Frjáls verslun - 01.01.2014, Blaðsíða 72
72 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
um vinsældir fyrirtækja snýr að
almenningi. Ekki er um leið andi
spurningar að ræða og fyrirtækin
ekki nefnd að fyrra bragði við þá
sem hringt er í. Fólk er beðið að
nefna fyrirtæki sem það hefur
jákvætt og neikvætt viðhorf til.
Könnunin var gerð dagana
4.10. febrúar. Úrtakið var átta
hundruð manns. Spurt var:
„Vilt þú nefna eitt til þrjú íslensk
fyrirtæki sem þú hefur jákvætt
viðhorf til?“ og „Vilt þú nefna eitt
til tvö íslensk fyrirtæki sem þú
hefur neikvætt viðhorf til?“
Fyrirtæki sem yfirleitt eru mjög
ofarlega á listanum eru þar
einnig núna. Þetta eru fyrirtæki
eins og Icelandair, Marel, Hag
kaup og Krónan. Icelandair er
í þriðja sæti listans og jákvætt
viðhorf til fyrirtækisins hefur
ævinlega verið mikið í þessari
könnun. Það er þó heldur minna
núna en í fyrra.
Ef til vill kemur mest á óvart í
könnuninni núna hvað hin stóru
þekktu iðnfyrirtæki Össur og
Marel, sem hafa notið mikilla
vinsælda undanfarin ár, dala
í fylgi þótt áfram séu þau á
meðal toppfimm og geti í ljósi
þess vel við unað. Bæði eru
iðnfyrirtæki með alþjóðlega
starf semi og stóðust prófið í
hrun inu; gengi hlutabréfa í þeim
hrundi ekki á meðan bankarnir
hrundu og önnur fyrirtæki í
kaup höllinni lækkuðu verulega.
Þekkt fyrirtæki sem komst
ekki á blað í fyrra á topp
fjörutíulist ann var IKEA. Núna
kemur það nokkuð sterkt inn
og lendir í 13. sæti. Í þessari
könnun hefur það sýnt sig að
viðhorf Íslendinga til fyrirtækja
er yfirleitt jákvætt og oftast eru
miklu færri sem nefna fyrirtæki
sem þeir hafa neikvætt viðhorf
til en jákvætt.
Þetta breyttist að vísu eftir
hrunið en í byrjun ársins 2009
urðu „bankarnir“ þá óvinsæl
ast ir allra og mældust yfir 20%
í óvinsældum. Slíkt hafði aldrei
gerst áður. Núna eru neikvæðir
í garð „bankanna“ í kringum
10%. Í fyrra var þetta hlutfall
13%. Það eru þeir sem svara
einfaldlega „bankarnir“ þegar
þeir svara um fyrirtæki sem þeir
hafa neikvætt viðhorf til. Þess
má geta að stóru bankarnir
þrír koma svo í kjölfarið og eru
sér staklega nefndir og virðist
sem neikvæðni í þeirra garð
hafi heldur aukist frá í fyrra. Þá
vekur athygli hvað margir nefna
Vodafone þegar spurt er um
neikvætt viðhorf til fyrirtækis.
Bónus hefur tólf sinn
um vermt fyrsta sætið
í þessari könnun í þau
tuttugu og sex skipti
sem hún hefur verið
framkvæmd. Það er
auðvitað ótrúlegur
árangur. Össur hefur
fjórum sinnum toppað
listann – síðastliðin
fjög ur ár – og Íslensk
erfða grein ing var sig
urvegari þrjú ár í röð,
2001 til 2003.
Vinsælustu fyrirtækin
Spurt: Vildir þú nefna eitt til þrjú íslensk fyrirtæki sem þú hefur
jákvætt viðhorf til?
liSTiNN 2014
bónus 15,2% 1 9,7% 4 5,5%
össur 9,3% 2 15,3% 1 6,0%
Icelandair 7,9% 3 10,0% 3 2,1%
marel 5,7% 4 12,4% 2 6,7%
Hagkaup 4,7% 56 1,9% 1213 2,8%
krónan 4,7% 56 3,1% 67 1,6%
Síminn 4,5% 7 2,7% 1011 1,8%
landsbankinn 4,3% 8 2,7% 1011 1,6%
nettó 3,8% 9 1,5% 16 2,4%
fjarðarkaup 3,6% 10 3,1% 67 0,6%
Íslandsbanki 2,8% 11 2,9% 89 0,1%
Samherji 2,6% 12 2,9% 89 0,3%
IkEa 2,4% 13 2,4%
byko 2,2% 1416 1,3% 1719 0,9%
Eimskip 2,2% 1416 1,9% 1213 0,4%
nova 2,2% 1416 1,7% 14 0,5%
actavis 2,0% 17 1,6% 15 0,4%
Húsasmiðjan 1,8% 1823 0,5% 3746 1,3%
mS 1,8% 1823 0,9% 2630 0,9%
n1 1,8% 1823 1,2% 2021 0,6%
rÚv 1,8% 1823 0,5% 3746 1,3%
arion banki 1,8% 1823 1,3% 1719 0,5%
Tm tryggingar 1,8% 1823 0,9% 2630 0,9%
WOW air 1,6% 24 0,9% 2630 0,7%
CCP 1,4% 2526 4,1% 5 2,7%
rúmfatalagerinn 1,4% 2526 0,5% 3746 0,9%
góa 1,2% 2728 0,9% 2630 0,3%
Hagar 1,2% 2728 0,9% 2630 0,3%
Eymundsson 1,0% 2935 1,0%
gló 1,0% 2935 1,0%
kostur 1,0% 2935 0,5% 3746 0,5%
lýsi 1,0% 2935 1,1% 2225 0,1%
Plain vanilla 1,0% 2935 1,0%
Sjóvá 1,0% 2935 0,5% 3746 0,5%
Toyota 1,0% 2935 1,0% 2326 0,0%
alcoa 0,8% 3645 0,7% 3336 0,1%
Hekla 0,8% 3645 1,1% 2225 0,3%
landspítalinn 0,8% 3645 1,2% 2021 0,4%
nóiSíríus 0,8% 3645 0,8%
nýherji 0,8% 3645 1,1% 2225 0,3%
Olís 0,8% 3645 0,8% 3132 0,0%
Samkaup 0,8% 3645 0,9% 2630 0,1%
vÍS 0,8% 3645 0,8% 2734 0,0%
vodafone 0,8% 3645 1,2% 1719 0,3%
2014 2013RÖÐ RÖÐ BREYTING
Vinsælasta fyrir tækið