Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 16
Væntingastjórnun
Árelía segir að rannsóknir á lífsánægju sýni U-
laga graf þar sem lífsánægjan nær botninum
við 46 ára aldur en fer svo aftur upp á við. „Þessi
þróun skýrist af því að þegar við erum á tvítugs-
og þrítugsaldri höfum við miklar væntingar til
framtíðarinnar og allt er mjög spennandi. Á
fertugsaldri er fólk almennt mjög upptekið við
að koma undir sig fótunum, vinna mikið og ala
upp börn. Þetta er tímabil álags þar sem fólk
leggur heilmikið á sig til að ná árangri. Þegar
fólk er komið á miðjan fimmtugsaldur gerir
það sér oftar en ekki grein fyrir að raunveru-
leikinn er alls ekkert í líkingu við vænting-
arnar, og fólk upplifir þetta sem við köllum
„mid-life crisis“. Ég tala um að konur þurfi að
fara í persónulegt uppgjör á þessum árum því
það eru bara tvær leiðir fram undan – að verða
betri eða bitrari. Þarna minnka væntingar til
framtíðarinnar og því verður framhaldið mun
ánægjulegra en fólk á von á, öfugt við það sem
gerðist þegar fólk var yngra. Það má því segja að
þetta snúist um væntingastjórnun,“ segir hún.
Miðaldra fólk eldra í dag
Árelía er sjálf 48 ára, verður 49 ára í haust. „Ég
er því komin aðeins upp aftur í lífsánægju,“ seg-
ir hún í léttum tón. Hún á tvö börn með seinni
manni sínum, Sigurði Áss Grétarssyni verk-
fræðingi, en yngsta barnið er 7 ára. Alls eiga
þau sex börn. „Ég er kannski svolítið dæmi-
gerð fyrir þær breytingar sem hafa átt sér stað
hjá konum á síðustu áratugum. Mín kynslóð er
sú síðasta sem horfði upp á konur verða gaml-
ar fimmtugar. Staðan er hins vegar sú að fólk
um sextugt í dag er á sama stað og fertugt
fólk var fyrir ekki svo löngu síðan. Formæður
okkar voru orðnar slitnar og þreyttar af lík-
amlegri erfiðisvinnu og barneignum á sama
aldri og konur eru jafnvel á hátindinum í dag.“
Með þessu breytingum hefur einnig breyst hvað
kallast skuli miðaldra. „Breytingar á lífsháttum
og betri heilbriðgisþjónusta hefur leitt til þess
að fólk er virkt mun lengur. Miðjan er nú milli
fimmtugs og sextugs, en var áður þegar fólk var
á aldrinum 40-45 ára,“ segir hún.
Seinna kynþroskaskeiðið
Árelía tekur fram að þó margir segi upp í
vinnunni, skilji við makann eða fari í heimsreisu
upp úr 46 ára aldrinum þá geti uppgjör á þessum
aldri einnig leitt til þess að viðkomandi finnur sig
enn betur í þeirri stöðu sem hann er í. „Það eru
ekki allir sem hafa þörf fyrir gagngerar breyt-
ingar á lífi sínu,“ segir hún.
Þá talar Árelía gjarnan um aðdraganda breyt-
ingaskeiðsins sem „seinna kynþroskatímabilið“
þar sem hormónar eru á fleygiferð og fólk fer jafn-
vel að fá ávísuðum þunglyndis- og svefnlyfjum
frá lækni. „Það er fullkomlega eðlilegt að upplifa
depurð á þessum tíma, og nú er ég ekki að tala
um raunverulegt þunglyndi sem vitanlega ber að
meðhöndla, heldur almenna depurð og ringul-
reið. Þegar unglingar haga sér á órökréttan hátt
hefur enginn áhyggjur af því vegna þess að allir
vita að þetta tímabil gengur yfir. Það ættu allar
konur að reikna með því að verða kannski eilítið
áttavilltar á þessum árum, og reikna líka með því
að lífsgleðin aukist að nýju áður en líður á löngu.
