Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 133
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 133
endur. Í tilviki gyðinga, a.m.k.
strangtrúaðra, þarf sér stak lega að
huga að matar æðinu en gyðingar
hafa allt frá tímum Ísraelsríkis
til forna lagt mikla áherslu á
hreinlæti og meðferð matvæla
sem hefur þróast yfir í trúarlegan
hreinleika.
Það borgar sig ekki að gera
ráð fyrir því að Bandaríkjamenn
þekki kaldhæðni eða gálga húm
or Íslendinga. Bandarískur gestur
verður ánægður með king size
rúm og jafnvel auka kodda. Í stuttu
máli má segja að Bandaríkjamenn
vilji bros, um hyggjusemi, mikla
þjónustu lund, mikið af fróðleik og
góðar útskýringar.
Kínverjar, japanir og
indverjar
Kínverjar eru almennt ekki sleipir
í ensku og því mikilvægt að tala
hægt og skýrt og átta sig á að í
þeirra tungumáli er hvorki til já
eða nei í sama skilningi og hjá
okkur. Þegar Kínverja er afhentur
bækl ingur eða nafnspjald skal
gera það með báðum höndum.
Þannig sýnum við viðkomandi
virðingu. Þeir vilja margir sam
skonar mat og þeir eru vanir
heima. Enskukunnátta Japana er
al mennt ekki mikil og því gegnir
leiðsögumaðurinn lykilhlutverki.
Ef baðkar fylgir ekki herberginu
er gott að láta þá vita fyrirfram.
Sumir nota grímur til að smita
ekki aðra eða smitast sjálfir. Jap
anir eru afar kurteisir og er ekki
siður hjá þeim að biðja um eitt
og annað og því mikilvægt að
spyrja þá reglulega hvort allt sé í
lagi, hvort eitthvað vanti o.s.frv.
Almennt er ráðlagt að spyrja
Indverja um matarvenjur þeirra.
Á ferðalögum vilja þeir helst
indverskan mat, sem er ekki víða
á boðstólum á Íslandi. Um 80%
indversku þjóðarinnar eru hind ú ar
sem borða alls ekki nauta kjöt.
Margir hindúar eru auk þess á
græn metisfæði.
Nánari upplýsingar um bókina
Þjónusta og þjóðerni er að finna
á slóðinni www.gerumbetur.is
Finna má mörg áhuga
verð dæmi um alls
sautján þjóðir í bók
inni og þar á meðal
Íslendinga. Hafa verð
ur í huga að þótt allar
þjóðir hafi sín sérkenni
eru einstakl ingar ekki
steyptir í sama mót.
Margrét Reynisdóttir. „Bókin er hugsuð sem handbók fyrir alla sem taka á móti erlendum gestum og á að geta nýst
flestum á eins aðgengilegu máli og hægt er.“
Óvenjumargir Ísraelar
sem hingað koma eru
græn metis neytendur.
kínverjar eru almennt
ekki sleipir í ensku og því
mikil vægt að tala
hægt og skýrt.
frakkar, Spánverjar og
Ítalir eru þjóðir sem
gaman er að gefa góðan
mat. matartíminn hjá
þeim er líka seinna að
deginum en hjá öðrum.
Rússar vilja frekar nota
peninga en kreditkort.
að borgar sig ekki að
gera ráð fyrir því að
Bandaríkjamenn þekki
kaldhæðni eða gálga
húmor Íslendinga.
Þjóðverjar eru með ná
kvæmnina og skipu lagn
inguna á hreinu og kunna
vel við að farið sé eftir
skipulagi.
Í stuttu máli má segja
að Bandaríkjamenn vilji
bros, umhyggjusemi,
mikla þjónustulund,
mikið af fróðleik og góðar
útskýringar.
Þjóðverjar eru upp til
hópa snyrtipinnar sem
skila hótelherbergjum og
bílaleigubílum hreinum
og snyrtilegum.
Norðmenn vilja fræðast
um allt sem er öðruvísi
hér en í Noregi og þá
sérstaklega jarðfræðina.
Á morgunverðarborði
frakka má ekki vanta
eitthvað sætt með
kaffinu.