Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 111
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 111
Það var mikið um dýrðir í Hörpu þegar FKA; Félag kvenna í atvinnu -
lífinu, afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda
fólks úr atvinnu lífinu. FKA fagnar fimmtán ára afmæli á þessu ári.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður félagsins, ávarpaði gesti og bauð
þá velkomna en að því búnu afhenti Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskipta ráðherra þrjár viðurkenningar.
FKA-verðlaunin
veisla fka í Hörpu:
Liv Bergþórsdóttir
hlaut FKA-viðurkenn-
inguna:
átti ekki far-
síma
Liv Bergþórsdóttir, for -
stjóri Nova, hlaut aðal -
viður kenn ingu FKA í ár.
Undir stjórn henn ar hefur
félagið vaxið ört á hörð-
um samkeppnismark aði
og var Liv kosin Markaðs -
mað ur ársins 2012. Hún
hafði sjálf aldrei átt far-
síma þegar hún hóf störf í
símageiranum.
Nova hefur náð nærri þriðj
ungi af markaði í farsímaþjón
ustu hér á landi og fyrir
tæpu ári hlaut Nova hæstu
eink unn allra fyrirtækja í Ís
lensku ánægjuvoginni þriðja
árið í röð. Ennfremur mældust
viðskiptavinir félags ins þeir
ánægðustu í farsímaþjónustu
á Íslandi fjórða árið í röð. Þá
var Nova í öðru sæti í VR
könnun ársins yfir ánægju
starfsmanna í flokki stærri
fyrirtækja. Það var tilnefnt
til markaðsverðlauna ársins
2013 í þriðja skipti en Nova
var markaðsfyrirtæki ársins
2009. Í dag vinna um 140
manns hjá fyrirtækinu – á
„stærsta skemmtistað í heimi“,
eins og slagorðið hljómar.
Liv hóf þakkarræðu sína í
Hörpu á því að mæla með
nýju lögunum um kynjakvóta
í stjórnum fyrirtækja. „Ég hef
fengið mörg tækifæri til að
vaxa í starfi og sum þeirra
hafa einmitt komið til vegna
þess að ég er kona og vegna
þessarar lagasetningar,“
sagði hún. Frjáls verslun hitti
Liv daginn eftir þar sem hún
sagðist fjarri því að hafa verið
á þessari skoðun áður fyrr.
Þegar norska símafyrirtækið
Telio auglýsti eftir konu í stjórn
var Liv mjög efins um að
sækja um þótt í auglýsing unni
væri verið að leita eftir stjórn
ar manni með reynslu á hennar
sviði. „Ég man að það truflaði
mig mikið að sérstaklega
væri auglýst eftir kvenkyns
stjórnar manni,“ rifjar hún upp.
Á þeim tímapunkti þurfti
símafyrirtækið Telio að ráða
tvo nýja stjórnarmenn og út
af kynjakvótanum varð a.m.k.
annar þeirra að vera kona.
„Ég spurði mig seinna af
hverju ég hefði verið svona
ofsa lega upptekin af því að
vera konan sem var ráðin. Af
hverju var eitthvað verra að
vera stelpan sem var ráðin en
ekki strákurinn?“ spyr Liv og
telur að þetta sé nauðsynleg
leið og gagnleg til að auka
fjölbreytni í stjórnum landsins,
öllum til hagsældar, og senni
lega þyrfti að viðhalda regl
unni í þrjú til fimm ár.
„Í stað þess að neita þessari
aðferð ákvað ég frekar að nýta
tækifærin til að sýna sjálfri mér
og öðrum að ég ætti fullt erindi
í hópinn,“ segir hún. „Maður
sér hve hægt hlutirnir breytast
og eitthvað róttæk ara þarf
að gerast þegar maður hefur
öðlast reynslu í viðskiptalífinu.
Þetta snýst um að breyta öllu
kerfinu, ekki bara fjölga konum
í stjórnum,“ leggur hún áherslu
á. Bendir einnig á þá staðreynd
að í fyrra voru konur aðeins 10
pró s ent framkvæmdastjóra og
for stjóra 300 stærstu fyrirtækja
landsins.
átti ekki farsíma
Ferillinn á fjarskiptamarkaði
hófst árið 1998. „Ég planaði
ekki neinn frama á þessu
sviði, en í geirum þar sem
er mikill vöxtur og miklar
breyt ingar eru líka oft mikil
tæki færi. Ég bjó í London frá
19941995 og fylgdist með
því þegar farsímaæðið var að
byrja. Ég hafði sjálf aldrei átt
farsíma þegar ég hóf störf í
símageiranum en upphafs
árin hjá Tali voru gríðarlega
Mynd: Geir ólafsson
LEGGJA ALLT UNdIR
Um FKA sem veitti henni viðurkenningu ársins segir Liv
að sér finnist heiður að fá viðurkenningu frá þessum
félags skap í atvinnulífinu. „Þarna eru að stórum hluta
konur sem hafa margar lagt allt sitt undir í stofnun eigin
fyrirtækis. Ég er meira eins og atvinnustjórnandi og hef
sjálf ekki tekið mikla áhættu.“