Frjáls verslun - 01.04.2015, Síða 46
46 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
Stokkaði gataspjöldin
Fyrstu kynni Guðjóns af tölvun tengjast gataspjöldum. Þeir sem
komnir eru yfir miðjan aldur muna eftir gataspjöldunum sem rennt
var í gegnum lesara á ábúðarmiklum IBMtölvum. Guðjón komst
í spjaldabunka hjá föður sínum, Guðjóni Hafsteini Bernharðssyni,
og stokkaði þessi spil fyrir hann upp á nýtt. Á spjöldunum var
launabókhald Reykjavíkurborgar en Guðjón eldri vann hjá Skýrr.
Þrátt fyrir þessa óumbeðnu aðstoð sonarins er ekki vitað annað en
að borgarstarfsmenn hafi fengið sín laun.
Þetta var á áttunda áratug liðinnar aldar og tölvur hafa alltaf
verið viðfangsefni Guðjóns. Aðeins ellefu ára byrjaði Guðjón að
forrita og bjó til fyrsta seljanlega forritið þegar hann var ennþá í
grunnskóla. Svo þegar kom að því að stofna fyrirtæki varð nafnið
OZ fyrir valinu vegna þess að færni Guðjóns og félaga hans á
tölvur þótti göldrum líkust, þetta voru Galdrakarlarnir frá OZ.
almiðlun – margmiðlun
Upphaflega hét fyrirtækið
OZ almiðlun. Almiðlun var
nýyrði sem síðar vék fyrir
orðinu margmiðlun. Bæði
þessi orð urðu til hjá OZ en
Guðjón segir að samkvæmt
ráðum frá Orðabók há
skól ans hafi verið ákveðið
að veðja á „almiðlun“ því
það væri líklegra til að ná
fóstfestu. Skömmu síðar var
orðið „margmiðlun“ komið í
almenna notkun.
Guðjón Már segir þessa sögu
þegar við ræðum um þróunina í
tölvuheiminum. Það er engin leið
að sjá fyrir hvað gerist næst.
Einu sinni voru gataspjöld
nýjung. Þau eru merki
legur safngripur núna.
Einu sinni var sýndar
veruleikinn nýjung
en er of sjálfsagður
núna til þess að
vera hissa yfir.
Þrívíddar
myndir í
tölvum eru
ekki lengur
fréttaefni.
Og hvað gerist næst? Hvenær verður tölvutækni okkar daga
brosleg og komin á safn? Afkomendur okkar eiga eftir að benda
á tölvurnar okkar á söfnum og flissa. Enginn veit hvert þróunin
leiðir okkur og eina ráðið er að reyna að vera í fararbroddi. Það er
það sem Guðjón Már og þeir hjá OZ eru að gera.
Bylting stendur yfir
Núna stendur yfir bylting í dreifingu sjónvarpsefnis. Gamla góða
sjónvarpsdagskráin á undir högg að sækja. Þessi elskulegi gamli
miðill, sem áður sameinaði fjölskyldur og vinahópa fyrir framan
skjáinn og viðhélt félagstengslum og mannlegri greind, er að
hverfa. Sjónvapið var að vísu einu sinni kallað „imbakassi“ og
þótti forheimskandi en nú ræður söknuðurinn.
Hver sem er getur rekið sína eigin sjónvarpsstöð heima við
eldhúsborðið. Það er í það minnsta mögulegt á oz.com og þegar
komnar fram yfir 600 stöðvar þar – samkvæmt nýjustu talningu. Í
raun og veru hafa menn lengi séð fyrir sér þróun af þessu tagi en
það er fyrst nú sem vinnsluhraði, bandvídd og upptökubúnaður er
kominn á það stig að allir geta nýtt sér þessa tækni.
„Við getum sagt að það séu samlegðaráhrif margra þátta sem
valda þessari byltingu, ekki endilega ný tækni núna,“ segir
Guðjón. T.d. er nú orðið mögulegt að gera óaðfinnanlegar
upptökur á venjulegan farsíma og úrvinnsla efnis krefst hvorki
dýrra tækja né flókinna forrita.
margar smáar stöðvar
Nú þegar er miklu af sjónvarpefni dreift um netið og þessar
nýju aðferðir þurfa ekki að marka endalok hefðbundinnar sjón
varpsdagskrár. En framboðið eykst og innihaldið breytist.
„Ég sé fyrir mér að til verði mjög sérhæfðar stöðvar sem
ef til vill ná ekki til margra en samt svo margra að það sé
hægt að lifa af áskriftartekjunum,“ segir Guðjón. Þetta geta
verið stöðvar þar sem fjallað er um tiltekið áhugamál – t.d.
hjólabretti – eða íþróttafélag sem aldrei er getið í dagskrá stóru
sjónvarpsstöðvanna.
Guðjón nefnir líka beinar útsendingar frá viðburðum sem ein
hver hópur hefur áhuga á. Það eru engin takmörk önnur en þau
sem hugmyndaflugið setur.
„Aðalatriðið er að miðillinn sé öllum aðgengilegur og að þeir
sem hyggjast nýta hann geti haft af því tekjur. Við uppfyllum
vissar tæknilegar grunnþarfir og það á að vera einfalt mál að
nýta þessa tækni,“ segir Guðjón.
forsíðuViðtal
Hver sem er getur rekið sína eigin sjónvarps
stöð heima við eldhúsborðið. Það er í það
minnsta mögulegt á oz.com og þegar komnar
fram yfir 600 stöðvar þar – samkvæmt
nýjustu talningu.
Kerfið snýst ekki eingöngu um tónlist því
skapandi einstaklingar úr öllum geirum eru
að setja upp rásir á OZ.