Fréttatíminn - 12.06.2015, Side 4
LANCÔME BRÚÐARFÖRÐUN
Í LYFJUM OG HEILSU KRINGLUNNI
FIMMTUDAG TIL SUNNUDAGS.
GLÆSILEGUR KAUPAUKI ÞEGAR KEYPT ER FYRIR 8.900* EÐA MEIRA.
Kristjana Rúnarsdóttir Lancôme National make up artist ásamt snyrti- og förðunarmeistara
veita ráðgjöf fyrir brúðarförðun og undirbúning húðarinnar fyrir stóra daginn.
20% AFSLÁTTUR AF LANCÔME Á KYNNINGUNNI
GÁTLISTI BRÚÐARINNAR:
· Ef þú mættir aðeins hafa einn hlut meðferðis
á brúðkaupsdaginn eru þerriblöðin ómissandi.
· Varalitur
· Miracle Cushion farði í boxi
· Vatnsheldur maskari
· Ilmurinn þinn
BRIDAL COLLECTION 2015
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
N-átt og sólríkt. svalt fyrir
NorðaN og Næturfrost.
Höfuðborgarsvæðið: Léttskýjað,
en norðan kæLa.
væta a-laNds eN aNNars þurrt
og bjart. eNN frekar svalt.
Höfuðborgarsvæðið: sóLskin
og tært Loft en svöL goLa.
Hæglátt veður og HlýNar
fyrir NorðaN og austaN.
Höfuðborgarsvæðið: enn spáð
sóLskini og einnig hægum vindi.
lokaleifar kuldans – og
sumarhiti eftir helgi
enn leynast kaldir pollar á norðurhjar-
anum og með ólíkindum hvað þeir sækja
okkur heim. sá síðasti er nú á ferðinni
með kulda, sérstaklega fyrir norðan og
austan. gæti hæglega sett snjóföl á fjall-
vegi austanlands í nótt. hins
vegar er spáð mjög sólríku veðri
á landinu heilt yfir og notarlegt
sunnan undir húsvegg. á
sunnudag verða breytingar,
n-áttin koðnar endanlega
niður og ekta sumarlegt loft
úr suðri stefnir rólega, en
ákveðið til landins.
10
8 6
5
12
11
9 5
4
14
12
10 9
10
14
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
P eningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði vexti bankans um 0,5 prósentur
á miðvikudaginn. Meginvextir
bankans, vextir á sjö daga bundnum
innlánum, verða því 5%. Í yfirlýsingu
nefndarinnar segir að þótt verðbólga
sé enn lítil hafi verðbólguhorfur
versnað verulega miðað við síðustu
spá Seðlabankans og verðbólguvænt
ingar hækkað. „Nú eru horfur á að
verðbólga verði meiri en bankinn
spáði í maí, sem rekja má til þess
að þegar hefur verið samið um mun
meiri launahækkanir en gert var ráð
fyrir í spá bankans,“ segir í yfirlýs
ingunni.
„Til þess að liðka fyrir kjarasamn
ingum,“ segir enn fremur, „hefur
ríkisstjórnin kynnt aðgerðir sem
munu auka ríkisútgjöld og draga úr
skatttekjum. Aðgerðirnar hafa enn
sem komið er ekki verið fjármagn
aðar og fela því að öðru óbreyttu í sér
slökun á aðhaldi í ríkisfjármálum.
Einnig hafa verið kynntar aðgerðir
stjórnvalda er miða að því að búa í
haginn fyrir losun fjármagnshafta.
