Fréttatíminn - 12.06.2015, Side 44
44 bílar Helgin 12.-14. júní 2015
ReynsluakstuR suzuki swift spoRt
Sætur, skemmtilegur og líka traustur
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku
Suzuki Swift Sport
algjör draumabíll
í borgarskutlið en
hann sýnir líka á sér
óvæntar hliðar í lang-
ferðum. Hann er vel
hannaður, skemmti-
legur í akstri og gefur
mikla öryggistilfinn-
ingu miðað við stærð.
Þ rátt fyrir að vera fín frú þá er ég alls ekki vön því að keyra svokallaða frúar-bíla. Hef satt best að segja haft ákveðna
fordóma gagnvart þeim. Því fyrir utan hversu
mikil della það er að frúr þurfi minni bíla en
herrar, þá eru bílar fyrir mér aðallega tæki til
að nota í barnastúss og komast út á land og
pinkulítill bíll hjálpar ekki mikið til við það.
Eða hvað?
Það er óhætt að segja að Suzuki Swift Sport
hafi eytt fordómum mínum um litla bíla því
fyrir utan að vera óvenju sætur þá er hann líka
mjög léttur og skemmtilegur í akstri. Hann
gefur líka mikla öryggistilfinningu
þrátt fyrir smæðina.
Daginn sem ég fékk lyklana í hend-
urnar bauðst mér að kíkja á vini í bú-
stað svo ég ákvað að slá tvær flugur í
einu höggi, hitta vini og reynsluaka í
leiðinni. Með smá kvíða í brjósti þó.
Myndi litli bíllinn komast yfir heið-
ina? Já hann komst yfir heiðina og
vel það. Þessi bíll er að sjálfsögðu
hugsaður sem borgarbíll en hann
er það vel smíðaður og það er það
mikill töggur og kraftur í honum að
það er líka gott að keyra hann í lang-
ferð. Enginn hávaði og engin sauma-
vélarhljóð. Bíllinn er skemmtilegur í
akstri, hann er vel hannaður, einfald-
ur í notkun eins og Suzuki einum er
lagið og plássið aftur í er ágætt fyrir
krakka og útsýnið virkilega gott.
Börnin voru allavega hæstánægð og
fannst hann jafn sætur og mér.
Ég mæli þó ekki með mjög langri
ferð sem krefst mikils farangurs því
skottið er það allra minnsta á mark-
aðinum. Heimsóknin var sem betur
fer stutt því það komust ekki mikið
meira en sundtöskur í skottið og
einn matarpoki. Helgarinnkaup vísi-
tölufjölskyldu gætu kannski rúmast
en þá væri varla hægt að kíkja í sund
í leiðinni.
Sem sagt. Sætur, skemmtilegur
og öruggur en með aðeins of lítið
pláss í skottinu fyrir mömmu með
tvö börn.
suzuki
swift spoRt
Verð:
Frá 2.390.000
Sambærilegir bílar
Honda Jazz, Toyota
Yaris, VW Polo, Kia
Picanto
Kostir:
Gott verð.
Eyðslugrannur; 5
l./ 100.
Öruggur:
ESP stöðug-
leikakerfi og sjö
öryggisloftpúðar,
ISO FIX barnastóls-
festingar.
Cruise control,
vönduð hljómtæki
með sex hátölurum,
bluetooth og USB
tengi.
Gallar:
Lítið farangursrými;
211 l.
Suzuki Swift Sport er óvenju sætur og mjög léttur og skemmtilegur í akstri. Ljósmyndir/Hari