Frelsið sem þær upplifa þá er svo mikið að það er
eins og þær fái vængi.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
L ífsgleði fólks er minnst þegar það er 46 ára. Þetta sýna nið-urstöður rannsókna. Þetta er
sá aldur þar sem algengt er að fólk
leggist í mikla sjálfsskoðun og geri
upp líf sitt,“ segir Árelía Eydís Guð-
mundsdóttir, rithöfundur og dós-
ent við Viðskiptadeild Háskóla Ís-
lands. „Þetta er tíminn þegar flestir
eru búnir að byggja upp starfsferil,
kaupa íbúð, eignast börn, búnir að
gifta sig og jafnvel gifta sig aftur. Á
þessum aldri stendur fólk á tíma-
mótum og þarf að gera upp við sig
hvort það er sátt á þeim stað sem
það er, eða hvort það finnur þörf
fyrir breytingar,“ segir hún.
Árelía kennir leiðtogafræði við
HÍ, skrifar pistla á Smartlandið,
hefur gefið út þrjár fræðibækur um
vinnumarkaðinn, um stefnumótun í
eigin lífi og Á réttri hillu, leiðina til
aukinnar hamingju í lífi og starfi. Nú
hefur Árelía söðlað um hefur sent frá
sér sína fyrstu skáldsögu: „Tapað –
Fundið“ sem einmitt fjallar um konur
nálægt miðjum aldri. „Aðalpersónan
í þeirri bók heitir Halla Bryndís. Hún
er lögfræðingur, starfar sem formað-
ur slitastjórnar og er á leið til London
á mikilvægan fund með kröfuhöfum.
Hún tekur ferðatöskuna í flýti af færi-
bandinu á flugvellinum og lætur líða
úr sér kvöldið fyrir fundinn á hótel-
herberginu með glas af rauðvíni.
Það vill ekki betur til en svo að hún
hellir óvart rauðvíninu yfir hvítu
dragtina sína þegar hún dettur
um skóna sína á gólfinu. Eftir
góða sturtu ætlar hún að finna sér
önnur föt í ferðatöskunni og sér
þá að þetta er ekki hennar taska.
Í töskunni eru föt konu sem eru
í allt öðrum stíl en fatnaður Höllu
Bryndísar, en sem betur fer passa
þau og hún fer í fötum konunnar
á fund morguninn eftir. Í fram-
haldinu hefst atburðarás sem knýr
Höllu Bryndísi til að horfast í augu
við sjálfa sig, en við kynnumst líka
konunni sem á þessa tösku,“ seg-
ir Árelía en bókin fór beint í þriðja
sæti á metsölulista Eymundssonar
á sinni fyrstu viku í sölu.
Frelsið sem
þær upplifa
þá er svo
mikið að
það er eins
og þær fái
vængi.
Árelía Eydís
Guðmundsdóttir
segir að eftir
miðjan fimm-
tugsaldur verði
konur annað
hvort betri eða
bitrari og mikil-
vægt sé að þær
fari í persónu-
legt uppgjör á
þessu tímabili
til að geta orðið
enn betri.
Mynd/Hari
Árelía Eydís sendi frá sér
sína fyrstu skáldsögu á
dögunum og fór hún beint
í 3ja sæti á metsölulista
Eymundsonar.
Konur
verða betri
eða bitrari
46 ára upplifum við minnsta lífsgleði, samkvæmt niðurstöðum
rannsókna. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, rithöfundur og dósent,
segir eðlilegt að á þessum tímamótum fari fólk í uppgjör á lífi
sínu. Í aðdraganda breytingaskeiðsins upplifa margar konur
depurð, sem Árelía segir fullkomlega eðlilegan hluta af þessu
tímabili, sem hún kallar raunar seinna kynþroskaskeiðið. Árelía
hefur skrifað ýmsar fræðibækur en var að senda frá sér sína
fyrstu skáldsögu, Tapað – Fundið, sem fjallar um tvær konur
sem leggjast í ítarlega sjálfsskoðun.
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Með biðpósti sleppurðu við að pósturinn
hlaðist upp heima hjá þér meðan þú ert í fríi.
Pantaðu biðpóst á www.postur.is eða á næsta
pósthúsi og þú velur hvar pósturinn þinn bíður
eftir þér.
www.postur.is
PANTAÐU BIÐPÓST
FYRIR SUMARFRÍIÐ!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
3
-1
5
4
8
16 viðtal Helgin 12.-14. júní 2015