Sumar þeirra munu afla ríkissjóði
tekna sem mikilvægt er að verði ráð
stafað þannig að það verði ekki til
þess að auka enn frekar á spennu í
þjóðarbúskapnum með því að virkja
peningamagn sem til þessa hefur
verið óvirkt. Peningastefnunefndin
mun fylgjast grannt með framvind
unni og grípa til viðeigandi aðgerða
til mótvægis ef þörf krefur.“
Horfur um þróun launakostn
aðar, hækkun verðbólguvæntinga
og vísbendingar um öflugan vöxt
eftirspurnar valda því, að mati
nefndarinnar, að óhjákvæmilegt er
að bregðast nú þegar við versnandi
verðbólguhorfum þrátt fyrir að verð
bólga sé enn undir markmiði. „Enn
fremur virðist einsýnt að hækka þurfi
vexti umtalsvert í ágúst og frekar á
komandi misserum eigi að tryggja
stöðugt verðlag til lengri tíma litið.“
Vaxtahækkun Seðlabankans fer
saman við helstu niðurstöður könn
unar á stöðu og framtíðarhorfum
stærstu fyrirtækja landsins, sem
gerð var í maí 2015 af Gallup fyrir
Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka
Íslands og birt í gær, fimmtudag. Þar
kemur fram að þriðjungur stjórn
enda telur að núverandi aðstæður
í atvinnulífinu séu góðar, tæplega
fimmtungur að þær séu slæmar, en
helmingurinn að þær séu hvorki
góðar né slæmar. Væntingar um
að aðstæður fari batnandi eru mun
minni en áður. Nægt framboð er
af starfsfólki en helst skortir það í
byggingarstarfsemi, flutningum og
ferðaþjónustu. Stjórnendur gera ráð
fyrir lítilsháttar fjölgun starfsmanna
næstu sex mánuði.
Að jafnaði vænta stjórnendur 4,0%
verðbólgu á næstu 12 mánuðum
sem er mikil breyting frá sambæri
legri könnun í desember 2014 þegar
stjórn endur væntu þess að 2,5% verð
bólgumarkmið Seðlabankans næðist
á árinu.
jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
seðlabankinn stýrivextir hækkaðir um 0,5 Prósentur
Frekari vaxtahækkun boðuð
Brúnin þyngist á stjórnendum fyrirtækja. væntingar eru minni en áður og þeir gera ráð fyrir
aukinni verðbólgu.
peningastefnunefnd seðlabanka Íslands, Þórarinn g. pétursson, katrín ólafsdóttir, már guðmundsson, arnór sighvatsson og
gylfi Zoëga. Ljósmynd/seðalbankinn
Enn fremur
virðist einsýnt
að hækka
þurfi vexti
umtalsvert í
ágúst og frek-
ar á komandi
misserum eigi
að tryggja
stöðugt verð-
lag til lengri
tíma litið.
Flestir vilja í Versló
rúmlega fjögur þúsund sóttu um fram-
haldsskólavist en umsóknarfrestur
rann út á miðvikudag. flestir vilja
fara í verzlunarskóla Íslands en fjórir
framhaldsskólar fengu umsóknir frá
fleiri nemendum en þeir geta tekið við,
versló, kvennaskólinn, mr og hh. um
það bil þrisvar sinnum fleiri nýnemar
sóttu um skólavist í kvennó í haust en
pláss er fyrir.
Meiri þorskur
hafrannsóknarstofnun leggur til að
þorskafli á næsta fiskveiðiári verði
239 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári.
Það er aukning um 23 þúsund tonn frá
aflamarki yfirstandandi árs og hæsta
aflamark í þorski á þessari öld. Jóhann
sigurjónsson, forstjóri stofnunarinnar,
segir að árgangur 2014 sé nokkuð yfir
meðallagi og lofi góðu. Hann segir enn
fremur að ástand flestra mikilvægust
nytjastofna við landið sé vel viðunandi.
enn er þó óljóst hvort makríllinn skilar
sér en sjór við landið er kaldari en verið
hefur.
Átta þúsund sækja um nám í HÍ
háskóla Íslands bárust liðlega átta
þúsund umsóknir um grunn- og fram-
haldsnám fyrir komandi skólaár. alls eru
umsóknir um grunnnám tæplega fimm
þúsund en að auki bárust skólanum
rúmlega þrjú þúsund umsóknir þeirra
sem hefja vilja framhaldsnám í haust.
vikan sem var
500 spjaldtölvur afhentar í kópavogi
kópavogsbær afhenti
í gær, fimmtudag, 500
spjaldtölvur til kennara
í grunnskólum bæjarins.
Í byrjun næsta skólaárs
verða fyrstu nemenda-
tækin afhent og þegar
innleiðingu lýkur haustið
2016 munu allir nemendur
á mið- og unglingastigi
hafa spjaldtölvur til
afnota. „spjaldtölvuvæðing
skólanna er þáttur í þeirri
stefnu okkar að skólar í
kópavogi séu í fremstu
röð skóla á Íslandi,“
sagði ármann kr. ólafs-
son bæjarstjóri við
afhendinguna.
4 fréttir Helgin 12.-14. júní 2015