Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 20
20 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
En á My Opera var ekkert sérstakt að græða
annað en að síðan var vettvangur fólks sem
hafði áhuga á hugbúnaðinum frá Óperu, leit
aði þar upplýsinga og las blogg hinna áköf
ustu í hópi Óperusinna. En síðunni fylgdu
eng ar beinar tekjur og í fyrra var svo komið
að stjórn fyrirtækisins ákvað að leggja My
Opera niður.
„Það viðhorf varð ofan á í stjórninni að meta
gróða og tap á einstökum þáttum starf sem
inn ar og þar kom My Opera út í mínus,“ segir
Jón. Hann ákvað hins vegar með nokkrum
gömlum starfsmönnum Óperu að halda
þess ari starfsemi áfram, endurgera hana og
nútíma væða undir merkjum vivaldi.net.
Tuttugu menn í vinnu
Núna eru um tuttugu launaðir starfsmenn
hjá Vivaldi. Sex þeirra hafa starfsaðstöðu í
frumkvöðlasetrinu úti á Seltjarnarnesi en
menn eru líka í vinnu hjá Vivaldi í Noregi,
Banda ríkjunum, Svíþjóð, Rússlandi og Tékk
landi. Við þennan hóp launaðra starfs manna
bætast svo áhugamenn víða um heim.
Tengsla netið á upphaf sitt í Óperu.
Á Vivaldi er tölvupóstur, spjallsíður og blogg.
Þar er hægt að deila myndum með vinum,
skiptast á skoðunum og leita aðstoðar í
tækni legum vanda.
„Það er mikið í pakkanum,“ segir Jón.
En þetta er ekkert nýtt. Fjölmargir bjóða
hlið stæða þjónustu. Fyrirtæki eins og Google
og Microsoft drottna á þessu sviði og græða vel
á að selja auglýsendum aðgang að leyndar
málum fólks.
„Ég er vanur að fást við sterkari keppinauta.
Þannig var það í Óperu. Vivaldi er ekki eina
þjónustan af þessu tagi,“ segir Jón.
Samskiptin ekki til sölu
En hvaða vopn hefur Jón þá í baráttunni við
risana? Hann bendir á friðhelgi einkalífsins.
Engir „sniffarar“ hafa aðgang að Vivaldi.
Enginn auglýsandi getur verið með nefið niðri
í skrif um notendanna.
Þetta þýðir að Vivaldi aflar ekki tekna
með því að selja auglýsendum aðgang að
sam skiptum á síðunni. Allir sem notað hafa
sam skiptasíður og póstforrit síðari ára sjá sér
sniðnar auglýsingar sem koma inn á síðurnar.
Auglýsingarnar ráðast af innihaldinu í sam
skiptunum á síðunum. Tölvuforrit les það
sem fram fer og fylgist með áhugamálum og
viðfangsefnum út frá vissum lykilorðum. Bréf
til bankans þýðir t.d. að ótal tilboð um lán frá
misáreiðanlegum lánveitendum streyma inn
á síðuna.
En Vivaldi þarf líka tekjur til að lifa af. Jón
segir að enn sem komið er fjármagni hann
verkefnið. Hugmyndir um tekjuöflun eru enn
ómótaðar. Einn möguleiki er að selja aug
lý singar eða pláss fyrir tengla á síðunni. Jón
legg ur áherslu á að slík sala væri óháð inni
haldi þess sem notendur senda sín á milli.
Orðsporið á netinu
Sjálf síðan er sprottin upp úr umhverfi þar
sem áhuginn beinist að tölvum og netinu. Það
eru „tölvunördar“ sem hafa búið þetta til og
þeir eru notendurnir.
„Þetta er kröfuharður hópur. Síðan á að
vera nógu góð fyrir þá kröfuhörðu og ætti
þá að vera það fyrir alla aðra líka,“ segir
Jón. Kynningarstarfið byggist á orðsporinu
einu. Jón vonast til að þessi síða spyrjist vel
út; að einn segi öðrum frá og þannig stækki
notendahópurinn smátt og smátt.
„Þetta er eina aðferðin sem ég kann.
Þann ig spurðist Ópera líka út. Þolinmæði er
lykilorðið. Þetta tekur tíma,“ segir Jón.
Hann viðurkennir líka að í þessu felist áhætta.
Samkeppni er hörð og keppinautarnir sterkir:
Hann leggur fé í hugmynd upp á von og óvon.
„Alltaf þegar byrjað er á nýrri hugmynd er
augljóst að allt getur tapast. Við verðum bara
að sjá hvert þessi vinna leiðir okkur,“ segir
Jón í Vivaldi.
Ég er kominn að upphafinu aftur,“ segir Jón Stephenson von Tetzchner um tilurð sam
skiptasíðunnar vivaldi.net.
„Ég er vanur að fást við
sterka keppinauta.“
fruMkVöðull
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
53
85
1
0
/2
01
3
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
■ Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
■ Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
■ Afsláttur sem Icelandair býður er veittur af fargjöldum á því farrými sem fyrirtæki óska hverju sinni.
■ Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING?
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair
njóta þess í hagkvæmari rekstri,
betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
Vertu með okkur