Frjáls verslun - 01.04.2015, Síða 94
94 FRJÁLS VERSLUN 4 tbl. 2015
kVikmynDir
Fimmta kvikmyndin í Tortímandaseríunni, Terminator: Genisys, verður frumsýnd í
byrjun júlí og arnold Schwarzenegger er mættur aftur til leiks og að sjálfsögðu í titil
hlutverkinu sem gerði hann að hæst launuðu kvikmyndastjörnu í Hollywood. Mikið
vatn er runnið til sjávar í lífi þessa stæðilega leikara frá því hann lék fyrst T800 fyrir
30 árum. Í dag er hann 66 ára gamall, fyrrverandi ríkisstjóri í Kaliforníu, sterkríkur,
fráskilinn og enn liðtækur í hetjuhlutverk í stórum ævintýramyndum.
Schwarzenegger á fornar slóðir
Schwarzenegger ásamt fjölskyldu sinni árið 2003 þegar hann var
vígður inn í embætti ríkisstjóra Kaliforníu.
Arnold Schwarzenegger kominn í Tortímandagallann í Terminator: Genisys.
a
rnold Schwarzenegg er
er aftur kominn í fremstu
röð hetjuleik ara. Það
hefur ekki farið framhjá
neinum. Ekki er að sjá að þessi
fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníu
hafi náð betri tökum á enskunni,
sem hann mun sjálfsagt aldrei
fara lipurlega með, en hann er
farinn að gera aftur það sem
hann kann best; að leika ofurhetj
ur í kvikmyndum, og þá er óþarfi
að tala flotta ensku.
Það vill svo til að ein af síð ustu
kvikmyndunum sem Schwarze n
egger lék í áður en hann bauð
sig fram sem ríkisstjóri var
T ermi n ator 3: Rise of the Machine,
þann ig að það var við hæfi að
hann tæki upp þráðinn. Ekki kom
þó að Terminator: Genisys fyrr
en hann hafði leikið í Expenda
bles 2 og Expenda bles 3 og
Escape Plan þar sem mótleikari
hans í öllum myndunum þremur
var Sylvester Stallone, annar
hetjuleikari sem kominn er á
sjötugsaldur og ekki frekar en
Schwarzenegger maður hins
talaða máls.Meðfram því að leika
í hverri myndinni á fætur annarri
hefur mikið gengið á í einkalífinu.
Eiginkonan, Maria Shriver, sem er
af Kennedyættinni, systurdóttir
Johns F. Kennedys, skildi við
hann eftir að upp komst að hann
átti barn með konu sem starfaði
á heimili þeirra Mariu. Maria
flutti strax frá honum þegar hún
komst að þessu og skilnaður
gekk í gegn stuttu síðar, en þau
eiga saman fjögur börn. Barnið
sem um ræðir er á unglingsaldri
og átti hann það áður en hann
bauð sig fram til ríkisstjóra í fyrsta
sinn. Móðir barnsins starfaði fyrir
fjölskylduna í meira en tuttugu ár.
Scwarzenegger var fullur iðrunar
og sagði við fjölmiðla: „Eftir að ég
hætti störfum sem ríkisstjóri sagði
texti: HilMar Karlsson