Frjáls verslun - 01.04.2015, Page 82
82 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
Þ
að er erfitt að stjórna.
Það vita þeir sem reynt
hafa slíkt; taugatrekkj
andi og getur skapað
manni óvinsældir meðal annars
fólks. Hver kannast ekki við orð
eins og þessi: „Þetta er stórskrít
inn forstjóri, hvað er eiginlega í
gangi? Þessi ráðherra er snar
ruglaður.“
Þetta á ekki síst við þegar
frumkvöðlar og stjórnendur nýrra
fyrirtækja eru annars vegar.
Þeir þykja oft tefla á tæpasta
vað; framkvæma oft furðulega
hluti sem enginn hefur trú á og
þá heyrist stundum: „Þetta er
algjörlega galið. Ruglað. Bilun.
Þetta mun aldrei ganga upp.
Tóm tjara, geðveiki.“
Það kann vel að reynast rétt því
rannsóknir sýna að oftar en ekki
geta stjórnendur verið býsna
miklir nördar og kynlegir kvistir
sem glíma við sálræna bresti.
Það er stundum sagt að stutt sé
á milli snilligáfu og þess að vera
talinn galinn.
Hið skrítna er að það kann
frekar að vera gagnlegt en hitt.
Sér í lagi á þetta við um frum
Michael A. Freeman, sálfræðingur og prófessor við Læknaháskólann í San
Francisco, sem rannsakað hefur frumkvöðla og stjórnendur fyrirtækja í heilan
áratug, birti nýlega skýrslu um rannsókn sína. Hann kemst að því að um helmingur
stjórnenda og frumkvöðla geti talist skrítinn og galinn. Þegar til kastanna kemur
eru það ef til vill góðar fréttir; þetta séu góðir kostir.
„Það er því hættulegt og
kostnaðarsamt að útiloka
frumkvöðlana, jafnvel hina
„skrítnu“, frá atvinnu líf
inu. Það eru einmitt þeir
sem gjarnan koma með
bestu hugmyndirnar.“
texti: freyr eyjÓlfsson í fraKKlandi
kynlegir kVistir
Léttgeggjaðir
frumkvölar