Frjáls verslun - 01.04.2015, Síða 22
22 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
Svarið er að gengi bréfa í þessum félögum hefur hækkað svipað á síðustu árum. Hlutabréf í Apple hafa 4,7faldast í
verði frá byrjun ársins 2008 og gert félagið að því verðmætasta í heimi. Hlutabréf í Össuri hafa 4,9faldast á sama tíma
og er Össur núna verðmætasta félagið á Nasdaq Iceland og metið á 220 milljarða króna. Icelandair Group topp ar þó
þessi félög síðustu fimm árin. Bréfin í félaginu hríðféll í verði á árinu 2008 og fram eftir árinu 2009 og náði lægsta gildi
13. október 2009. En viti menn; það hefur 12faldast í verði frá þeim tíma. Það heitir að koma til baka.
Hlutabréf í Apple hafa 4,7-fald-ast í verði frá byrjun ársins 2008 og gert félagið að því verðmætasta í heimi. Gengi bréfa í Microsoft hefur á sama
tíma 1,4-faldast í verði. Hluthafar í Össuri
geta sömuleiðis vel við unað – gengi bréfanna
hefur 4,9-faldast frá byrjun ársins 2008.
Steve Jobs, stofnandi og forstjóri Apple,
lést haustið 2011 en hann stofnaði fyrirtækið
árið 1976. Jobs var lýst þannig að snilld
hans, ástríða og orka hefði verið uppspretta
óteljandi uppfinninga sem auðgað hefðu og
bætt líf okkar. Margir héldu að það tæki að
halla undan fæti hjá Apple en annað hefur
komið á daginn og hafa bréf þess hækkað og
er fyrirtækið núna það verðmætasta í heimi.
Í síðasta tölublaði sögðum við frá því að gengi
bréfa í Icelandair Group hefði meira en tífaldast
frá 13. október árið 2009 en þann dag fóru þau
niður í 1,9 í kauphöllinni. Þau eru núna skráð á
23,1 en þessi hækk un er 12-földun.
Takið eftir því að í byrjun ársins 2008, þegar
aðrir eigendur voru að félaginu, var gengi
bréfa í Icelandair Group komið upp í 27,45
en tók væna dýfu árið 2008 og náði lægsta
gildi 13. október 2009. Sé miðað við upphaf
ársins 2008 hafa bréfin því lækkað um 16%.
Af þessu sést að það er ekki sama á hvaða
stað í kúrfunni viðskipti með hlutabréf eiga
sér stað.
kaupHöllin
texti: jÓn G. HauKsson / Myndir: ÝMsir
Steve Jobs.
Steve Jobs lést haustið 2011 og töldu
margir að við það tæki að halla undan fæti
hjá Apple. Það fór á annan veg. Núverandi
forstjóri er Tim Cook.
apple
2008 – 2015
27.8
131.7
2.01.2008
28.5.2015
Hvað eiga Apple og össur
sameiginlegt?
„Hlutabréf í Apple hafa 4,7fald ast í verði frá byrjun ársins 2008 og gert
félagið að því verðmætasta í heimi.“
2008 til 2015:
Gengið 4,7-faldast