Frjáls verslun - 01.04.2015, Page 58
58 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
margir þættir sem
leggjast á eitt
BoGi Þór siGuroddsson, stjórnarformaður
joHan rÖnninG oG s. Guðjónssonar:
K
annski er fyrsti
mælikvarðinn
af þeim átta
sem spurt er um
mikilvægastur;
þ.e. trúverðugleiki stjórnenda.
Hann hefur hugsanlega svolítil
áhrif á hina líka. Laun geta
hugsanlega verið lág í fyrirtæki
en ef á sama tíma er mikil
ánægja með trúverðugleika
stjórn enda innan fyrirtækisins
verður ekki eins mikil óánægja
með launaþáttinn og yrði ella,“
sagði Bogi Þór Siguroddsson í
þætti Frjálsrar verslunar á ÍNN,
Viðskiptum, skömmu eftir
könnunina.
Bogi Þór er stjórnarformaður
Johan Rönning og S. Guðjóns
sonar en bæði fyrirtækin skor
uðu mjög hátt í vinnumark aðs
könnun VR á dögunum. Johan
Rönning varð í efsta sæti í flokki
stórra fyrirtækja, fjórða árið í
röð, en S. Guðjónsson í fjórða
sæti í flokki lítilla fyrir tækja.
Þegar Bogi Þór var spurður
hver væri galdurinn á bak við
þennan árangur beggja fyrir
tækja sagði hann að það væri
ekki neitt eitt sem réði úrslitum
heldur væru margir litlir þættir
sem legðust á eitt. „Það eru auk
þess margir huglægir þættir í
þessu,“ segir Bogi Þór.
„Við erum með góða stjórn
end ur í báðum fyrirtækj um sem
og starfsmenn – og vonandi
hefur stefna okkar eigendanna
líka eitthvað að segja. Við
leggj um áherslu á þá þætti sem
verið er að mæla; ég fer ekki í
grafgötur með það. Þetta eru átta
mælikvarðar sem eru skoðaðir
og mér finnst að allir stjórnendur
ættu að taka þá til umhugsunar.
Sá fyrsti er trúverðugleiki stjórn
enda, starfsandi, launakjör,
vinnu um hverfi, sjálfstæði í starfi,
sveigjan leiki í starfi, ánægja og
stolt af fyrirtækinu – sem og af
ímynd þess. Á bak við þessa
mæli kvarða eru sextíu spurn
ingar.“
Bogi Þór segir að það séu
til alls konar stjórnunarstílar.
„Ég trúi því að lykilárangur
í mannauðsstjórnun sé trú
verðug leiki. Að stjórnendur
segi það sem þeir meina og
meini það sem þeir segja. Þegar
við hjónin keyptum Johan
Rönning árið 2003 óskuðum
við eftir því að allir starfsmenn
tækju þátt í könnuninni en
ekki bara þeir sem væru í
VR. Við skoruðum ágætlega
en okkur fannst ýmsir þættir
koma einkennilega út, eins
og t.d. sveigjanleiki í starfi.
Okkur fannst við vera mjög
sveigjanleg. En það segir sig
sjálft að sum fyrirtæki geta
boðið upp á meiri sveigjanleika
en önnur. Sum hafa opið frá
níu til fimm en önnur frá sjö
á morgnana til þrjú á daginn.
Við erum með opið frá átta
til fimm og breytum því ekki;
okkar sveigjanleiki er því í
öðrum þáttum. Þetta bar þann
árangur að árið 2010 urðum við
hástökkvarar í þessari könnun.“
Mikil umræða er innan stjórn
unarfræða um kúltúr fyrir tækja;
fyrirtækjamenningu. Ekki er
til nein ein stöðluð tegund af
fyrirtækjamenningu sem leiði til
árangurs fyrir utan þá auðvitað
að þar ríki andrúm til árangurs.
„Ég hef haldið því fram að
fyrir tækjamenning sé eins
misjöfn og mennirnir eru
margir. Það eru engir tveir eins,
mann eskjur eru mismunandi.
Ásjóna fyrirtækja helgast því
af þeim manneskjum, fólki sem
starfar innan fyrirtækjanna –
og hvernig það fær að njóta
sín innan þess liðsanda sem
ríkir. Fyrirtæki eru eins og
einstaklingar, með mismunandi
einkenni og karakter. Þetta
er eins með hljóm sveitar
stíla. Hljómsveitir innan sama
flokks geta verið mis munandi
góðar – eins geta fyrir tæki með
mismunandi stjórn unarstíl verið
góð á sinn hátt og náð árangri.
Á sama hátt geta fyrirtæki með
ólíka stjórnendur náð sams
konar góðum árangri.“
Bogi Þór segir að þau hjón
hafi frá upphafi reynt að hvetja
starfsmenn áfram og laða það
jákvæða fram hjá þeim eftir
bestu getu. „Starfsmenn njóta
þess best að vinna í jákvæðu
umhverfi,“ segir Bogi Þór.
Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður Johan Rönning og
S. Guðjónssonar.
fyrirmyndarfyrirtæKi 2015
Fyrirtækin í tíu efstu sætum í hverjum flokki eru sannarlega til fyrirmyndar og telur VR ástæðu til að
vekja sérstaka athygli á frammistöðu þeirra. Þessi fyrirtæki fá titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2015.
Mörg þessi fyrirtæki eru í efstu sætunum á hverju ári, hvernig sem staðan er. Það ber vott um styrka og skilvirka mannauðsstjórn un. Við óskum fyrirtækj
unum innilega til hamingju með þennan titil.
Hér að neðan má sjá lista yfir fyrirmyndarfyrirtækin í
hverj um stærðarflokki fyrir sig. Í stórum fyrirtækjum
starfa fleiri en 50 starfsmenn, í meðalstórum
fyrirtækjum eru þeir 2049 talsins og í litlum fyrir
tækjum eru starfsmenn færri en tuttugu. Athugið að
hér eru fyrirtækin birt í stafrófsröð.
Stór FYrIrtæKI
Johan rönning
Öryggismiðstöð íslands
nordic visitor iceland
s4s
bræðurnir Ormsson
Opin kerfi
securitas
lex
vistor
tM software
MEðaLStór FYrIrtæKI
Miracle
Expectus
basis
sjónlag
libra
tengi
fálkinn
Hugsmiðjan
Margt smátt
Árnason faktor
LÍtIL FYrIrtæKI
vinnuföt
skattur og bókhald
bókhald og uppgjör
s. guðjónsson
sigurborg
xrM software
spölur
fossberg
artasan
iðnmennt/iðnú
fyrirtæki Ársins 2015