Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 70
Birgir Þór Ómarsson, formaður Frisbígolfsambands Íslands, heillaðist af íþróttinni þegar hann stundaði nám í Bandaríkjunum.
Ljósmynd/Hari
FrisbígolF Námskeið á klambratúNi
Vilja fá fleiri konur
til að stunda frisbígolf
Frisbígolfsamband Íslands stendur fyrir námskeiði í frisbígolfi á Klambratúni á morgun, laugar-
dag. Finninn Jenni Eskelinen er Evrópumeistari í greininni og mun hún halda tvö námskeið yfir
daginn, annað er sérstaklega ætlað fyrir konur, en með því vill Frisbígolfsambandið auka áhuga
kvenna á íþróttinni.
F yrsti frisbígolfvöllurinn var tekinn í notkun á Úlfljótsvatni fyrir 15 árum, en á síðustu 5 árum hefur
orðið algjör sprenging í greininni,“ segir
Birgir Þór Ómarsson, formaður Frisbí-
golfsambands Íslands. Hann kynntist
íþróttinni þegar hann stundaði nám í
Bandaríkjunum og varð algjörlega heill-
aður. „Þetta er ódýrt og heilsusamlegt
sport sem hentar öllum aldurshópum.
Þú þarft að minnsta kosti að hafa ein-
staka hæfileika til að geta ekki kastað
frisbídiski,“ segir hann og hlær. Vellirnir
hér á landi eru orðnir 20 talsins, þar af
fimm í Reykjavík, og sífellt fleiri bætast
við. „Segja má að íþróttin hafi farið á flug
þegar Besti flokkurinn tók við í Reykjavík.
Eitt af kosningaloforðum þeirra var að efla
Klambratún sem útivistarsvæði og við
gripum tækifærið og sendum Jóni Gnarr
skeyti þess efnis að koma fyrir frisbígolf-
velli og hann var ekki lengi að græja það,“
segir Birgir.
Um helgina mun Íslenska frisbígolfsam-
bandið í samvinnu við Frisbígolfbúðina
standa fyrir námskeiði þar sem Jenni
Eskelinen, Evrópumeistari í frisbígolfi,
mun kenna áhugasömum réttu tæknina.
„Námskeiðin verða tvö yfir daginn og
fara fram á Klambratúni. Klukkan 13
verður námskeið einungis fyrir konur og
klukkan 16 verður námskeið opið öllum.
Með þessu fyrirkomulagi langar okkur
að auka áhuga kvenna á þessu frábæra
sporti og vonandi grípa þær tækifærið og
læra handtökin af þessum snillingi,“ segir
Birgir.
Jenni hefur stundað frisbígolf í sex ár
og fór að æfa af kappi þegar hún fattaði
að hún kastaði töluvert lengra en aðrir í
vinahópnum. Nú eru hún atvinnumaður
í greininni. „Við Íslendingar eigum enga
atvinnumenn í frisbígolfi ennþá en það er
örugglega ekki langt í það,“ segir Birgir.
Aðspurður um ástæður þess hvers vegna
fleiri karlar en konur stundi frisbígolf seg-
ist hann ekki vera viss. „Ég hvet hins veg-
ar konur á öllum aldri til að mæta á morg-
un.“ Ekki er þörf að skrá sig sérstaklega á
námskeiðið. „Jenni mun ekki vísa neinum
frá, hún er menntaður íþróttafræðingur
og starfar sem íþróttakennari, hún mun
því ekki eiga í neinum vandræðum með að
kenna áhugasömum núverandi og tilvon-
andi frisbígolfurum,“ segir Birgir.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Þetta er
ódýrt og
heilsusam-
legt sport
sem hentar
öllum
aldurs-
hópum.
Brian Muir með konu sinni en hann skapaði meðal annars útlit Svarhöfða.
Nexus star Wars dagur
Hönnuður Svarthöfða á landinu
Myndhöggvarinn Brian Muir, sem skap-
aði útlit Svarthöfða og hannaði Storm
Trooper búningana í Star Wars mynd-
unum, mun verða viðstaddur Star Wars
dag í versluninni Nexus á laugardaginn.
Muir hefur verið 50 ár í bransanum
og hannað fyrir fjölmargar Hollywood
myndir eins og James Bond, Indiana Jo-
nes, Avengers og Marvel og Disney, svo
einhverjar séu nefndar. Skipuleggjandi
dagsins, listamaðurinn Odee, segist
hafa kynnst Muir þegar sá síðarnefndi
keypti verk af Odee.
„Hann keypti af mér verk og síðan hef
ég verið í sambandi við hann á Facebo-
ok,“ segir Odee. „Hann og konan hans
höfðu mikinn áhuga á því að koma til
Íslands, svo ég hjálpaði þeim bara með
það. Hann var svo milliliður þess að Star
Wars fyrirtæki í Bretlandi keypti líka af
mér verk og við höfum bara haldið vin-
skap,“ segir hann.
Í Nexus á laugardaginn verður Brian
með áritanir og segir gestum sögur úr
bransanum enda reynslubolti mikill.
„Hann er mjög skemmtilegur karl og ég
hvet sem flesta áhugamenn um kvik-
myndir að koma,“ segir Odee. Viðburð-
urinn stendur frá klukkan 12 til klukkan
16 á laugardag í Nexus, Nóatúni 17. -hf
Svokallað Sneaker ball
verður haldið í Gamla
bíói í kvöld, föstudags-
kvöld. Fram koma Úlfur
Úlfur, B-Ruff og Jay-O
ásamt heitasta gaurnum
í Reykjavík um þessar
mundir, sjálfum Gísla
Pálma. Aðeins boðs-
gestum verður hleypt
inn í partíið og það sem
gerir þetta kvöld öðru-
vísi en önnur er að það
er skylda að mæta í NIKE
skóm.
Royal ball í Iðnó
Hljómsveitin Royal, sem stofnuð
var af starfsfólki í Háskólanum
í Reykjavík fyrir nokkrum árum,
heldur sumardansleik í Iðnó
16. júní næstkomandi. Royal
hefur verið iðin við spilamennsku
undanfarin ár og greinilegt að það
er bónus að spila á hljóðfæri ef
sótt er um starf í HR. Húsið opnar
klukkan 22 og hefst dansleikurinn
klukkutíma síðar. Miðasala er á
midi.is og við inngang.
OMAM hjá Jimmy Fallon
Óskabörn þjóðarinnar í Of Monsters And Men halda
áfram sigurgöngu sinni um heiminn með útkomu
nýjustu plötu sinnar Beneath The Skin. Í vikunni
komu þau fram í kvöldþætti Jimmy Fallon í Banda-
ríkjunum sem er gríðarlega vinsæll um allan heim.
Þeim var vel tekið og greinilegt að nýja efnið er að
hitta í mark. Fyrr í vikunni kom sveitin einnig fram
í þættinum Good Morning America sem nær um
gjörvöll Bandaríkin. Sveitin er á tónleikaferðalagi
um þessar mundir og miðað við viðtökur er óljóst
hvenær henni lýkur.
Sneaker ball
Smáratorgi 3 · Kópavogi · 550 2700
Nú versla Íslendingar á netinu...
á Heimkaup.is!
RISAÚTSALA!
Gerð bestu raftækjakaup sumarsins á vefnum!
heimkaup.is
VERÐ ÁÐUR
44.990,-
29.990,-
HW-H355
SAMSUNG 2.1
HEIMABÍÓ - SOUNDBAR
33
afsláttur
%
Dúndur
hljómur!
70 dægurmál Helgin 12.-14. júní 2015