Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 24
hann útskýrði fyrir henni niður-
stöðurnar en vinur hennar sem
hafi meira vit á slíku sérfræðitali
hafi sem betur fer verið viðstaddur
og hans viðbrögð: „Það eru frábær-
ar fréttir!“ hafi létt á áhyggjunum.
Hann hafi svo bætt við að fréttirnar
væru góðar þar sem þá væri ljóst að
einkennin gengju til baka auk þess
sem engar skemmdir hafi komið í
ljós á heilanum.
„Ég óttaðist helst að ekki fynd-
ist hvað ylli þessu og ég yrði áfram
svona en ég gat ekki einu sinni
gengið óstudd, og varð því mjög létt
þegar læknirinn sagði að ég væri
heppin og ætti að jafna mig að fullu.
Ég hef alltaf verið mjög heilsuhraust
og aldrei neitt amað að. Það var
mikið áfall þegar fótunum er svona
kippt undan manni. Mamma systr-
anna Selmu og Birnu, vinkvenna
minna, sem ég hef þekkt frá því ég
var stelpa, sagði við mig þegar hún
kom á spítalann: „Jæja, Björk. Þú
ert þá ekki úr stáli eftir allt saman.“
Það var mikil áskorun fyrir mig að
sleppa takinu og þiggja alla þá góðu
hjálp sem ég fékk. Barnsfaðir minn
bjó á mínu heimili með krakkana,
það var hluti af því að sleppa takinu
og var hreinlega frábært. Þetta var
það besta fyrir börnin sem fengu
þannig að vera á sínu heimili og eitt-
hvað jákvætt og gott kom í staðinn
fyrir erfiðleikana; mamma fór á spít-
alann en pabbi kom heim. Hann fór
svo með þau til Noregs í þessarri
viku og verða þau þar fram í ágúst.
Ég held að það sé best fyrir alla,“
segir hún.
„Þetta er mikill lærdómur og til
dæmis lét ég foreldra mína ekki vita
að ég lægi á spítala fyrr en sólar-
hring síðar og hef fengið þónokkr-
ar áminningar frá þeim um að það
séu ekki ásættanleg viðbrögð. Ég
er þeim sammála núna, en á þeirri
stundu vildi ég einfaldlega ekki
valda neinum áhyggjum og var því
frekar ein, með bullandi áhyggjur,“
segir hún og hristir höfuðið.
Björk segir það hafa verið sér-
lega erfitt að taka því að hún hafi
fengið heilablóðfall því hún hafi
alltaf hugað vel að heilsunni, jafn-
vel þó læknar sögðu að svona gæti
gerst án nokkurrar raunverulegrar
skýringar. Hún er virk í hreyfingu,
hefur gengið á þónokkuð mörg fjöll
og gekk til að mynda á Hvannadals-
hnúk árin 2012 og aftur 2013, fer í
Tabata-tíma þrisvar í viku, hjólar og
reynir að passa upp á að ná góðum
svefni og borða skynsamlega. Þeg-
ar fregnir af veikindunum tóku að
breiðast út voru það fyrstu viðbrögð
margra að Björk hlyti að hafa unnið
of mikið og er Björk ósátt við það.
„Ég held að karlmaður í sömu stöðu
hefði ekki fengið þessi viðbrögð. Ég
held að konum leyfist ekki að vinna
jafn mikið og körlum því innst inni
finnst okkur að konur eigi að verja
meiri tíma í að sinna heimili og fjöl-
skyldu. Ég hef alltaf verið orkumikil
og virk, og það hentar mér að vinna
mikið enda er vinnan mín virkilega
skemmtileg og gefur mér mikið. Ég
hugsa líka vel um börnin mín, við
erum mjög náin og ég vona að ég sé
þeim góð móðir þó ég sé ekki alltaf
með heitan kvöldmat eða heima-
bakað. Sumir lögðu til að við Auður
myndum ekki gefa út júníblað af
MAN vegna veikinda minna en það
kom ekki til greina í okkar huga,
enda erum við með fjölda hæfs fólks
í vinnu sem kemur að hverju tölu-
blaði og berum skyldur til lesenda
okkar. MAN er okkar fyrirtæki, ég
borga mín eigin laun og allir sem
reka heimili einir vita að það er ekk-
ert hægt að sleppa innkomu í einn
mánuð.“
Svik Hönnu Birnu
Björk segir það einmitt hluta af því
að vera ábyrg móðir að vera börnum
sínum góð fyrirmynd og sýna þeim
í verki að stundum þarf blóð, svita
og tár til að láta drauma sína rætast.
„Mig hafði lengi dreymt um að gefa
út mitt eigið tímarit og mig hafði
dreymt um að stjórna mínum eig-
in sjónvarpsþætti. Börnin mín eru
einkar sjálfstæð en það auk góðs
sjálfstrausts held ég að sé mikil-
vægt veganesti út í lífið og legg ég
mikla áherslu á hvoru tveggja í upp-
eldinu.“
Björk sýndi sjálf mikið sjálfstæði
og dirfsku þegar hún henti for-
síðuviðtali maí tölublaðs MAN við
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í heilu
lagi þegar prentun blaðsins átti að
vera hafin. Fjallað var um málið í
fjölmiðlum en Hanna Birna fór í við-
tal í Íslandi í dag þegar MAN átti
að vera farið í prent og sagði allt
það sem hún hafði sagt í viðtalinu
í MAN og meira til. „Á 10 ára ferli
í blaðamennsku hef ég aldrei lent í
öðru eins. Setningar sem hún sagði
í viðtalinu hjá okkur endurtók hún
í Íslandi í dag. Hún sagði meira að
segja forsíðufyrirsögnina orðrétta.
