Frjáls verslun - 01.01.2014, Síða 125
FRJÁLS VERSLUN 1. 2014 125
„Við erum stolt af þessu
frábæra húsi sem við
vinnum við að selja
og markaðssetja dag
og nótt. Hörpuhjartað
slær því hraustlega hjá
öllu því færa starfsfólki
sem vinnur í þessu
stórbrotna húsi en
þýðing Hörpu fyrir land
og þjóð er mikil. Þótt
ekki allir skilji hvaða
þýðingu svona hús hefur
í dag veit ég að það mun
skila sér síðar.“
haldi. Teymið býr yfir áratuga
reynslu og þekkingu þegar
kem ur að skipulagningu ráð
stefna og viðburða en ekki síst
veisluhalds. Kristín hefur svo
haldið utan um allar skoð unar
ferðir sem og pakka því tengda
en mikil aukning er á því sviði
sem og tækifæri.
Eins og ég nefndi hefur fjöl
breytileiki þeirra viðburða sem
hafa verið haldnir í Hörpu verið
mikill og eykst sífellt. Hér höfum
við verið með fjöld ann allan af
alþjóð leg um ráð stefnum og við
burðum en einnig hafa árlega
verið haldn ir margir viðburðir
eins og t.d. Læknadagar, Reykja
víkur skákmótið, Food and Fun,
Fanfest CCP og svo mætti lengi
telja.“
um sex milljarðar í gjald-
eyristekjur
Hvaða þýðingu hefur alþjóð
legt ráðstefnuhald fyrir litla
þjóð eins og okkur Íslendinga?
„Það er talið að eitt þús und
manna alþjóðleg ráð stefna sem
stendur yfir í þrjá daga skili
um einum millj arði í gjald eyr
is tekjum en í því samhengi
má nefna sem dæmi að í fyrra
voru hjá okkur evrópskir tann
réttinga sér fræð ingar með 2.500
manna ráðstefnu, um 1.500
manns sóttu fanfest CCP og á
Arctic Circleráðstefnunni voru
ríflega 1.000 manns. Okkur
reikn ast til að ráðstefnurnar
sem haldnar voru í Hörpu í
fyrra hafi skilað á bilinu fimm
til sex milljörðum í gjald eyris
tekjur og því hefur alþjóð legt
ráðstefnuhald mikið að segja
fyrir okkar þjóð. Margar erlendar
borgir eyða miklum fjármunum
í að laða til sín alþjóðlegar
ráð stefn ur og viðburði því
vitað er hvaða viðbótar tekjur
ráð stefnurnar skapa, eins og
t.d. fyrir hótel, veitinga staði,
versl anir og fleiri þjónustu aðila.
Það er augljóst að hinn erlendi
ráðstefnu gestur skilar að jafnaði
mun meira til þjóðar búsins en
hinn almenni ferðamaður.“
Sýnileg í samfélagsmiðlum
Hvernig hefur gengið að bóka
húsið fyrir erlenda ráðstefnu
gesti og hvernig finnið þið þá,
ef svo má segja?
„Það er gert með mismunandi
hætti en við sækjum margar
erl endar ráðstefnu og hvata
ferðasýningar. Við erum með
limir í Meet in Reykja vik þar
sem afar gott kynningar starf fer
fram en þeir annast að miklu
leyti okkar erlendu mark aðs
setn ingu. Einnig erum við
allt af að auka sýnileika okkar
í samfélagsmiðlum og svo er
langsterkasta vopnið að fá
fólk til að koma í heimsókn og
kynna sér aðstöðuna.“
Mjög góður tækjakostur
Er eitthvað um að fyrirtæki nýti
sér aðstöðuna í Hörpu fyrir
svokallaðar hvataferðir og þá
með hvaða hætti?
„Já, eins og fyrir hátíðar kvöld
verði, þemakvöld og ýmiss
konar „gettogether“ sem og
vöru kynningar. Harpa býður
upp á mikla möguleika hvað
þetta varðar, bæði mismunandi
rými sem og ólíkar útfærslur á
ljósi og hljóði en við búum yfir
miklum og góðum tækjakosti.“
farin að bóka fyrir 2020
Hvað er næst á döfinni hjá
Hörpu?
„Það er fjöldinn allur af al
þjóð legum ráðstefnum, minni
fundir og viðburðir sem og
sýningarhald sem mun aukast
er við nálgumst sumarið.
Einnig er mikil aukning í fyrir
spurnum fyrir komandi ár en
við erum farin að bóka fyrir
árið 2020.
Alþjóðlegar ráðstefnur eru
ávallt bókaðar með margra
ára fyrirvara og því mikið um
fyrirspurnir langt fram í tím
ann. Við finnum fyrir mikilli
aukn ingu fyrirspurna og
mörg um finnst afar spennandi
kostur að haldi viðburði sína
hér á Íslandi. Lega landsins á
milli Evrópu og Bandaríkjanna
sem og betri flugsamgöngur
til landsins og frá hafa líka
heilmikið að segja.“
lifandi viðburðir skemmti-
legastir
Er einhver sérstakur við burð
ur/ráðstefna framundan sem
þið hlakkið sérstaklega til að
annast?
„Það er erfitt að velja eitthvað
eitt en Fanfest CCP er alltaf
ofar lega í huga og skemmtilegir
og lifandi viðburðir eins og
Spirit of Humanity Forum og
Arctic Circle.“
Harpan og hjartað
Hvers konar tilfinningar berið
þið í ráðstefnuteyminu í brjósti
til Hörpu?
„Við erum stolt af þessu frá
bæra húsi sem við vinnum við
að selja og markaðssetja dag
og nótt. Hörpuhjartað slær því
hraustlega hjá öllu því færa
starfsfólki sem vinnur í þessu
stór brotna húsi en þýðing
Hörpu fyrir land og þjóð er
mikil. Þótt ekki allir skilji hvaða
þýð ingu svona hús hefur í dag
veit ég að það mun skila sér
síðar. Við eigum öll að vera
stolt af Hörpu og því sem hún
skil ar til okkar allra. Við erum
„stærri“ þjóð fyrir vikið.“
Silfurberg: Ráðstefnuaðstaða sem hentar vel fyrir alþjóðlegar ráðstefnur og viðburði. Fyrsta flokks tækjabúnaður er fyrir hendi í Hörpu.