Þjóðlíf - 01.02.1991, Qupperneq 26
ERLENT
Seinheppinn
varaforseti
Varaforseti Bandaríkjanna,
Dan Quayle 43 ára, átti enn
einn afleikinn skömmu fyrir
heimsókn til hersveita
Bandaríkjanna við Persaflóa.
Varaforsetinn heimsótti ill-
ræmdan golfklúbb, Cypress
Point Club og sló þar í nokkr-
ar kúlur í heiðurskyni við
meðlimi. Klúbbur þessi var
rekinn úrgolffélagasambandi
Bandaríkjanna (að vísu ekki
fyrr en á sl. ári) og talinn van-
hæfur til að standa fyrir alvöru
mótum. Ástæðan er sú að
einungis hvítir menn mega
vera í klúbbnum. Gagnrýn-
endur létu strax til sín heyra
og bentu á að fjórðungur
bandarísku hermannanna viö
Persaflóa hefði ekki átt
möguleika á að keppa við
Konunglegir
radíóamatörar
Juan Carlos 51 árs konungur
Spánar reynir að koma að
gagni með tómstundastarfi
sínu. Hans hátign er nefni-
lega meðal 25 þúsund
áhugamanna um fjarskipti,
sem geta fylgst með Persa-
flóastríðinu í gegnum radíó-
tæki sín. Konungurinn hlustar
og talar á 30 metra bylgu-
lengd og notar ensku. Hann
lætur þó aldrei í Ijósi hver
hann er í rauninni, — ekki
heldur þegar hann talar við
aðra konunglega radíó-
áhugamenn eins og Hassan
kóng í Marokkó eða Hussein
Jórdaníukonung um viðburði
í stríðinu...
(Spiegel/óg)
Varaforsetinn reiðir til höggs.
Quayle í golfi vegna hörunds-
litar. Auk þess hefðu 11% liðs-
manna hersveitanna til við-
bótar verið útilokuð, en kon-
um er meinaður aðgangur að
þessum klúbbi. Málið þótti allt
dæmigert fyrir Quayle...
(Spiegel/óg)
Óvinsæll knatt-
spyrnukappi
Hin þrítuga fótboltastjarna
Maradona var kjörinn „hatað-
asti maður ársins 1990“ af
lesendum ítalska blaðsins La
Republica. Og nú hefur Vati-
kanið bæst í hóp gagnrýn-
enda. Erkikaþólska blaðið
Osservatore Romano segir
Maradona fyrirlitlega per-
sónu og slæma fyrirmynd
fyrir ítalska æsku vegna
„blygðunarlausrar glysgirni
og lélegs smekks“, sem
móðgi hvern þann sem hafi
lítið eða ekkert handa á milli.
Blaðið nefndi sem dæmi um
þetta þegar Diego Maradona
lét baka demantshringi í
brúðartertu sína þegar hann
gifti sig 1989 og hégómlega
umgengni hans við lúxusbíla.
Meira að segja vísaði þjálfari
Maradona hjá Napolí ekki
þessari gagnrýni á bug, held-
ur kvaðst af öllu hjarta vera
sammála...
(Spiegel/óg)
Lina
þjáningarnar
Eins og tíðkast í styrjöldum er
farið að senda skemmtikrafta
„að heirnan" til að skemmta
vestrænum hermönnum við
Persaflóa. Marta Sanchez 24
ára gömul spænsk popp-
stjarna fór í slíka ferð og vakti
meira en fögnuð hjá her-
mönnum sem þar eru á þrem-
ur spænskum herskipum. Til
nokkurs óróa kom á skipun-
um, en söngkonan afsakaði
sig. í sjónvarpsviðtali kvaðst
hún hafa fengið það verkefni
hjá spænska varnarmálaráð-
herranum „að hífa upp móra-
linn eða eitthvað annaö hjá
hermönnunum". Spænska
þingkonan Cristina Almeida
gagnrýndi þessa söngferð
bæði fyrir og eftir og kvað
hana virka eins og verið væri
að deila síðasta olíudropan-
um, og það væri ekki hægt að
lina þjáningarnar með Ijóða-
söng...
26 ÞJÓÐLÍF