Fréttatíminn - 12.06.2015, Qupperneq 38
Helgin 12.-14. júní 201538 heimili
Hrím fagnar 5 ára afmæli
V ið vorum tvær sem opnuð-um Hrím í Gilinu á Akur-eyri í maí árið 2010 og um
haustið opnuðum við einnig í menn-
ingarhúsinu Hofi,“ segir Tinna. Að-
spurð um nafngiftina segir Tinna
að þær hafi viljað hafa heitið stutt
og mjög íslenskt. „Þar sem fyrir-
tækið var stofnað á Akureyri voru
tengslin við frostið einnig stór hluti
af nafninu.“. Fyrir þremur árum
fluttist Tinna aftur til Reykjavíkur
og langaði hana að halda verslun-
arrekstrinum áfram. Í mars árið
2012 opnaði Hrím glæsilega versl-
un á Laugavegi og hefur Tinna því
verið ein með verslunina í þrjú ár.
Upphaflega var einungis að finna
íslenska hönnunarvöru í Hrím, en
þegar verslunin opnaði í Reykjavík
langaði Tinnu að bæta við erlendum
hönnunarvörum „Nú er líklega 60%
af vöruúrvalinu erlent. Skandinav-
ísk hönnun er áberandi, einfaldlega
vegna þess að sú hönnun heillar Ís-
lendinga, en við höfum einnig verið
að taka inn fallegar vörur frá Bret-
landi og Frakklandi.“
Hönnunarhús þar sem má
snerta hlutina
„Það voru margir sem töldu mig
vera ansi frakka að fara út í verslun-
arrekstur af þessu tagi svona stuttu
eftir hrun. En mér fannst vera þörf
á skemmtilegri hönn-
unarverslun þar sem
mætti snerta hlutina,“
segir Tinna. Verslunin
við Laugaveg naut strax
mikilla vinsælda og
fann Tinna fljótlega að
þörf væri á stærra versl-
unarrými. „Við opnuð-
um svo Hrím Eldhús í
fyrra, í öðru húsnæði
á Laugaveginum, ská
á móti fyrstu verslun-
inni. Við leggjum mik-
ið upp úr því að heim-
sókn í verslanir Hríms
séu skemmtilegar. Við
viljum að fólki líði svo-
lítið eins og heima hjá
sér. Hrím Eldhús er
til dæmis innréttuð að
miklu leyti eins og eld-
hús, við viljum að við-
skiptavinir okkar fái þá
tilfinningu að þeir séu
staddir í fallegu eld-
húsi með notalegum
borðkrók, eldhúsinn-
réttingum og borðbún-
aði. Börnin eiga svo sitt
eigið svæði í búðinni þar sem búið
er að setja upp lítið og nett eldhús
með tilheyrandi áhöldum og dóti.
Þannig geta foreldrarnir fengið
næði til að skoða sig um í rólegheit-
um í notalegu og fallegu umhverfi,“
segir Tinna.
Þrjár verslanir og öflug net-
verslun
Nýjasta Hrím verslunin opnaði í
Kringlunni í mars síðastliðnum. „Í
Kringlunni finnst okkur við ná betur
til Íslendinga en í miðbænum, sem
er oftar en ekki fullur af túristum.
En við fögnum þeim að sjálfsögðu,
þeir setja skemmtilegan svip á
miðbæinn,“ segir Tinna. Ný heima-
síða fór í loftið síðastliðið haust og
segir Tinna að netverslunin sé orðin
mjög öflug. „Þannig náum við einn-
ig til fólks á landsbyggðinni, sem
skiptir okkur miklu máli.“ Áhuga-
afólk um fallega hönnun, innlenda
sem erlenda, geta kynnt sér vöruúr-
valið frekar á www.hrim.is.
Unnið í samstarfi við
Hrím
Hrím hönnunarhús fagnar
fimm ára afmæli um þessar
mundir. Tinna Brá Baldvin-
sdóttir opnaði fyrstu Hrím
verslunina á Akureyri en
flutti svo verslunina með sér
til Reykjavíkur fyrir þremur
árum. Verslanir Hrím eru nú
þrjár talsins, tvær á Laugavegi
og ein í Kringlunni.
Tinna Brá, eigandi Hrím hönnunarhúss,
sem fagnar 5 ára afmæli um þessar
mundir. Síðastliðinn laugardag tók Hrím
þátt í Fiskisúpudeginum sem haldinn
var þriðja árið í röð í tengslum við sjó-
mannadaginn, en þá bjóða kaupmenn
og veitingamenn gangandi gestum upp
á gómsæta súpu. Ljósmynd/Hari.
1. Subway flísar í ljósum lit koma einstaklega
vel út í eldhúsinu. Mynd/Shutterstock
2. Svokallaðar „subway“ flísar eiga nafngift
sína að rekja til neðanjarðarlestarstöðva í New
York borg.
3. Með því að flísaleggja aðeins hluta af vegg
virkar eldhúsrýmið stærra.
Frá neðanjarðar-
lestinni í eldhúsið
S vokallaðar „subway“ flísar eru að verða meira og meira áberandi í
innanhússhönnun. Um er að
ræða klassískar keramikflís-
ar sem draga nafn sitt af álíka
flísum sem hafa prýtt neðan-
jarðarlestarkerfið í New York
frá því það var tekið í notkun
fyrir rúmlega 100 árum. Lista-
mennirnir Heins & LaFarge
fengu þá hugmynd að fegra
neðanjarðarlestarkerfi borg-
arinnar með litríkum keramik
flísum og var það liður í lista-
og handverkshreyfingu sem
átti upptök sín í Bretlandi um
miðja 19. öld sem andsvar við
óvandaðri fjöldaframleiðslu
sem fylgdi í kjölfar iðnvæðing-
ar. Úr urðu mörg falleg lista-
verk sem prýða stöðvarnar
enn þann dag í dag og sífellt
bætist í hópinn.
Flísar af þessu tagi hafa nú
notið mikilli vinsælda í innan-
húshönnun og þá helst á bað-
herbergjum eða í eldhúsum.
Flísarnar eru til í öllum regn-
bogans litum en flísar í ljósum
lit falla vel inn í þann nútíma-
lega og einfalda stíl sem nú
einkennir innanhúshönnun.
Flísarnar henta bæði vel í
stærri og minni rými og þær
er auðvelt að þrífa.
1
2 3
DrainLine niðurfallsrennur
Tilboð
66.900
Hitastýrð
sturtu blöndunar-
tæki með höfuð-
og handúðara
með nuddi.