Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 62
62 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
Gylfi með
540 milljónir á ári
G
ylfi Þór Sigurðsson,
knattspyrnumaður
hjá Tottenham og
íþróttamaður ársins,
er launahæsti
knatt spyrnumaður
Íslands með um
540 milljónir króna
í árstekjur. Næstur honum kemur Aron Einar
Gunnarsson, Cardiff og fyrirliði íslenska
lands liðsins, með um 120 milljónir króna í
árslaun. Kolbeinn Sigþórsson, Ajax, er með
um 100 milljónir á ári. Algeng laun íslenskra
knattspyrnumanna á Norðurlöndunum liggja
á bilinu 20 til 40 milljónir á ári. Þetta eru laun
án bónusa og annarra aukatekna.
Laun íslensku leikmannanna eru samt smá
munir miðað við það sem þeir bestu hafa í
laun en Messi og Cristiano Ronaldo eru með
um 2,7 milljarða króna í laun á ári.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal,
sem hefur haldið nokkuð fast um budduna,
hefur margoft bent á að laun knattspyrnu
manna séu komin langt út yfir öll mörk
vel sæmis.
Sú var tíðin að knattspyrnan var íþrótt
verka manna á Bretlandseyjum. Lágt miðaverð
á kappleiki varð til þess að knattspyrnan var
lengi vel eina íþróttagreinin sem þeir höfðu
ráð á að fylgjast með. Á síðustu árum hefur
miðaverð á leiki rokið upp úr öllu valdi í sam
ræmi við hækkandi laun knatt spyrnu manna –
sem eru fyrir löngu komin úr öllum böndum.
Laun knattspyrnumanna eru oft í brenni
depli. Inni á vellinum geysast um leikmenn
sem eru með yfir tvo milljarða ísl. kr. í árslaun,
um 167 milljónir kr. í mánaðarlaun og yfir
40 milljónir kr. í vikulaun – þrátt fyrir að eiga
afar misjafna leiki: valda oft vonbrigðum. Þar
má nefna Wayne Rooney, Manchester United,
John Terry, Chelsea, Yaya Toure, Manchester
City, Sergio Aguero, Manchester City, og
Fernando Torres, Chelsea. Ofan á laun þeirra
bætast svo auglýsingatekjur, sem eru mis
miklar.
Það væri aðeins til að flækja málið að nefna
til sögunnar þá Cristiano Ronaldo, Real
Madrid, og Lionel Messi, Barcelona, sem eru
með um 2,7 milljarða í árslaun. Þeir eru með
225 milljónir í mánaðartekjur, litlar 56 millj.
kr. á viku. Þessi upphæð tvöfaldast og rúm
lega það þegar auglýsingatekjur bætast við.
Launahæstu Íslendingarnir
Launahæstu íslensku knattspyrnumennirnir
eru ekki einu sinni hálfdrættingar á við þá
sem hala inn mestu upphæðirnar.
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham,
hefur fjórfaldað laun sín á milli áranna 2012
og 2013; var með í árstekjur 540 millj. ísl.
króna – 45 milljónir á mánuði, 11 milljónir á
viku, 1,6 milljónir á dag.
Aron Einar Gunnarsson, sem leikur með
Cardiff, kemur næstur í tekjum á eftir Gylfa
Þór af Íslendingunum í ensku knattspyrnunni.
Hann er með um 120 millj. kr. í árslaun – 10
milljónir í mánaðarlaun og 2,5 millj. á viku.
Þegar farið er yfir Ermarsundið hittum við
fyrir Kolbein Sigþórsson hjá Ajax í Amster dam,
sem er með um 100 milljónir kr. í árs laun, 8,3
millj. á mánuði, tvær milljónir á viku.
Sagt var frá því á dögunum í Tipsbladet í
Danmörku að Sölvi Geir Ottesen hefði gert
ótrúlega góðan samning er hann fór frá FC
Kaupmannahöfn til Ural í Rússlandi, þar sem
hann fær vel yfir 80 millj. kr. í árslaun.
Birkir Bjarnason, Sampdoria, og Emil Hall
freðsson, Hellas Verona, eru með yfir 70
milljónir í árslaun á Ítalíu.
Hér eru ekki taldir með bónusar og auglý
singatekjur, sem eru misjafnar hjá leik
mönn um. Gylfi var nýlega valinn í hóp bestu
knatt spyrnumanna heims, sem eru í súperliði
Pepsi 2014 og leika í sjónvarps auglýsingum.
Mynd af Gylfa verður á tveggja lítra Pepsi og
Pepsi Maxflöskum.
Íslenskir knattspyrnumenn í öðrum löndum
eru ekki með eins há laun og áðurnefndir
leikmenn – myndi eflaust svelgjast á ef þessar
upphæðir yrðu nefndar í þeirra herbúðum. Í
Norergi eru íslensku leikmennirnir með þetta
1,5 til 2,5 millj. kr. í laun á mánuði, fyrir skatt.
Veigar Páll Gunnarsson var launahæsti Íslend
ingurinn í Noregi er hann lék með Stabæk 2012,
með um 4,5 milljónir kr. á mán uði. Árstekjur
Veigars voru um 54 milljón ir kr. en hann greiddi
24,6 milljónir kr. í skatt.
Með auknum vinsældum breyttist knatt
spyrnan úr afþreyingu og leik yfir í viðskipta
vöru, sem ákveðinn snobbstimpill var þrykkt
ur á. Á árum áður fór ríka fólkið á veðreiðar
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður hjá Tottenham og íþrótta
maður ársins, er launahæsti knattspyrnumaður Íslands. Hann er
með um 540 milljónir króna í árstekjur og með hærri laun en allir
aðrir leikmenn landsliðsins til samans.
TexTi: siGMundur ó. sTeinarsson. / Myndir: ÝMsir.
Hér eru ekki taldir með
bónusar og auglýsinga
tekjur, sem eru misjafnar
hjá leikmönnum. Gylfi var
nýlega valinn í hóp bestu
knattspyrnumanna heims,
sem eru í súperliði Pepsi
2014 og leika í sjónvarps
auglýsingum.
íþróttir