Fréttatíminn - 12.06.2015, Blaðsíða 40
Ný og endur-
bætt garðyrkju-
deild í BYKO
Grænland er glæsileg árstíðardeild sem opnuð hefur verið í
BYKO Breidd. Þar er að finna mikið úrval af lifandi blómum,
silkiblómum, blómapottum, garðhúsgögnum og grillum, auk
nauðsynlegra verkfæra og efna í garðverkin.
G rænland er rúmlega árs-gömul deild og er góð við-bót við allt sem er í boði hjá
BYKO. Það má með sanni segja að
við séum með allt fyrir garðinn og
pallinn, svo sem pallaefni, skjól-
veggi, garðhúsgögn, plöntur, áburð
og verkfæri,“ segir Steinunn I. Stef-
ánsdóttir, garðyrkjufræðingur í árs-
tíðadeildinni, en Steinunn býr yfir
tæpri 30 ára reynslu af garðyrkju og
garðyrkjustörfum. Vegna mikillar
kuldatíðar segir hún að vorverkin
séu aðeins seinna á ferðinni. „En
núna fer vonandi að hlýna aðeins
og þá er tilvalið að bera áburð á lóð-
ina, hreinsa beð og stinga upp mat-
jurtagarða, setja niður sumarblóm
og matjurtarplöntur, hreinsa mosa
og fara að huga að garðslættinum.“
Aukinn áhugi á matjurta-
ræktun
„Það hefur verið gríðarleg vakning
í matjurta-, krydd- og berjaræktun
hér á landi og ég tek því fagnandi,“
segir Steinunn. Vegna kuldans
segir hún að mikilvægt að nota
akrýldúka yfir matjurtargarðinn.
„Í timbursölunni eru fáanlegir sér-
stakir vermireitir sem henta afar vel
í matjurtarrækt. Við bjóðum einnig
upp á mikið úrval af pottum í öllum
stærðum og gerðum til að rækta
plöntur í, bæði úti á svölum og á
pallinum. Pottarnir eru fáanlegir í
leir, plast og timbri.“
Íslenskar plöntur beint frá
bónda
Í BYKO eru fáanlegar plöntur frá
átta íslenskum garðplöntufram-
leiðendum. „Þeir eru staðsettir frá
Borgarnesi og austur í Fljótshlíð.
Við bjóðum því eingöngu upp á ís-
lenska framleiðslu þegar kemur
að plöntum. Við leggjum áherslu
á plöntur eins og berjarunna og
krydd- og matjurtir og eru ávaxta-
trén okkar frá gróðrarstöðinni Nátt-
haga. Svo erum við einnig með sum-
arblóm, fjölær blóm, auk ýmissa
trjáa og runna,“ segir Steinunn. Til
að ná góðum árangri í ræktun þarf
að huga vel að jarðvegi og áburðar-
gjöf. „Ef notast er við ker er um að
gera að setja góða mold, ef um er að
ræða ker frá fyrra ári er tilvalið að
skipta út efsta laginu og setja nýja
og góða mold ofan á. Hægt er að
nota bæði lífrænan og tilbúin áburð
og í matjurtarræktun mælum við
með að nota lífrænan áburð.“
Verkfæri af öllum stærðum og
gerðum
Í Grænlandi er einnig að finna
fjöldann allan af verkfærum, stórum
og smáum, sem henta vel í garð-
ræktina. „Við bjóðum upp á vönduð
rafmagnstæki frá Bosch og hágæða
bensíntæki frá McCulloch. Eitt ný-
legt tæki erum við með sem er fúgu-
og helluhreinsir sem er tilvalinn til
að fjarlægja gróður sem myndast
milli gangstéttahellna. Svo eru einn-
ig til sérstakir hnífar sem hægt er
að setja undir sláttuvélina til mosa-
tætingar. Þessi græja hentar vel til
að koma garðinum í gott stand eftir
veturinn,“ segir Steinunn. Aðspurð
um hvernig best sé að hefja garð-
verkin eftir langan vetur segir hún
að gott sé að byrja á að hreinsa beðin,
snyrta tré og runna og raka mosann
eða nota mosatætara. „Gott ráð við
mosa er að nota kalkáburð sem ger-
ir jarðveginn basískan. Þegar mos-
inn hefur verið fjarlægður er gott að
setja grasfræ í grasið til að endurnýja
svörðinn og bera svo góðan alhliða
áburð eftir á. Þegar við sláum grasið
er um að gera að stilla sláttuvélina
hátt svo að mosinn sé undir með
grasinu en nái ekki upp á yfirborðið,
þó svo að það þýði að slá þurfi þeim
mun oftar,“ segir Steinunn.
Unnið í samstarfi við
BYKO
Steinunn I. Stefánsdótt-
ir, garðyrkjufræðingur,
starfar í Grænlandi sem
er ný og endurbætt
garðyrkjudeild í BYKO
í Breiddinni, Kópavogi.
Ljósmynd/Hari.
Fúgu- og helluhreinsir er tilvalin græja
til að fjarlægja gróður sem myndast
milli gangstéttahellna.
Sveinn.gestur@gmail.com
Við leggjum mikla áherslu á að veita afbragðs þjónustu.
Kappkostum að skila verkum okkar eins fallegum og vel
frágengnum og kostur er.
Láttu fagmenn
sjá um garðinn þinn
* Sólpallasmíði
* Skjólveggir
* Garðsláttur
* Og öll önnur garðvinna
* Trjáfellingar
* Þökulagnir
* Beðahreinsun
* Hellulagnir
* Trjáklippingar
Aðal Garðaþjónustan -því garðurinn þinn á það skilið
Aðal garðaþjónustan S. 770 0854
www.adalgardathjonustan.is
adalgardathjonustan@adalgardatjonustan.is
40 heimili Helgin 12.-14. júní 2015