Listin að lifa - 01.06.2005, Blaðsíða 46
Sambýlin eru
stór heimili
Sambýlið á Skjólbraut la er talið hið fyrsta sinnar tegundar á
landinu. Kópavogsbær braut blað í sögunni varðandi úrræði
fyrir aldraða, þegar bærinn hóf þar reksturfyrir rúmum 18
árum. Sambýlisform fyrir fatlaða var þekkt, en slíkt búsetu-
form var nýmæli fyrir aldraða.
Hugmyndafræðin að baki var að skapa öldruðum, sem ekki
gátu lengur séð um eigið heimilishald, öruggt heimili með aðstoð
og umönnun, án hjúkrunar. Heimilisfólk á sambýli þarf að vera
nokkuð sjálfbjarga í daglegu lífi, en mikið er lagt upp úr því að
virkja hvern og einn til þátttöku í heimilislífinu.
Elín Kröyer var forstöðukona á Skjólbraut í 17 ár. „Við
töluðum aldrei um Skjólbrautina sem stofnun, heldur heimili.
Margir gestanna töluðu um hvað væri heimilislegt að koma til
okkar, enda var húsið byggt sem einbýlishús. I svona búsetuformi
verður allt miklu nánara, heimilisfólk og starfsfólk. Sambýlið er
ólíkt skemmtilegra og mannlegra en þessar stóru stofnanir," segir
Elín.
Sambýlin í Kópavogi eru rekin á daggjaldakerfi og dvalar-
heimilisuppbót frá ríkinu, einnig mánaðargjöldum frá heim-
ilisfólki, þ.e. ellilífeyri og tekjutryggingu, en heimilismenn halda
vasapeningum eftir. Kópavogsbær sér um rekstur húsanna.
Ijj „Ég hefnotað SagaPro um
nokkurn tíma og er afar
ánægður með árangurinn. Ég
tek eina töflu áður en ég fer að
sofa og hef verið nær laus við
salernisferðir á nóttunni og
m 1 þakka það notkun á SagaPro."
Vaknar þú oft á nóttunni?
SagaPro er ný vara frá SagaMedica sem sérstaklega
er ætluð karlmönnum. Hún
er unnin úr ætihvönn
sem er ein þekktasta
íslenska lækningajurtin.
Rannsóknir sýna að jurtin
inniheldur efni sem gagnast
blöðruhálskirtlinum.
sagaMedica
www.sagamedica.is
LITADYRÐ
Bútasaumsefni í sívaxandi úrvali
Rómantísk ítölsk náttföt, alltaf sígild
Prjónagarn í öllum regnbogans litum
Nál og tvinni í miðbænum á ný
íslensk hönnun, frá tehettum til værðarvoða
Verið velkomin að líta inn, alltaf einhver tilboð.
Diza s: 561 4000
Ingólfsstræti 6 www.diza.is
46