Frjáls verslun - 01.04.2015, Qupperneq 73
FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015 73
Hátt í tvö þúsund fyrirtæki
í Kópavogi
íbúðarbyggðin allt í kring vel við
verslun á svæðinu. Svæðið ligg
ur einnig vel við þeim sem eiga
leið um Hafnarfjarðarveg á leið
til og frá vinnu og við sjáum að
Garðbæingar og Hafnfirðingar
nýta sér þjónustuna mikið.“
Smárinn – miðja höfuð -
borgarSVæðiSinS
Áshildur segir að ekki sé hægt
að loka augunum fyrir því að
Smárinn er orðinn miðja höfuð
borgarsvæðisins og býður upp
á stærstu verslunarmiðstöð
landsins, Smáralind. „Það er
endalaus uppspretta fyrirtækja
á svæðinu, sem er ótrúlega vel
sett með Reykjanesbrautina
eftir því miðju og Bæjarlind og
aðrar götur sem mikil þjónusta
er í hinum megin. Og glæsi
legt Glaðheimahverfi að rísa.
Götu tengingar eru góðar inn
á svæðið frá báðum hliðum
Reykja nesbrautar.
Hæsta hús landsins er við
Smáratorg; Turninn, 77,6 metra
hár og gnæfir yfir svæðið.“
hagSmunaSamtök
Styrkja
Tvenn hagsmunasamtök hafa
verið stofnuð í Kópavogi, í
Smiðju hverfi og á Auðbrekku-
svæðinu. Áshildur sagði að hug
myndin að hagsmunasamtökum
hefði orðið til þegar Jóhannes
Ragnarsson í Bílaáttunni í
Smiðjuhverfinu leitaði til hennar.
„Jóhannes hafði áhyggjur af
númeramerkingum húsa og
götuheitum á svæðinu. Þar er
kerfi sem þekkist ekki annars
staðar; götur eru auðkenndar
með litum og hús og fyrirtæki
eru með sama númer í götunum
fyrir ofan og neðan þau, sem er
mjög ruglingslegt. Í framhaldi af
viðræðum okkar ræddi ég við
bæjaryfirvöld. Þá var mér sagt
að ekki væri hægt að ráðast í
neinar aðgerðir nema um sam
ráð um aðgerðir væri að ræða.
Það varð því úr að við leituðum
til fleiri rekstraraðila á svæðinu
og stofnuð voru hagsmunasam
tök fyrir svæðið. Í stjórninni eru
stjórnendur lykilfyrirtækja á
svæðinu, fólk sem hefur verið
með rekstur í Smiðjuhverfi um
árabil og jafnvel áratuga skeið.
Það er mikill akkur í því fyrir mig
að geta leitað til þessa reynda
fólks í minni vinnu.
Síðan samtökin voru stofnuð
hefur verið hreyft við mörgum
málum – eins og að hressa upp
á umhverfið með tiltektardögum.
Átak var gert í sambandi við þrif
og að koma ýmsum óþarfa út af
svæðinu. Bærinn tók myndarleg
an þátt í þeirri tiltekt, sem stóð
yfir í tvo daga og heppnaðist vel.
Við lögðum til að breyta nöfn
um á götunum við Smiðjuveg,
sem var samþykkt nýverið. Götu
heitum verður breytt og einnig
númeramerkingum á húsunum.
Það verður farið í hugmynda
vinnu í sambandi við ný nöfn og
nafnabreytingar.“
Áshildur sagði að það væri
hlutverk hagsmunasamtaka að
tryggja samstarf á milli fyrirtækja
og auka áhuga á svæðinu út á
við – laða fólk inn á það.
„Hagsmunasamtökin á Auð
brekkusvæðinu hafa hafið störf
og menn eru byrjaðir að spá í
framtíðina. Það styrkir bæinn að
hafa svona samtök á sem flest-
um stöðum sem eru í uppbyg
gingu eða verið að breyta. Fólk
á svæðunum getur þá komið
saman og velt upp hugmyndum.
Þá fá bæjaryfirvöld góð ráð frá
mönnum sem þekkja hjartslátt
svæðanna – eru með puttann
á púlsinum. Það er af því góða
og gerir ekkert annað en styrkja
bæjarfélagið.
Það eru fleiri hagsmunasamtök
í sjónmáli. Ég horfi til Dalvegarins
og Bæjarlindar og hverfisins þar
fyrir ofan. Þar er gríðarleg upp
bygging framundan.
Kársnesið er einnig í hraðri
uppbyggingu svo og Hvörfin,
sem eru orðin gríðarlega stórt at
vinnusvæði og alltaf að styrkjast.“
Veitingastaðaflóran fjölbreytt
Áshildur segir að það séu
endalaus tækifæri í Kópavogi.
„Það er ánægjulegt að sjá og
finna að fólk er byrjað að upplifa
að það þarf ekki lengur að fara
út fyrir Kópavog til að leita eftir
þjónustu – hér er komin svo mikil
fjölbreytni í allri verslun og þjón
ustu. Og veitingastaðaflóran er
orðin gríðarlega fjölbreytt og við
sjáum æ fleiri veitingastaði koma
til okkar – þeir sjá tækifæri hér í
Kópavogi. Þá hefur kaffihúsum
einnig fjölgað. Kópavogsbúar
þurfa ekki að leita út fyrir bæinn,
hér er allt til alls. Ekki eingöngu
fyrir þá sem eru að byggja,
breyta eða bæta, heldur er
þjón ustan orðin mjög blómleg á
öllum sviðum.
Mikill uppgangur er í ferðaþjón
ustunni og þess sér stað í Kópa
vogi. Menn eru farnir að horfa út
fyrir 101 Reykjavík í uppbygg-
ingu gistirýmis og í því felast
mikil tækifæri fyrir Kópavog, ekki
síst vegna miðlægrar legu og
öflugra innviða. Framkvæmda
menn hafa sýnt því áhuga að
reisa glæsihótel á Auðbrekku
svæðinu, allt að tvö hundruð her
bergja, og hefur Landsbankinn
undirritað viljayfirlýsingu um að
fjármagna slíka byggingu. Og þá
hefur erlendum ferðamönnum í
Kópavogi fjölgað eins og annars
staðar á landinu.
Í mínum huga er það eitt af
hlutverkum markaðsstofunnar
að efla bæjarbraginn og ímynd
bæjarins, láta bæjarbúa finna til
stolts yfir því að búa í næst
stærsta sveitarfélagi landsins
sem er á miðju höfuðborgars
væðisins. Í bænum eru mjög
góðir grunn- og leikskólar, flott
útivistarsvæði og stór og öflug
íþróttafélög í bland við minni og
sérhæfðari og hér vill fólk búa.
Það sjáum við á tölum um fjölgun
íbúa á höfuðborgarsvæðinu,
því á síðasta ári fjölgaði íbúum
í Kópa vogi um níu hundruð á
meðan þeim fjölgaði um sex
hundruð í höfuðborginni.“
Smárinn er orðinn miðja höfuðborgarsvæðisins og býður upp á stærstu verslunarmiðstöð landsins – Smáralind. „Það er endalaus uppspretta
fyrirtækja á svæðinu, sem er ótrúlega vel sett með Reykjanesbrautina eftir því miðju og Bæjarlind og aðrar götur hinum megin.