Frjáls verslun - 01.01.2014, Side 116
116 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
S
íðastliðið sumar var
haldin í Hörpu stærsta
ráðstefna sem haldin
hefur verið á Íslandi
til þessa, Evrópuþing
tann réttingasérfræðinga, EOS
2013, í Hörpu. Ráðstefnuna sóttu
um 2.450 þátttakendur frá 69
lönd um og sá Congress Reykjavík
um skipulagninguna.
„Við erum mjög stolt af því að
hafa átt þátt í að skipuleggja og
setja upp þessa glæsilegu ráð
stefnu,“ segir Lára B. Péturs dóttir,
framkvæmdastjóri Con gress
Reykja vík. „Við fundum glöggt við
vinnuna hvað reynslan er mikil
væg við viðburð af þessu tagi. Það
eru óteljandi atriði sem þarf að
huga að, stór og smá, og ekkert
má fara úrskeiðis.“
Ráðstefnan þótti takast afar
vel og voru gestir ánægðir með
skipu lagið, aðstöðuna í Hörpu,
faglegt innihald ráðstefnunnar
sem og skemmtidagskrá hennar.
Fjöl margir hafa haft á orði að þessi
ráð stefna verði lengi í minnum
höfð sem ein best heppnaða EOS
ráð stefnan hingað til.
„Auðvitað er ánægjulegt og gef
andi að fá umsagnir sem þessar
sem og að finna þakklæti fólks
og þá sérstaklega þegar um er að
ræða eins viðamikið verkefni og
ráðstefna af þessari stærðargráðu
er. Einn af lykilþáttunum við
undirbúning ráðstefnu af þessu
tagi er að skipuleggjandinn eigi
gott samstarf bæði við undir
bún ings nefndir og birgja. Ég hef
starfað á þessu sviði í um 25 ár og
þetta er nokkuð sem við hjá Con
gress Reykjavík vitum og leggjum
mikið upp úr að gera. Annað
lykil atriði er að allir ferlar og kerfi
séu í topplagi. Það er nokkuð sem
reynslan hefur kennt okkur og
hefur sannað sig í gegnum árin í
þeim fjölmörgu verkefnum sem
við höfum sinnt.“
Bjartir tímar framundan
Lára segir að það sé ekki að eins
mikilvægt fyrir Congress Reykja
vík og viðskiptavini fyrir tækisins
að þessi stóra ráðstefna hafi
gengið eins vel og hún gerði.
Hún bendir á að allir sem starfa
við ferða og ráðstefnuþjónustu
hagnist af viðburði sem þessum.
„Einn af fyrirlesurunum á ráð
stefnunni sagði að ekki væri langt
í að Reykjavík yrði einn af topp
tíu áfangastöðunum í Evrópu
fyrir stórar ráðstefnur. Einhverjum
kann að finnast það vera stór orð
en þegar verk efna staða okkar
á komandi mánuðum og árum
er skoðuð sjáum við, svo ekki
verður um villst, að við erum að
færast í þá átt. Það eru bjartir
tímar fram undan í ráðstefnuhaldi
á Íslandi.“
Skipulagði stærstu ráðstefnu á Íslandi
LÁRA B. PéTURSdÓTTIR, CONGRESS:
„Ráðstefnan þótti tak
ast afar vel og voru
gestir ánægðir með
skipu lagið, að stöð una í
Hörpu og faglegt inni
hald ráðstefn unnar.“ Lára B. Pétursdóttir. „Það eru óteljandi atriði sem þarf að huga að, stór og
smá, og ekkert má fara úrskeiðis.“
Evrópuþing tannréttingasérfræðinga, EOS 2013, í Hörpu sóttu um 2.450 þátttakendur frá 69 löndum og er þetta
stærsta ráðstefna sem haldin hefur verið á Íslandi.
rÁðSTEfNur