Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 42
Æ tlar þú að rækta garðinn þinn í sumar? Góður jarðvegur er grunnurinn að farsælli ræktun, hvort sem um er að ræða krydd- og matjurtir eða annars konar plöntur. Besti jarðvegur sem hægt er að fá er sá jarðvegur sem garðræktandi býr til sjálfur og í hann er tilvalið að nota ýmislegt sem fellur til í eldhúsinu. Talið er að frá þriggja manna fjöl- skyldu komi um 1200 kíló af sorpi á ári og að helm- ingur þess sé endurnýtanlegur, svo sem ýmis konar afgangar. Hér er dæmi um þrenns konar lífrænan úr- gang sem stuðlar að öflugri jarðvegi og ætti því ekki að fara í ruslið, heldur beint í garðinn. Kaffikorgur: Kaffikorgur er dæmi um úrgang sem á aldrei að fara í venjulegt rusl. Hann er lífrænn og því tilvalinn sem almennur áburður. Kaffikorgur inniheldur nitur sem eykur vöxt gróðursins. Korgurinn hefur ekki áhrif á sýrustig jarðvegsins nema að hann sé notaður í mjög miklu magni. Bananahýði: Skerðu banana- hýðið í smærri bita og bættu beint út í jarðveginn. Hýðið brotnar hratt niður og stuðlar þannig að gómsætum næringar- efnakokteil fyrir plönturnar, sem inniheldur til dæmis kalsíum, magnesíum, fosfat, kalín og sódíum, sem hafa blómstrandi áhrif á plöntur. lÍs en ku ALPARNIR s Kúlutjöld - fjölskyldut jöld - gö ngutjöl d Tjaldasalur - verið velkom in Savana Junior (blár og rauður) Kuldaþol -15˚C Þyngd 0,95 kg Trekking (Petrol og Khaki) Kuldaþol -20˚C Þyngd 1,65 kg Micra (Grænn og blár) Kuldaþol -14˚C Þyngd 1 kg VERÐ KR 11.995,- VERÐ KR 13.995,- VERÐ KR 16.995,- FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS 20% afsláttur af tjöldum í dag Eggjaskurn: Safnið saman eggjaskurn og geymið í íláti við sólríkan glugga (eða þar sem er tiltölulega hlýtt) í nokkra daga. Þurr eggja- skurn brotnar auðveldlega niður og því er auðvelt að blanda henni saman við jarðveginn. Eggjaskurnin er rík af kalsíum sem hjálpar til við vöxt plantna. Skurnin fælir einnig burt snigla, en þeir forðast víst eggjaskurn eins og við forðumst að ganga á glerbrotum. Einn- ig er hægt að mylja eggjaskurn út í vatn og nota til vökvunar, en skurnin er fínasti kalkgjafi. Nýtum afgangana í garðræktina Frjókornamælingar: Á vef Náttúru- fræðistofnuna Íslands (www.ni.is) má finna frjódagatal. Þannig er hægt að fylgjast með magni frjókorna í lofti dag hvern. Afmælisdagur getur skipt máli: Rannsóknir benda til þess að börn fædd á frjókornatímabilum séu líklegri en önnur börn til að fá frjókornaofnæmi þegar þau vaxa úr grasi. Pör í barn- eignahugleiðingum gætu því haft það í huga. Minni garðvinna: Þeir sem eru haldnir ofnæmi fyrir grasi ættu að reyna að fá einhvern annan til að slá blettinn. Nota þurrkarann: Ekki þurrka þvott á snúru utandyra þegar mikið er af frjókornum í loftinu því að þau setjast í föt og lín. Hárþvottur: Frjókorn festast auð- veldlega í hári, sér í lagi ef það er sítt. Hárþvottarnir ættu því að vera fleiri yfir sumartímann. Ofnæmislyf: Margir sem eru illa hrjáðir af frjókornaofnæmi þurfa einnig að grípa til lyfjanotkunar. Mikilvægt er að slík lyf séu aðeins notuð í samráði við lækni. Sex góð ráð gegn frjókornaofnæmi Nú er tími frjókorna að renna upp og mun hann ná hámarki í byrjun ágúst. Þau frjókorn sem algengast er að valdi ofnæmi hér á landi eru frjókorn frá ýmsum grastegundum, en einnig frá súrum, birki og túnfíflum. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga til að draga úr einkennum frjókornaofnæmis. 42 heimili Helgin 12.-14. júní 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.