Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 8
FLUTTIR Velkomin í einn stærsta sýningarsal notaðra bíla á landinu að Kletthálsi 13. Enn betri þjónusta í enn betra umhverfi. VW Golf A7 GTI 2.0 DSG 5.190.0002013 12 Skoda Octavia Combi 1.6 TDI Kia Rio 1.4 LX 3.490.000 2.590.000 2013 2014 45 9 Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll 30 Skoda Fabia Ambient 1.2 2.450.0002015 0,5 MM Pajero 3.2 Instyle Toyota Auris Terra Eco 6.890.000 2.920.000 2012 2013 81 13 Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040 Þ essi þróun á eftir að ganga af frétta-ljósmyndun dauðri,“ segir Ásgeir Ásgeirsson, fréttaljósmyndari og verkstjóri PressPhotos á Íslandi, að forsvars- menn ýmissa viðburða gera í auknum mæli þær kröfur til ljósmyndara að þeir skrifi undir framsal á höfundarrétti á myndum sem teknar eru á viðburðunum. Ásgeir, einnig þekktur sem Geirix, segir PressPhotos hafa þurft að hverfa frá fjölda viðburða á síðustu árum vegna þessa en honum fannst þó enn lengra gengið þegar forsvarsmenn Color Run – hlaups sem fór fram á götum úti – reiddu fram slíka papp- íra. „Ég var með 3 ljósmyndara bókaða fyrir 7 miðla, þar af tvo erlenda. Ég aflýsti öllum þessum tökum. Við getum ekki verið í sjálf- boðavinnu fyrir Color Run eða aðra við- burði,“ segir hann. Á undanförnum árum hefur færst í vöxt að skipuleggjendur tónleika og annarra innan- húss viðburða láti ljósmyndara skrifa undir framsal á höfundarrétti, til að mynda vegna viðburða á vegum tónlistarhátíðarinnar All Tomorrows Parties (ATP) og Icelandic Airwaves. Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, lög- fræðilegur ráðgjafi Myndstefs, segir ekkert ólöglegt við þetta. Framsal á höfundarétti er heimilað í íslenskum höfundalögum, en þó er mikilvægt að sanngirnis- og samkeppnis- sjónarmiða sé gætt, og einnig reglna samn- ingaréttar, sem getur gert slíkt framsal eða slíka samninga ógilda, ef til dæmis samn- ingsforsendur eru þvingandi eða samn- ingsstaða ójöfn. „Þó má aldrei framselja sæmdarrétti, og því þarf ávallt að geta nafns ljósmyndara þó svo að viðburðarhaldari fái allar aðrar heimildir,“ segir hún. Ásgeir tekur dæmi af tónleikum Nick Cave á ATP fyrir tveimur árum. „Ljósmynd- arar voru þá látnir kvitta undir pappíra og eftir eitt lag mættu þeir í hliðarherbergi þar sem starfsmenn ATP fóru yfir allar myndir, afrituðu og eyddu út þeim sem ekki þóttu nógu góðar,“ segir hann. Harpa Fönn segir að þarna sé gengið ansi langt. „Ljósmyndari á alltaf að halda sínum myndum jafnvel þó viðburðastjóri velji myndir og fái af þeim ráðstöfunar- og nýtingarrétt,“ segir hún. Color Run er ólíkt tónleikum í lokuðu rými að því leyti að það fer fram á opnum vettvangi, nánar tiltekið á götum Reykja- víkurborgar og í Hljómskálagarðinum. Í tölvupósti til Fréttatímans sögðu forsvars- menn hlaupsins að engum hafi verið meinað að taka myndir af hlaupinu. „Hvorki myndir sem ætlað var til einkanota eða sölu til þeirra sem þær vilja kaupa. Þetta er hins vegar viðburður á vegum The Color Run™ fyrirtækisins og sem slíkur er þetta við- burður í þeirra eigu rétt eins og viðburðir á borð við rokktónleika eða slíka viðburði. Þar af leiðandi áskilur The Color Run™ sér heimild til að nota myndir teknar úr hlaup- inu til eigin nota án þess að borga fyrir það sérstaklega.“ Lárus Karl Ingason, formaður Ljósmynd- arafélags Íslands, segir út í hött að fyrirtæki ætli að eigna sér nýtingarrétt og höfundar- rétt á myndum sem teknar eru á opnu svæði. „Mér finnst þetta bara frekja og græðgi. Það þyrfti að láta reyna á svona mál fyrir dóm- stólum,“ segir hann. Hvað skilyrði Color Run varðar segir Harpa Fönn: „Við myndum beina því til skipuleggjanda slíkra viðburða og mæla með því að þeir ljósmyndarar sem taka myndir í og af viðburðinum, haldi sínum höfundarétti að öllu leyti, og geti þá á sínum eigin forsendum veitt eða selt skipuleggjendum nýtingarrétt á ákveðnum ljósmyndum eftir viðburðinn.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Réttindi sífellt lengRa gengið á Réttindi ljósmyndaRa Græðgi af hálfu Color Run Við getum ekki verið í sjálf- boða- vinnu fyrir Color Run. Forsvarsmenn Color Run líta svo að þeir megi nota allar myndir sem teknar voru í hlaupinu eins og þeir vilja, án þess að greiða fyrir, enda sé hlaupið í þeirra eigu. Færst hefur í vöxt á undan- förnum árum að forsvarsmenn ýmissa viðburða láti ljósmyndara skrifa undir samning þar sem þeir fá að mynda í staðinn fyrir að framselja notkunarrétt á ljósmyndum sínum. Ásgeir Ásgeirs- son ljósmyndari segir steininn hafa tekið úr þegar skipuleggjendur Color Run gerðu þessa kröfu enda hafi það verið viðburður á götum úti. Formaður Ljósmyndarafélags Íslands segir þetta dæmi um græðgi og frekju. Þær myndir sem fylgja fréttinni eru teknar af þátttakendum Color Run en forsvarsmenn viðburðarins gefa sér að þeir megi nota þessar myndir, sem og allar aðrar sem teknar voru, að eigin vild. Fréttatíminn fékk leyfi ljósmyndaranna til birtingarinnar. Fullorðnir greiddu 6.499 krónur fyrir þátttöku í Color Run en unglingar 3.499 krónur. Ef þeir tóku ljósmyndir áskilur Color Run sér rétt til að nota þær. Ljósmyndir/Gígja Þórðardóttir, Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir og Kolbrún Pálína Helgadóttir 8 fréttir Helgin 12.-14. júní 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.