Það gefur auga leið að það einfald-
lega gengur ekki upp að vera í sams-
konar viðtali á tveimur stöðum á
sama tíma. Við gerðum með okkur
sama samkomulag og við gerum
við alla, að fólk sé ekki í viðtölum
annars staðar í minnst tvær vikur
frá því blaðið kemur út. Í hennar til-
viki var hún að koma aftur á þing
eftir lekamálið og því var það niður-
staðan að hún myndi fara í frétta-
viðtöl en engin persónuleg viðtöl.“
Björk segir að Hanna Birna hafi
sent henni sms daginn fyrir viðtalið
í Íslandi í dag og því ákvað Björk að
bíða með prentun á MAN sem ann-
ars var algjörlega tilbúið til prent-
unar og horfa á þáttinn. Spurð hvort
hún líti á þetta sem svik Hönnu
Birnu við sig segir hún: „Auðvit-
að eru þetta svik. Hún vissi að ég
ætlaði að taka afstöðu eftir áhorfið
og eftir það sendi ég henni póst um
að þetta viðtal myndi ekki birtast,“
segir Björk sem síðan hefur ekki átt
samskipti við Hönnu Birnu. „Hlut-
irnir hafa tilhneigingu til að fara vel
á endanum,“ bætir hún við.
Grimm samkeppni
Í ljósi þess að MAN er lítið fyrirtæki
í eigu tveggja kvenna segir Björk að
það hafi verið stór biti að henda for-
síðuviðtali, auk forsíðumyndatöku
sem fjöldi manns kemur að. „MAN
verður tveggja ára í september. Við
erum lítið fyrirtæki í samkeppni við
útgáfurisana Birtíng og 365 á tíma-
ritamarkaði, og við gerum miklar
kröfur um að blaðið okkar sé vand-
að og spennandi. Engu að síður
þurfum við að reyna að halda kostn-
aði í lágmarki. Við Auður erum bara
nýhættar að sjá um dreifinguna
sjálfar. Blaðinu var dreift fyrir okk-
ur úti á landi en á höfuðborgarsvæð-
inu fórum við tvær mánaðarlega í
allar verslanir með MAN. Þetta
var orðið fullmikið aukaálag ásamt
öllu hinu sem viðkemur rekstrinum
þegar komið var á annað ár en við
getum nú leyft okkur að láta aðra
sjá um dreifinguna. Það góða við
að fara sjálfar á alla sölustaði er að
við höfum getað tekið virkan þátt í
baráttunni fyrir staðsetningu, sem
skiptir öllu þegar tímarit eru seld
í verslunum. Við verðum oft varar
við að tímarit samkeppnisaðilanna
eru sett ofan á okkar, þannig að þau
sjást ekki. Það er ekkert leyndarmál
að við höfum þurft að berjast við
Birtíng, og svo núna líka 365. Sam-
keppnin er grimm og þess vegna
förum við tvær reglulega í verslanir
til að tryggja að okkar tímarit sé á
réttum stað og sýnileg. Svo finnst
okkur líka svo gaman að vera í góð-
um tengslum fólkið okkar og vera
á ferðinni.“
Ég er búin að lofa að keyra Björk
á skrifstofu MAN í Ármúla eftir
viðtalið. Hún mætti þangað í fyrsta
sinn viku áður, eftir þriggja vikna
frí, og er enn ekki farin að keyra bíl.
Björk segist hafa verið að taka því
rólega en ég bendi henni á að það
sé ekki beint slökun að hafa skilað
tímariti í prent og tekið upp nýjan
þátt af Kvennaráðum, jafnvel þó hún
hafi lagt sig á skiladegi MAN. „Ég
hef jafnað mig ótrúlega fljótt en ég
hlusta sannarlega á líkamann, sem
segja má að leyfi mér ekki annað.
Það er alvarleg áminning að fá heila-
blóðfall. Þó ég grínist stundum með
þetta þá tek ég þessu af fullri alvöru
og ætla bara að taka eitt skref í einu.
Eða tvö.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Björk tók „selfie“ á sjúkrahúsinu til að eiga vitnisburð um spítalavist eftir heilablóð-
fall. Hér sést berlega munurinn á hægri og vinstri hluta andlitsins.
Myndin sem Björk sendi Birnu vinkonu
sinni og Birnu grunaði þá strax að Björk
hefði fengið heilablóðfall, eftir að hafa
heyrt hana lýsa fleiri einkennum.
Facebook.com/fundurfolksins – #fundurfolksins @fundurfolksins – Fundur folksins appið
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS
FRÁ 58.900kr
FRÁ
69.000kr
SANDKASSAR
BORÐ OG
BEKKIR
FRÁ
106.800kr
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
RÓLUR
LEIKTÆKI
LEIKFÖNG
REIÐHJÓLAGRINDUR
24 viðtal Helgin 12.-14. júní 2015