Frjáls verslun - 01.04.2015, Blaðsíða 28
28 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
S
agt er, og það ugg
laust með tals verðum
rétti, að al þjóð leg
sam keppnis staða
þjóða ráðist ekki fyrst
og fremst af auðlindum þeirra
eða stærð held ur miklu fremur
menntunarstigi þeirra. Mennt un
er auðvitað marg slungið fyrirbæri
og degin um ljósara að fólk til
einkar sér hana ekki einungis á
skólabekk. Hitt liggur jafnframt
fyrir að menntun hefur í vax
andi mæli færst inn í formlegar
skólastofnanir. Láta mun nærri
að Íslendingar á skólaskyldu
aldri verji nú orðið meira en
helm ingnum af vökutíma innan
skólaveggja eða við skólanám
í heimahúsum. Sama skipulag
gildir í aðalatriðum meðal ann
arra þróaðra þjóða.
Því hlýtur það að vera nokkurt
áhyggjuefni fyrir okkur Íslend
inga að vísbendingar eru uppi
um skólakerfi okkar sinni ekki
hlutverki sínu svo viðunandi sé
og þjóðin sé í því efni að dragast
aftur úr öðrum. Meðal annars
hafa alþjóðlegar mælingar, eink
um svokallaðar PISAkannanir,
sem Efnahags og framfarastofn
un Evrópu stendur fyrir, reglu
lega komist að þeirri niðurstöðu
að grunnskólamenntun hér á
landi sé slök í samanburði við
flestar nágrannaþjóðir okkar svo
ekki sé minnst á hagvaxtarþjóð
irnar í AusturAsíu.
Hvað sem þessu veldur er
það örugglega ekki fjárskortur.
Fyrir liggur að í grunnskólakerf
ið íslenska er veitt hvað mestu
fé af OECDlöndum. Sá hluti
menntakerfisins sem eftir öllum
sólarmerkjum að dæma stendur
sig skást í alþjóðlegum sam
anburði, þ.e. háskólakerfið,
nýtur hins vegar hvað minnstra
fjárveitinga í alþjóðlegum sam
anburði. Því má ljóst vera að
orsökin liggur dýpra. Sennilega
er hana fyrst og fremst að finna
í skipulagi og stjórnun mennta
kerfisins. Þessir þættir hafa sem
alkunna er verið á könnu hins
opinbera áratugum saman. Þar
hefur greinilega skort alvarlega
á þann skilning á menntun og
því samspili aðhalds og hvata
sem fyrir hendi þurfa að vera til
að ná viðunandi árangri á þessu
mikilvæga sviði þjóðlífsins.“
texti: sVaVa jÓnsdÓttir
ragnar ÁrnaSon
prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
EFNAHAGSMÁL
Hvað er að í menntakerfinu?
Álitsgjafar
„Mennt un er auðvitað
marg slungið fyrirbæri og
degin um ljósara að fólk
til einkar sér hana ekki
einungis á skólabekk.“