Frjáls verslun - 01.01.2014, Page 118
118 FRJÁLS VERSLUN 1. 2014
Tvö þúsund erlendir gestir á hátíð CCP
ELdAR ÁSTÞÓRSSON, UPPLýSINGAFULLTRÚI CCP:
U
m tvö þúsund
erl endir gestir sóttu
ráðstefnu og hátíð
CCP, EVE Fanfest,
sem haldin var í fyrravor í Hörpu.
Lögð var áhersla á að gestir væru
fólk sem spilar tölvuleiki CCP og
þá sérstaklega EVE Online sem
er stærsti leikur fyrirtækisins. Þá
var lögð áhersla á að til landsins
kæmu erlendir blaðamenn og fólk
sem vinnur í tölvuleikjaiðnaðinum
en hingað komu m.a. starfsmenn
frá SONY.
„Tilgangurinn með EVE Fanfest
er margvíslegur,“ segir Eldar Ást
þórsson, upplýsingafulltrúi CCP.
„Við kynnum vörur fyrirtækisins
og þær tækninýjungar sem CCP
þróar og gefur út auk þess sem
gestir hitta aðra sem spila sömu
leiki. Þá skiptir máli að hingað
til lands komi erlendir fjöl miðla
menn, sem eru þá á okkar veg um
þannig að við getum stýrt því
hvað þeir sjá og upplifa á há
tíð inni. Þeir gefa sér tíma til að
kynna sér það sem við erum að
gera, sem er erfiðara þegar við
tök um þátt í stórum kaupstefnum
úti í heimi. CCP er þá eitt af
mörgum fyrirtækjum en á EVE
Fan fest er CCP og það sem við
gerum aðalatriðið.“ Eldar segir
að það hafi tekist að stækka EVE
Fanfest ár frá ári en í vor verður
hátíðin haldin í níunda skipti.
„Það sýnir okkur að það er gott að
geta framleitt svona viðburð sjálf.“
Hátíðin í fyrra stóð í þrjá daga
og lauk með tónleikum Retro
Stefson, Skálmaldar og ZTrip.
„Dagskráin samanstendur af
pall borðsumræðum og fyrir lestr
um yfir í tónleika, keppnir og
ýmsar uppákomur. Við erum til
dæmis að fikra okkur upp í að
vera með fyrirlestra sem snerta á
geim vísindum og tækni almennt.
Það var til dæmis fyrirlestur í
fyrra um hvernig hægt væri að
byggja lyftu frá jörðinni upp í
him ingeiminn, hvernig mætti
vera með námugröft á fjarlægum
plá netum og hvernig mætti
ferðast á ljóshraða. Við höfum
fengið til landsins vísindamenn
sem hafa starfað hjá NASA og
taka á öðrum vinklum en þeim
sem tengjast leikjunum.“
Eldar Ástþórsson, upplýsinga
fulltrúi CCP.
Það hefur tekist að
stækka EVE Fanfest
ár frá ári. Í vor verður
há tíðin haldin í níunda
skipti. „Það sýnir okk
ur að það er gott að
geta framleitt svona
viðburð sjálf.“
rÁðSTEfNur