Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 61

Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 61
Ég er ekki samkynhneigður en kann þó vel að meta blöndu sjarma og fegurðar í kynbræðrum mínum. En það er þó ekki sama hvernig er þessi blanda er sett á flöskur, ef svo má segja. Þegar við hjónin setjumst saman fyrir framan im- bann kemur yfirleitt í ljós að við höfum svo gott sem sama smekk á karlmönn- um. Viljum hafa þá mátulega grófa og alltaf – undantekningalaust með hár í andlitinu. Það þarf ekki að vera sítt hip- steraskegg en vel mótað og mátulega loðið skal granstæðið vera. Skeggið ljáir nefnilega stjörnunum karlmannlegan blæ. Allir sem hafa séð Huge Jackman í gervi Wolferine úr X-mönnunum vita að þar fer gríðarmikið menni. Sé sá sami maður skoðaður í tímaflakksrómans- inum Kate og Leopold fer ekki svo mik- ið fyrir karlmennskusjarmanum. Það sama er hægt að segja um minn mann, Timothy Olyphant. Hver er Timoty Oly- pahnt?, spyrð þú, kannski í fullum rétti. En hann er sjarmatröllið og skerfarinn úr hinum epísku þáttum Deadwood, hvar hann skartaði epískri skerfara- mottu. Svo leikur hann líka minn mann, Raylan Givens í Justified, sem sýndir eru á Stöð 3. Þar er hann án yfirskeggsins en alltaf léttir broddar sem duga til að hífa hann upp um nokkur sjarmafull karl- mennskuþrep. Enn færri vita svo að þessi sami Ti- mothy Olyphant lék illmennið í Die Hard 4.0 en ástæðan fyrir því að enginn man eftir illmenninu úr myndinni er einmitt vegna þess að hann var ekki með skegg- ið sitt og þar af leiðandi sjarmalaus með öllu. Leit út eins og 16 ára unglingur, rétt kominn úr mútum, að reyna að pönkast í Bruce Willis. Hjákátlegt. Aðrir sem svo ekki mega ekki við skeggleysinu eru til dæmis Tom okkar Selleck, Sam Elliot, Jason Lee og sjálfur Burt Reynolds. Þið gúgglið bara Jason og Sam. Hina kannist þið við og vitið að þetta er hárrétt hjá okkur hjónunum. Haraldur Jónasson 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun STÖÐ 2 07:00 Barnatími Stöðvar 2 09:35 Scooby-Doo! Leynifélagið 10:00 Tommi og Jenni 10:25 Xiaolin Showdown 10:45 Ben 10 11:35 iCarly (29/45) 12:00 Nágrannar 13:45 Poppsvar (3/7) 14:15 Dulda Ísland (6/8) 15:05 Lífsstíll (4/5) 15:35 Heimsókn (7/8) 16:00 Sjálfstætt fólk (26/26) 16:55 Grillsumarið mikla 17:15 Neyðarlínan (5/7) 17:45 60 mínútur (36/53) 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Sportpakkinn (94/100) 19:05 Britain’s Got Talent 20:40 Mr Selfridge (5/10) 21:30 Shameless (3/12) 22:25 60 mínútur (37/53) 23:15 The Jinx (4/6) 00:05 Backstrom (13/13) 01:00 Game Of Thrones (10/10) 01:55 Vice (11/14) 02:25 Daily Show: Global Edition 02:50 Misery 04:35 Mr Selfridge (5/10) 05:20 Fréttir 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 07:00 Pólland - Georgía 08:40 Gíbraltar - Þýskaland 10:20 Cleveland - Golden State: Leikur 4 12:00 MotoGP 2015 - Katalónía b. 13:05 Armenía - Portúgal 14:50 Goðsagnir efstu deildar 15:25 Ensku bikarmörkin 2015 15:55 Rússland - Austurríki b. 18:05 NBA Roundtable: Stars of the 90’s 18:35 Svíþjóð - Svartfjallaland b. 20:40 Úkraína - Lúxemborg 22:20 Litháen - Sviss 00:00 Golden State - Cleveland b. 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 10:20/19:20 N-Írland - Rúmenía 12:00 Wales - Belgía 13:40 Premier League World 2014/ 14:10 Sigurður Jónsson 14:55 Chelsea - Arsenal - 29.10.11 15:25 Lúðvík Arnarson 15:55/21:00 Slóvenía - England b. 18:00 Inter - Arsenal - 25.11.05 18:30 Manstu 22:40 Víkingur - FH 00:30 Pepsímörkin 2015 SkjárSport 15:30 Bundesliga Highlights Show 16:20 Bayern München - Freiburg 18:10 Mainz - Bayern München 20:00 Bundesliga Highlights Show 20:50 Wolfsburg - Bayern München 22:40 Bundesliga Highlights Show 14. júní sjónvarp 61Helgin 12.-14. júní 2015  Sjónvarp Loðnir menn á Skjánum Skeggið skapar manninn Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Sími 533 2220 lindesign.is Brúðkaupsgjön sem mýkist ár eftir ár Rúmföt frá 7.990 - 9.990 kr Yr 50 gerðir rúmfata til brúðargjafa Rúmföt 7.990 kr - 9.990 kr Við virðum náttúruna Þess vegna notum við ölnota innkaupapoka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.