
með því lægsta sem gerist (0.30-0.32 eftir
gerðum). Þessar aðgerðir gera að verkum að
bfllinn klýfur loftið afar vel og orka vélarinn-
ar og eldsneytið nýtast betur sem því nemur.
Auk þess á þetta sinn þátt í því að hann er
mjög hljóðlátur; vindgnauð heyrist tæpast
þegar allar rúður eru uppi.
Krafan um að bfll kljúfi loftið vel dregur úr
svigrúmi hönnuða til að láta gamminn geisa
hvað útlit varðar. Þeim eru í rauninni mjög
þröngar skorður settar. En hönnuðir BMW
hafa að mínu mati komist afar vel frá þessu
verki og teiknað feikn fallegan bfl. Það finnst
öðrum vegfarendum greinilega líka; ég fann
það glöggt að nýja Fimman vakti mikla at-
hygli þar sem ég fór um þá daga sem ég hafði
hana undir höndum. Ekki síst sá ég glamp-
ann í augum þeirra sem voru á eldri BMW-
bflum og létu sig dreyma um að endurnýja.
En myndirnar sýna þetta betur.
í TÆKNILEGU TILLITI er um ýmsar
breytingar að ræða, m.a. í fjöðrunar- og
hjólabúnaði. Ég sé ekki ástæðu til að rekja
þær breytingar í smáatriðum, umfram það
sem fram kemur hér á undan og eftir; þeir
sem vilja kynna sér þá hlið málsins sérstak-
lega geta snúið sér til umboðsins og fengið í
hendur ítarlegan upplýsingabækling þar að
lútandi.
Eitt er það þó sem vekur sérstaka forvitni í
þessu sambandi og gefur tóninn um búnað
sem verður ugglaust almennur í bflum á
næstu árum. Það er lítil tölva sem fylgist með
og skráir ýmislegt sem er að gerast í vél bfls-
ins og augu og eyru greina ekki. Slíkur bún-
aður er kominn í nokkrar bflategundir sem
seldar eru hér á landi, þ.á.m. nýju BMW-
gerðirnar, og hefur þann tilgang að greina
bilanir og þörf fyrir viðhald. Búnaðurinn
gefur vissar upplýsingar í mælaborði bflsins,
en nýtist síðan enn frekar þegar bfllinn er
tengdur eftirlitstölvu á bifreiðaverkstæðum.
Hún les úr þeim gögnum sem örtölvan í bfln-
um sjálfum hefur safnað. Þannig verður bil-
analeit mun markvissari og öruggari. ís-
lenskir bifvélavirkjar eru þegar farnir að til-
einka sér þessa nýju tækni.
Enn fullkomnari tölvubúnaður af þessu
tagi er í dýrari útgáfum af Fimmunni (sem og
700-línunni) og má þá lesa á skjá í mælaborði
bflsins texta sem tilgreinir hvað hefur bilað
eða þarfnast viðhalds, ekki einungis í vél-
inni. Þetta á þó enn sem komið er einungis
við um vissa þætti í bflnum.
Hætt er við að bifvélavirkjar hefðu hlegið
dátt fyrir svo sem 20 árum hefði þeim verið
sagt að brátt kæmi að því að bflar segðu frá
því sjálfir hvað væri að þeim.
ÞAÐ VAR HREINN UNAÐUR að hafa
nýju Fimmuna undir höndum eina helgi fyrir
skömmu. Þetta var 520i-útgáfan, sjálfskipt.
Við áttum saman eina 300 km. og fórum
víða, bæði þjóðlega spotta með þvottabretti
og hvörfum, sem og alþjóðleg hlemmiskeið.
Og bar nánast ekki skugga á samvistirnar.
Satt að segja mátti bflaskriffinnur Þjóðlífs
75