Frjáls verslun - 01.04.2015, Page 84
84 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
kvöðla og það fólk sem óhrætt
tekst á við ný verkefni og þorir að
taka áhættu; skapa eitthvað áður
óþekkt og ryðja nýjar brautir.
Þetta er að minnsta kosti
niðurstaða Michaels A. Free
mans, sálfræðings og prófess
ors við Læknaháskólann í San
Francisco, sem rannsakað
hef ur frumkvöðla og stjórnen
dur fyrir tækja í heilan áratug.
Og niður staða hans er sláandi:
Um helmingur allra stjórnenda
og frum kvöðla stríðir við einhver
geðræn vandamál, ADHD, þung
lyndi eða kvíða. Ríflega helming ur
þeirra stjórnenda sem tóku þátt í
þessari viðamiklu rannsókn sagð
ist koma úr fjölskyldu þar sem
geðræn vandamál fyrirfynd ust.
Veikleikar verða
styrkleikar
Þeir vísindamenn sem unnið hafa
þessar rannsóknir, eins og Free
man og fleiri, benda hins vegar
á að oft geta geðræn vandamál
frekar verið til bóta. Veikleikar
verða styrkleikar; breikka sýn,
víkka út hugsun, efla mann-
eskjuna og gefa henni þrótt;
gera eitthvað sem er ókunnugt
hinum heilbrigða meðalmanni.
Þetta er nokkuð sem allir ættu
að kannast við sem fylgdust með
stjórnmálaferli Jóns Gnarrs eða
lásu ævisögu Steves Jobs. Það er
stundum bara gott fyrir mann að
vera dálítið skrítinn og öðruvísi.
Það er vel þekkt að jákvæðir
fylgifiskar þunglyndis geta
verið sköpunarkraftur, samúð og
skilningur. Martin Luther King
og Gandhi glímdu til að mynda
báðir við þunglyndi og gerðu
tilraunir til sjálfsvígs sem ungling
ar, en urðu síðan óumdeildir
foringjar og fyrirmyndir sem
breyttu heiminum sannarlega til
góðs. Báðir voru áhrifamiklir og
slungnir stjórnendur samkvæmt
öllum stjórnunarfræðum.
Samúð og skilningur eru mikil
vægir eiginleikar í viðskiptum til
þess að skilja þarfir viðskipta-
vina. Sköpunarkraftur er svo
hjarta allrar frumkvöðlastarfsemi;
að fá hugmynd og fylgja henni
úr hlaði. Skapa og búa til. Því
eru alltaf ákveðin tengsl á milli
lista og viðskipta. Í viðskiptum og
fyrirtækjarekstri er verið að skapa
og búa eitthvað til. Þess vegna
Af þessu öllu er ljóst að
viðkunnanlegi jakkafata
klæddi lögfræðingurinn er
ekki endilega besti stjórn
andinn. Góður stjórn
andi og frumkvöðull þarf
nefnilega að vera opinn,
hugrakkur, samúðarfullur,
sókndjarfur, hugmynda
ríkur, víðsýnn og kannski
bara örlítið … galinn!
engum dylst eftir lestur ævisögu snillingsins
Steves Jobs, stofnanda Apple, að hann var
kynlegur kvistur.
Jón Gnarr hefur lýst sér í æsku sem ofvirkum
og með athyglisbrest.
kynlegir kVistir